Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 56
Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is ÍÞRÓTTIRog útivist Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Stutt er síðan Helga Sverrisdóttir keypti rekstur Ellingsen-búðanna, í félagi við eiginmann sinn. Eru þau hjónin mikið útivistarfólk og segir hún að fjölskyldan sé dugleg að fara í göngur saman og á skíði. „Þetta er áhugamál sem allir fjölskyldu- meðlimir geta stundað í sameiningu. Við eigum fjögur börn sem öll hafa alist upp við það að fara með okkur í göngur upp á fjöll og um fallegar leiðir á hálendinu, og ekki hægt að finna betra tækifæri til að spjalla við börnin og búa til með þeim ánægjulegar minningar.“ Með nýjum eigendum koma nýjar áherslur og segir Helga stefnt að því að gera vörum til alhliða útivist- ar hærra undir höfði. „Við látum öðrum eftir að sérhæfa sig t.d. á sviði skotveiði og stangveiði, og drögum saman á þeim sviðum. Eins og alltaf er áherslan lögð á góðar vörur á góðu verði, bæði fyrir þá sem stunda útivistina af mikilli al- vöru og líka fyrir hina sem vilja bara eignast vandaða skó og þægi- legan fatnað til að geta átt góðan göngutúr úti í náttúrunni, taka stefnuna á golfvöllinn eða skjótast út með hundinn.“ Pollagalla- og hjólatíminn Helga segir að á vorin glæðist sal- an á regn- og vindfatnaði. „Þetta er sá tími sem að útigallarnir fara inn í skáp og regngallarnir og stígvélin eru tekin fram. Fjölskyldufólk fjöl- mennir í verslunina á þessum árs- tíma í leit að regnfatnaði bæði fyrir börnin og fyrir þá fullorðnu, og eru vindjakkar og léttari útivistarfatn- aður að taka við af vetrarflíkunum.“ Vorið er líka orðið líflegur tími í reiðhjóladeildinni. „Við seljum reið- hjól frá Merida sem eru þýsk hönn- un og afar vinsæl. Mikil breidd er í hjólunum frá Merida, allt frá þrí- hjólum fyrir þau yngstu yfir í fín- ustu keppnishjól. Einnig seljum við allan mögulegan aukabúnað og hjól- reiðafatnað. Kaupendur eru mjög ánægðir með gæði hjólanna og verð og vonandi munu margir taka vel í samstarfsverkefni Ellingsen og Barnaheilla. Þar bjóðum við fólki 10.000 króna afslátt af nýju hjóli í skiptum fyrir það gamla, sem við svo gerum upp og gefum í hjólasöfn- un Barnaheilla sem síðan kemur hjólinu í hendur barna á heimilum þar sem peningarnir eru af skorn- um skammti,“ útskýrir Helga og bætir við að samfélagsleg ábyrgð sé í fyrirrúmi hjá Ellingsen. „Þetta birtist með ýmsum hætti, og var t.d. mjög ánægjulegt að geta, í sam- starfi við birgjana okkar, gefið flóttafólkinu sem kom til Íslands í vetur ný útiföt.“ Útivistin hluti af lífsstílnum Ekki ætti að hafa farið fram hjá neinum að mikil útivistar-bylgja hefur gengið yfir landið. Hafa Ís- lendingar uppgötvað það að nýju hversu ánægjulegt það er að upplifa einstaka náttúruna og arka um holt og hæðir í góðum félagsskap. Segir Helga að útivistaráhuginn virðist kominn til að vera. „Við sjáum þetta t.d. á vinnustöðunum þar sem al- gengt er að finna virka gönguhópa sem skipuleggja ferðir á viðráð- anleg fjöll í næsta nágrenni. Hjálpar líka til að útbúnaður á borð við gönguskó er orðinn léttari og ódýr- ari en hann eitt sinn var, og alls ekki kostnaðarsamt að byrja að stunda útivist,“ segir hún. „Margir hafa líka áttað sig á að það er margt annað hægt að gera en að fara á Hornstrandir eða ganga Laugaveg- inn, og má fá heilmikið út úr því að einfaldlega reima á sig gönguskóna eftir vinnudaginn og ganga um fal- lega staði innanbæjar og í jaðri byggðarinnar. Er það miklu skemmtilegri dægradvöl á fallegu sumarkvöldi en að sitja uppi í sóf- anum heima.“ Breytingin sést kannski greini- legast á því að jafnvel þegar ferðast er út í heim vilja Íslendingar halda áfram að hreyfa sig. „Frekar en að flatmaga í sólinni vill fólk út- landaferðir þar sem er t.d. gengið á milli fallegra bæja í evrópskum sveitahéruðum, eða stefnan sett á skipulagða gönguferð eða hjólaferð með vinkonunum.“ Áhugamál sem fjölskyldan getur stundað saman  Ekkert útlit fyrir að útivistaráhugi Íslendinga fari dalandi  Ellingsen í samstarfi við Barna- heill til að tryggja þurfandi börnum reiðhjól Morgunblaðið/Golli Rætur Ellingsen fagnar 100 ára afmæli í júní og segir Helga að árangur fyrirtækisins öll þessi ár megi ekki síst skrifa á framúrskarandi starfsfólk. „Við búum að fólki sem þekkir vörurnar mjög vel og veitir bæði vandaða og fag- lega þjónustu.“ Með á myndinni er Kristján Baldursson sem unnið hefur hjá fyrirtækinu í 45 ár. Slydda Ekki er vanþörf á að eiga góðan regnstakk á vorin. Ferðamáti Háir jafnt sem lágir þurfa á hjóli að halda. Skór Bæði verð og gæði útivistarfatnaðar hafa batnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.