Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Laugardaginn 9. apríl fékk björg-
unarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ
afhentan nýjan bíl og var af því til-
efni haldin móttaka fyrir bæjarbúa
og styrktaraðila í björgunarstöðinni
Von á Rifi.
Bíllinn er af gerðinni VW Cara-
velle og tekur níu manns í sæti, er
fjórhjóladrifinn, upphækkaður og
með kraftmikilli díselvél.
Bíllinn er vel búinn tækjum til
björgunarstarfa og sá RadíóRaf um
þær breytingar. Um er að ræða
Tetra VHF talstöðvar, tvö GPS tæki
og spjaldtölvu ásamt öðrum búnaði.
Að sögn Halldórs Sigurjónssonar
formanns Lífsbjargar mun bíllinn
nýtast vel við störf sveitarinnar, en
fyrir á sveitin samskonar bifreið ár-
gerð 2001 og er því um kærkomna
endurnýjun að ræða.
Vildi Halldór koma fram miklum
þökkum til þeirra styrktaraðila sem
lögðu hönd á plóg og eru þeir eft-
irtaldir: Hraðfrystihús Hellissands,
Útnes ehf, Kristinn J. Friðþjófsson
ehf, Skarðsvík ehf, Útgerðarfélagið
Dvergur, útgerðarfélagið Haukur,
Litlalón ehf, Brim hf og KG fisk-
verkun.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Móttaka Hluti styrktaraðila ásamt björgunarsveitarmönnum við nýja bílinn.
Lífsbjörg tekur í
notkun nýjan bíl
Þegar búið er að vigta fiskinn er
hann hausaður, slægður og flak-
aður og að því loknu er hægt að
kaupa hann eftir vigt. Ekki ama-
legt að fá nýveiddan flökkuþorsk í
matinn. Það er handagangur í öskj-
unni, menn eru greinilega ekki að
gera að fiski í fyrsta skiptið og
gamanyrðin fljúga á milli.
„Ég veit af hverju þorskurinn
þinn er svona stór,“ segir skeggj-
aður karl í appelsínugulum smekk-
buxum við einn veiðimannanna.
„Þú fékkst haill!“ Og nú er kominn
tími til að útskýra þetta orð – haill.
Að sögn heimamanna þótti það,
og þykir enn, gæfumerki fyrir sjó-
menn að njóta hvílubragða áður en
þeir fara til veiða. Sé þessi athöfn
framkvæmd áður en haldið er til
hafs heitir hún haill. Í gegnum tíð-
ina hafa orðið til ýmis afbrigði af
haill. Til dæmis er talað um ferskt
haill hafi viðburðurinn átt sér stað
0 til 48 klukkustundum áður en far-
ið var út á sjó. Miðaldra haill er 48
til 72 tíma gamalt og gamalt haill
er eldra en 72 klukkustunda.
Reyndar er síðarnefnda skilgrein-
ingin líka notuð þegar rekkjunaut-
ur sjómannsins er meira en 20 ár-
um eldri en hann.
Fiskur í poka á fínu hóteli
En gleðin er ekki á enda þó að
fiskurinn sé kominn í land. Margir
fara til síns heima til að skipta um
föt fyrir kvöldið, því þá heldur
skemmtunin áfram ýmist í heima-
húsum, á veitingastöðum eða á hót-
elum. Langfjölsóttasta skemmtunin
verður á stærsta hóteli bæjarins,
Thon Hotel Lofoten.
Blaðamaður lætur sitt ekki eftir
liggja í gleðinni og heldur þangað.
Í stórum sal á þessu nýja og glæsi-
lega hóteli stendur hljómsveit á
sviði og spilar hressa norska dans-
tónlist. Dansgólfið er fullt og gestir
eru á öllum aldri, af öllum stærðum
og gerðum. Reyndar rekur blaða-
mann ekki minni til þess að hafa
séð svo fjölbreyttan hóp sam-
ankominn á balli. Sumir eru ennþá
í skærlitum sjófatnaði og hafa jafn-
vel feng dagsins meðferðis þannig
að á víð og dreif má sjá blóðgaðan
þorsk í glærum plastpokum. Veiði-
stangir hallast upp að veggjum eða
liggja á mjúkum flauelssstólum á
þessu glæsilega hóteli. Þetta þætti
fremur ankannalegt við flestar aðr-
ar aðstæður en hérna smellpassar
þetta.
Sífellt skemmtilegra
Daginn eftir fer blaðamaður í
hressingargöngu um bæinn í fylgd
með heimamanni. Margir eru á
ferli, enda Norðmenn annálað
útivistarfólk. Ekki er annað að
skilja af bæjarbúum en að þeir telji
gærkvöldið vel heppnað.
Blaðamaður er spurður hvort
hann hafi skemmt sér vel og svarar
því játandi. „Það verður alltaf
skemmtilegra og skemmtilegra
með hverju árinu,“ fullyrðir einn
Svolvær-búi. „En það er bara ein
leið fyrir þig að sannreyna það –
þú verður að koma aftur á næsta
ári!“
Og hver vann svo keppnina? Það
var nýgræðingur í sjóstangaveiði;
Norðmaður að nafni Rune Hau-
kom, og vinningsþorskurinn vóg
21,8 kíló. Dagblaðið Lofotposten
spurði hvort hann hefði fengið haill
fyrir keppnina. „Því svara ég ekki,“
sagði hann hlæjandi.
Haldið til hafs Klukkan níu á laugardagsmorgni var ræst út í
keppnina. Fleyin voru af ýmsum stærðum og gerðum.
Þorskar Með brostin augu lágu stjörnur dagsins, sjálfir þorsk-
arnir. Sumir þeirra urðu máltíð bæjarbúa um kvöldið.
Handagangur í öskjunni Um 600 veiðimenn á öllum aldri tóku
þátt í mótinu sem að þessu sinni var haldið helgina 1.-2. apríl.
Morgunblaðið/Anna Lilja
Gert að aflanum Heimsmeistaramótið í sjóstangaveiði í Svolvær er samfélagsverkefni þar sem fjöldi bæjarbúa
vinnur í sjálfboðavinnu. Sjálfsagt þykir að leggja hönd á plóg og heimamenn taka sérlega vel á móti gestum.
ELSKAN, HVAÐ EIGUM
VIÐ AÐ HAFA MEÐ
BERNAISESÓSUNNI?
Alvöru grillsósur sem gera gott betra.