Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 88

Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 88
FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 105. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Myrti konuna og svipti sig lífi 2. Nafn piltsins sem lést 3. Nágranni felldi tré í óþökk … 4. Rifu húsið í góðri trú »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rafpoppsveitirnar Wesen og Anti- mony halda tónleika í kvöld kl. 20 á Loft hosteli í Bankastræti og er að- gangur ókeypis. Wesen skipa Júlía Hermannsdóttir og Loji Höskuldsson og luku þau nýverið við fyrstu breið- skífu sína í samstarfi við Árna Rúnar Hlöðversson úr hljómsveitinni FM Belfast. Skífan kemur út á vegum breska plötufyrirtækisins Hidden Trail Records í sumar. Antimony er draumkennd rafpoppsveit, skipuð söngkonunni Rex Beckett frá Mont- real í Kanada, gítarleikaranum og for- ritaranum Sigurði Angantýssyni og bassaleikaranum og söngvaranum Birgi Sigurjóni Birgissyni. Hljóm- sveitin gaf út fjögurra laga skífu í febrúar í fyrra og nýlega völdu með- limir Sigur Rósar Antimony til að spila með sér á Citadel-hátíðinni í London í júlí í sumar. Fyrsta breið- skífa Antimony, Wild Life, kemur út í sumar. Weson og Antimony leika á Loft hosteli  Þýðendakvöld hefst í Gunnars- húsi, Dyngjuvegi 8, kl. 20 í kvöld og á því verða kynntir þeir fimm þýð- endur og verk þeirra sem tilnefnd eru til Íslensku þýðingaverðlaun- anna í ár. Þýðendurnir munu spjalla við áheyrendur um verkin, starf sitt og glímuna við orðin. Þeir eru Aðal- steinn Ásberg Sigurðs- son, Ásdís R. Magnús- dóttir, Brynja Cortes Andrésdóttir, Jón Hallur Stefánsson og Silja Aðal- steinsdóttir. Aðgangur er ókeypis að viðburðinum. Þýðendur fjalla um verk sín og störf Á föstudag Breytileg átt 3-8 en norðan 8-13 austast fram eftir degi. Þurrt á landinu og skýjað með köflum. Á laugardag Suðvestan 3-8 og skýjað, en bjart með köflum á Austurlandi. Hiti 0 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 3-10 en 10-18 austan Öræfa. Víða lítilsháttar rigning eða smásúld. Hiti 3 til 10 stig. VEÐUR Rimmurnar fjórar í 8 liða úr- slitum Olísdeildar karla verða væntanlega misjafn- lega spennandi. Reikna má með að tvær þeirra verði jafnari en hinar tvær síðari vegna þess að of mikill getumunur er á liðunum sem þar eigast við. Um er að ræða viðureignir Íslands- og deildarmeistara Hauka og Akureyrar annars vegar og Reykjavíkurliðanna Fram og Vals hinsvegar. »4 Tvær jafnar rimmur og tvær ójafnar? „Ég hef alltaf litið ótrúlega mikið upp til Rögnu. Ég fór einmitt á Ól- ympíuleikana í London til að sjá badmintonið. Hún er ótrúlega flott og hefur hjálpað mér mikið í gegn- um árin. Hún veit allt um hvað þarf til að ná svona langt og ég hef allt- af getað leitað til hennar, sem er mjög gott, því ég hef alltaf ætlað mér að komast á Ólympíuleika,“ segir Margrét Jó- hannsdóttir, Íslands- meistari í bad- minton. »1 Ragna er fyrirmyndin og Margrét stefnir á Japan Getur Tindastóll gert nýja atlögu að Íslandsmeistaratitlinum í körfuknatt- leik karla næsta vetur? Lykilmenn eru að eldast, Darrel Lewis ætlar að spila áfram á 41. aldursári, og óvíst er hvað ungu leikmennirnir gera. „Það þýðir ekkert að gefast upp og leggja árar í bát núna,“ segir fyrirlið- inn Helgi Rafn Viggósson um fram- haldið hjá liðinu. »1-3 Þýðir ekkert að leggja árar í bát núna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Sex tvíburapör eru í grunnskólanum á Hvolsvelli en 233 nemendur eru í skólanum. „Þetta er greinilega mjög frjósamt svæði,“ segir Þórunn Ósk- arsdóttir, grunnskólakennari í Hvolsskóla, spurð út í tvíburapörin. Þórunn er sjálf eineggja tvíburi og kennir 7. bekk í Hvolsskóla en í þeim bekk eru tvö tvíburapör. Það eru þau Oddur Helgi og Þórdís Ósk Ólafsbörn og Freyja og Oddný Ben- ónýsdætur. Þær systur eru ein- eggja. Erfitt að þekkja þær í sundur „Það tók mig tvo og hálfan vetur að þekkja þær í sundur,“ segir Þór- unn um Oddnýju og Freyju og hlær. „Mér fannst það pínu slæmt því ég lagði metnað minn í að þekkja þær í sundur. Það gekk ekki betur en þetta. En ég er búin að því núna. Ég fann einkenni,“ segir Þórunn sposk. Innt eftir því hvert einkennið sé, segir hún það vera örlítið ör á enni annarrar. „Hitt parið í bekknum er strákur og stelpa og það auðveldaði mér þetta mjög mikið,“ segir hún glað- lega. Þórunn þekkir af eigin raun að vera ruglað saman við tvíburasystur sína, Unni. Þeim er enn ruglað sam- an enda mjög líkar og ekki hjálpar að þær eru oftast með svipaða klipp- ingu. Þær búa báðar á Hvolsvelli og er Unnur leikskólakennari í Leik- skólanum Örk. Þegar Þórunn var komin yfir þrí- tugt lét hún fjarlægja hvítan kalk- blett á framtönn sem hún hafði alla tíð haft. Blettinn notaði fólk gjarnan til að þekkja þær í sundur. „Það fór alveg með marga þegar bletturinn var tekinn.“ Vilja skipta tvíburum Þórunn á það sameiginlegt með systur sinni að í störfum þeirra með börnum reyna þær yfirleitt að setja tvíbura sinn í hvorn hópinn ef það er mögulega hægt. Það á sérstaklega við um samrýnda tvíbura og ef þeim er ruglað mikið saman. „Þetta var ekki gert með okkur. Maður hefur kannski sterkari tilfinningu fyrir þessu. Í rauninni er þetta einhver þörf fyrir að fá að vera hvor sinn ein- staklingurinn og fá að þroskast sem slíkur. Að vera ekki alltaf tekinn sem tvíburarnir,“ segir Þórunn. Nýverið hittist þannig á í Hvols- skóla að Unnur leikskólakennari var í skólaheimsókn með elsta leikskóla- hópinn. Systurnar voru því sjöunda tvíburaparið í skólanum þann dag- inn. Þess má geta að Unnur og Þór- unn gengu báðar í Hvolsskóla á sín- um tíma. Sex tvíburapör í skólanum  Þórunn tvíburi kennir tveimur tvíburapörum Tvíburar í Hvolsskóla Í aftari röð frá vinstri eru: Þórunn og Unnur Óskarsdætur frá Hvolsvelli, Freyja og Oddný Benónýsdætur í Miðtúni, Ragnar Rafael og Guðni Steinarr Guðjónssynir frá Tjaldhólum. Í fremri röð frá vinstri eru: Gísli Jens og Baldur Bjarki Jóhannssynir frá Fit, Bryndís Rut og Lovísa Karen Gylfadætur á Hvolsvelli, Oddur Helgi og Þórdís Ósk Ólafsbörn á Hvolsvelli, Bjarni og Rúnar Þorvaldssynir frá Kornvöllum. Flestum eineggja tvíburum er ruglað saman og eru Oddný og Freyja Ben- ónýsdætur þar ekki undanskildar. Þær hafa skilning á því, enda segja þær að flestum þyki þær líkar þó þeim sjálfum finnist það ekki. Það hefur komið fyrir að þær nýti sér þennan rugling. „Fyrsta apríl þá skiptum við. Ég var Freyja og Freyja var ég. Þórunn [kennari] fattaði ekki neitt. Ég held að hún sé ekki ennþá farin að þekkja okkur í sundur,“ segir Oddný hlæjandi. Systurnar segjast ekki vera mjög mikið saman. Þær eiga sinn vinahóp- inn hvor en eiga samt sömu bestu vinkonu sem þær segjast skipta bróðurlega á milli sín. Þær æfa saman íþróttir, fimleika og frjálsar en Freyja er líka í fótbolta. Þær stunda einnig tónlistarnám, Oddný spilar á selló og Freyja á þver- flautu og er í söngnámi. Rugluðu alla í ríminu 1. apríl ODDNÝJU OG FREYJU FINNST ÞÆR EKKI VERA MJÖG LÍKAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.