Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 65
MINNINGAR 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÍKARÐUR PÁLSSON tannlæknir, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 12. apríl. Jarðarför auglýst síðar. . Selma Hannesdóttir, Hannes Ríkarðsson, Hella Willig, Smári Ríkarðsson, Hrafnhildur Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir, systir, frænka, amma og langamma, HAFDÍS ÁRNADÓTTIR HILDIGUNNARSSON frá Grindavík, lést á heimili dóttur sinnar í Greenfield, Massachusetts, 7. apríl síðastliðinn. Minningarathöfn verður haldin síðar. . Herdís Eriksson, Heba Árnadóttir Theriault, Belinda Theriault, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, ERLA KRISTINSDÓTTIR, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði, sunnudaginn 3. apríl 2016. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 16. apríl klukkan 14. . Guðlaugur Henriksen, Sigrún G. Henriksen, Petter Stokke, Ásta Henriksen, Ólafur H. Henriksen, Lilja Sveinsdóttir, Elín Henriksen, Bjarni Sv. Ellertsson. Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR BÁRÐARDÓTTIR frá Jarðlangsstöðum í Mýrasýslu, sem andaðist þriðjudaginn 5. apríl á Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju föstudaginn 15. apríl klukkan 13. Jarðsett verður að Borg á Mýrum. Fyrir hönd aðstandenda, . Sigríður Bára Einarsdóttir, Þuríður Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Fanney Einarsdóttir og Jóhannes Guðmundur Einarsson. ✝ Guðrún Emils-dóttir fæddist 30. júlí 1930 í Brekku á Hánefs- staðareyrum við Seyðisfjörð. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 4. apríl 2016. Hún var dóttir hjónanna Guðnýjar Helgu Guðmunds- dóttur og Emils Theódórs Guðjónssonar. Þeim Guðnýju og Emil varð tólf barna auðið og var Guðrún, eða Rúna eins og hún var alltaf kölluð, næstyngst. Nú þegar Rúna er fallin frá eru aðeins tvö systk- inanna eftirlifandi, það er Val- gerður, sem búsett er á Seyðis- firði og á fáeina mánuði eftir í að fagna 100 ára afmæli, og Friðrik sem er búsettur í Reykjavík. Þá lifa hana einnig tvær uppeldissystur, þær Rún Pétursdóttir, búsett í Grindavík, og Jóhanna Júlía Júlíusdóttir, búsett í Keflavík. Hermann Sigurðsson, eigin- maður Guðrúnar, var fæddur 19. júní 1930, hann lést 1. nóv- ember 2009. Synir Guðrúnar og Hermanns eru: 1) Skúli Hafþór, kvæntur Jóhönnu Egilsdóttur, þau eiga tvö börn og fjögur barnabörn. 2) Helgi Þór, kona hans er Sigríður Rósa Laufeyjardóttir, börn þeirra eru fimm og barnabörn eru þrjú. 3) Sig- urður Örn, sem lést 14. ágúst 2007, hann var kvæntur Ölmu Tómasdóttur, þau eiga þrjá syni. 4) Emil Ásólfur, kvæntur Dagnýju Kjærnested, þau eiga þrjú börn og fimm barnabörn. 5) Hermann Rúnar, kvæntur Karólínu Júlíusdóttur, þau eiga þrjú börn. 6) Margeir, kvæntur Irenu Auði Péturs- dóttur, börn þeirra eru fjögur og eitt barnabarn. Dóttir Guðrúnar og Árna Stefánssonar er Hjördís. Hún á þrjú börn og tvö barnabörn. Börn Hermanns sem hann átti áður eru: a) Katrín, gift Jóni Magnússyni, þau eiga tvær dæt- ur og fimm barnabörn. b) Egill, hann á sex börn, tvo fóstursyni og barnabörnin eru fjögur. c) Elsa Katrín. Einnig átti Hermann soninn Ellert. Útför Guðrúnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 14. apríl 2016, klukkan 13. Móðir mín og minn besti vin- ur er látin. Vinátta okkar var svo einstök og minningarnar svo kærar að ekki verður mikið pláss fyrir tómarúm í hjarta mínu. Mamma var hvunndagshetja, æðrulaus, umburðarlynd og kærleiksrík. Eins og sannar hvunndagshetjur vann hún verk sín hljóð. Það væri efni í marg- ar bækur að telja þau upp og ekki í hennar anda, hún vildi aldrei berast á. Vegna eigin- leika sinna snerti hún hjörtu allra sem kynntust henni. Mamma var fyrirmynd um heið- arleika, umburðarlyndi og hóg- værð og hefur kennt okkur af- komendum sínum hvað það er sem skiptir máli í lífinu. Takk, elsku mamma mín, fyr- ir lífið mitt. Ég veit að þú dans- ar nú inni í eilífðinni eins og þú ætlaðir þér. Dansi, dansi mamma mín, dásamlega ertu fín. Dansar inn í himininn, við hann elsku pabba minn. Nú ert þú á dansskónum, vængjum prýdd í gullkjólum. Öllum englum finnst þú fín, dansi, dansi mamma mín. Þín elskandi dóttir, Hjördís. Ég var 15 ára þegar ég og Ási byrjuðum að vera saman. Við byrjuðum okkar búskap í kjallaranum á Túngötunni hjá ykkur tengdapabba. Við vorum lítið niðri, hlýja þín og hófsemi dró fólk að þér. Barnabörnin fengu að baka með þér, ærslast og lærðu ljóð með þér. Mér fannst þolinmæði þín yndisleg, betri tengdamömmu hefði ég ekki getað átt. Ég ákvað ung að svona amma ætlaði ég að vera. Ég eignaðist Rúnu Lís 19 ára. Á göngu okkar niður í bæ sá ég föt á Rúnu sem mig langaði svo í en voru of dýr en þér var margt til lista lagt, þegar ég kom í heimsókn næst varst þú búin að sauma þau. Það var allt ekkert mál hjá þér, þú bara gerðir það. Ásdís systir þín og þú voruð alltaf mjög nánar og birtust hún og Óli nánast á hverjum degi. Alltaf var til nóg af bakkelsi og pönnukökurnar þínar hurfu ofan í okkur beint af pönnunni en þú gleymdir aldrei að gera nokkrar dökkar handa tengdapabba. Minnis- stæðar eru sumarbústaðarferð- irnar í Húsafell sem ég fór með ykkur, fyrst með Rúnu Lís og síðar Hjördísi og voru Frissi og Sigrún iðulega með. Oftast var ég eftir þó Ási færi heim að vinna, því þú elskaðir að hafa fólk í kringum þig og við elsk- uðum að vera í nærveru þinni. Þegar Emil Örn fæddist varð ég veik en þú dróst heila skírnaveislu fram úr erminni – já þér var margt til lista lagt. Samdir ljóð, saumaðir, prjón- aðir, passaðir og jóla- og afmæl- iskort þín eru mér geimsteinar því mikið var í þau lagt og þau voru svo persónuleg. Seinni árin var ekki frí nema Ási sonur þinn kæmist til þín að spila en það var eitthvað sem ég nennti ekki svo þú geymdir barnakrossgátur handa mér. Þér fannst líka bara hlýlegt þegar ég hraut í stofusófanum og sagðir oft: „Nú líður Dag- nýju vel.“ Þegar þú fluttir svo af Faxabrautinni tókstu kaffi- bollana okkar með þó þeir væru ekki þeir fallegustu. Með þess- um litlu hlutum gerðir þú okkur öll einstök. Leiddu mig heim í himin þinn hjartkæri elsku Jesús minn. Láttu mig engla ljóssins sjá er líf mitt hverfur jörðu frá. (Rósa B. Blöndals) Hvíldu í friði, elsku Rúna. Þín Dagný. Eftir tvo mánuði komum við til Íslands að hitta yndislega fólkið okkar og kynna nýjasta meðliminn í fjölskyldunni okk- ar, en engin amma Rúna heima til þess að spila rommý við, fá kaffi og með því, enginn bleikur sófi til að kúra. Elsku amma, það verður svo tómlegt að koma heim og fá ekki að taka utan um þig og kyssa. En minning- arnar um þig fæ ég alltaf að eiga og þær eru margar, man hversu gaman var að fara til ömmu og afa um helgar á Fax- abrautinni, maður hljóp upp stigann eins og fætur toguðu, opnaði dyrnar og þar varstu, alltaf, með svuntu, að undirbúa veislu bara af því að, tilefnið var bara að borða á sig gat hjá ömmu og afa. Í stofunni sat afi með strákana sína sem sátu og öskruðu á sjónvarpið, allir hver í sinni fótboltatreyjunni, á með- an þú dekkaðir upp fínu stofuna og hentist öðru hverju eftir kaffi fyrir afa og sykursjúkling- urinn ég gat ekki beðið eftir að þú kallaðir „gjörið svo vel“. Þetta er ein af mörgum minn- ingum sem ég á alltaf eftir að eiga, þú að dekra við allt ríki- dæmið þitt sem er nú alls ekki lítið. Ég elska þig svo mikið og á eftir að sakna þín svo, en nú er komið að því að afi fái smá dekur aftur og Siggi fái að taka utan um mömmu sína. Einar Aron sér til þess að Mikael læri rommý og við sjáum til þess að segja honum sögur af þér og afa og svo von- andi einn daginn þá fæ ég að vera amma Rúna sem þú varst í mínu hjarta og að barnabörnin mín horfi á mig sömu augum og við horfðum á þig. Elskum þig, elsku amma, alltaf. Rúna Lís, Einar Már, Einar Aron og Mikael Már. Get ég sett í orð þann kær- leika, skilning, einlægni og ást sem amma mín hafði í brjósti sér, og er nú í að springa í brjósti mér. Að vera góð mann- eskja er ekki sjálfgefið. Að sýna öllum og öllu umburðarlyndi og aldrei dæma. Hún þóttist ekki skilja það sem hún skildi ekki, og settist aldrei á háan hest. Betri vin og trúnaðarmann er ekki hægt að hugsa sér. Hásæti á hún svo sannarlega skilið, skreytt öllum hinu feg- urstu steinum. Veit ég að henn- ar hásæti vorum við, börnin hennar, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Við vorum hennar gersemar. Og hún er okkar. Hún var fullkomlega laus við efnishyggju, af þeim skóla að það sem hana vantaði og langaði í gerði hún sjálf. Dugleg og iðin. Að sjá gleði og ánægju í aug- um hennar var það dýrmætasta, því ekki þurfti mikið til. Að sjá blómin sín springa út, að fá að gefa okkur smákökur, pönnu- kökur og annað góðgæti töfrað fram úr hennar ermi, að spila við okkur tímunum saman. Að finna gleði og fegurð í hvers- dagsleikanum. Það tek ég mér til fyrirmyndar. Nú hefur sálin hennar kvatt þennan heim en ég veit að hún er núna í einhverjum öðrum heimi, heimi sem kann enn bet- ur að meta hennar fallegu sál þar sem hún valhoppar á milli fallegra blóma, dansandi og syngjandi með ást í hjarta, með öllum þeim sem hún elskaði og farið hafa á undan henni á þann fagra stað. Ég elska þig óendanlega, amma mín. Og mun alla tíð sakna þín, það verður erfitt að kveðja líkama þinn, en með gleði og þakklæti í hjartanu mínu mun ég ætíð minnast þín. Takk fyrir að vera amma mín, yndislega góðhjartaða og fal- lega fyrirmyndin mín. Að eilífu. Ósk. Elsku amma Rúna. Þú varst svo rík. Þó ekki af einhverju veraldlegu drasli – heldur rík af fólki. Fólki sem þú lifðir fyrir og ég er svo þakk- látur og blessaður að vera einn af þessu fólki. Þú lifðir svo vel og ríkulega í öllum lífsins skiln- ingi. Mér er í svo ferskur minni sunnudagurinn áður en þú kvaddir, þegar við vorum sam- an komin um það bil tíu manns úr stóra hópnum þínum inni á sjúkrastofunni að hlæja saman, segja sögur og gera góðlátlegt grín að hvert öðru. Þar kristall- aðist kjarninn í því sem það þýðir fyrir mig að vera partur af þessari stóru fjölskyldu. Mér fannst ég soldið vera kominn aftur á Faxabrautina þar sem alltaf var gestagangur, ef ein- hver fór þá kom alltaf einhver annar í heimsókn í sömu andrá. Þú varst líka svo ótrúleg kona. Hversdagshetja og salt jarðar. Með hjarta sem hefði leyft þér að lifa í þrjúhundruð ár ef restin af litla kroppnum þínum hefði boðið upp á það. Bestu gjafir sem lífið hefur gefið mér eru dóttir mín og nafnið þitt. Ég er stoltur að heita eftir þér og ég er svo glaður og þakklátur að þú hafir komið norður til okkar og verið viðstödd skírnina hennar Ronju. Þú varst svo yndisleg og allir sem hittu þig þar höfðu á orði við mig hvað hún amma mín væri frábær og yndisleg. Ef ég get gefið áfram til Ronju brot af þeim kærleik og hlýju sem þú gafst þá veit ég að henni vegnar vel. Rúnar. Þakklæti er mér efst í huga fyrir að hafa stórkostlega hversdagshetju í lífi mínu í rúm 40 ár, allar dásamlegu minning- arnar af okkar leið í gegnum líf- ið fylla hjartað mitt af gleði og deyfa þann óbærilega sársauka og sorg sem er í hjarta mínu núna. Ég flaug hálfan hnöttinn, elsku amma, til að vera hjá þér á erfiðri stundu og þú sýndir hetjudáð og sjarmeraðir okkur fjölskylduna, hjúkrunarfólkið og læknana með þinni einstöku ljúfmennsku og dugnaði. Þegar ég þurfti svo að skreppa aftur út í þrjár vikur þá lofaðir þú að „halda þig á mottunni“. Það gerðir þú en aðeins sólarhring eftir komu mína aftur til þín þá gastu ekki meir. Takk fyrir að bíða eftir mér, elsku gull, kveðjustundin var jafnfalleg og lífið þitt. Stund sem ég gleymi aldrei frekar en öllum samveru- stundum okkar. Hjartað þitt var nógu stórt og fallegt fyrir alla sem á vegi þínum urðu. Þú varst mín trúnaðarvinkona ég veit bara hreinlega ekki hvernig lífið verður án þín því þú áttir svo stóran þátt í því. Ef ég get verið partur af þeirri góðu manneskju sem þú varst þá get ég vel við unað. Takk fyrir að kenna mér að elska, fyrirgefa, hekla, leika, spila, gráta, syrgja, treysta. Takk fyrir að vera amma mín. Takk fyrir að vera Skúla og Elmari yndisleg langamma, takk fyrir að vera vinkona Smára. Þeir elska þig og sakna. Ég trúi að núna sértu hjá afa, Sigga, Guðjóni litla og öllum hinum fallegu englunum, Ég sé fyrir mér dúllulega vinkið þitt sem ég fékk í hvert skipti sem ég skutlaði þér heim. Ég elska þig alltaf. Þín ömmu- stelpa, Bára Skúla. Elsku fallega amma mín. Ég sit hér með kökk í háls- inum og trúi varla að ég sé að skrifa, tala, til þín síðasta skipt- ið. Orð fá því ekki lýst hversu mikils virði þú ert mér. Allt frá fyrstu stundu þegar mamma kom með mig til ykkar á Fax- abrautina og til síðustu stundu varstu og verður alltaf ein af mikilvægustu manneskjum í mínu lífi. „Félagsheimilið“ á Fax- abrautinni var sá staður sem flestum þótti best að vera. Ég er ekki viss um að það sé mjög algengt að vera úti að leika með vinum sínum ca. 7-12 ára gömul og það er beðið um að fara heim til ömmu þinnar í leiki, heimsins bestu pönnukökur og spil. En þetta var hér um bil daglegur viðburður hjá mér og það voru allir alltaf velkomnir, hvort sem ég dró með mér tvo eða tíu vini þá var aldrei neitt mál og það var svo lýsandi fyrir þig, elsku amma mín. Svo í seinni tíð var ég svo heppin að amma var ekki bara amma, heldur ein af mínum bestu vinkonum. Ég er svo þakklát fyrir allar þær stundir sem ég fékk að eiga með þér. Kvöldsögurnar, allir tónleikarn- ir, leikhúsferðirnar, Stokk- hólmsferðin, útilegurnar og allt annað sem ég fékk að gera með þér voru yndislegir tímar sem ég mun alltaf meta mikils en það sem ég mun sakna mest eru samtölin okkar yfir kaffibolla og spili eða klukkutíma löngu sím- tölin sem enduðu yfirleitt alltaf á: „Jæja, þetta fer nú vera gott af blaðri í okkur.“ Þú varst besta trúnaðarvinkona sem hægt var að hugsa sér og í stað- inn fyrir að vera rifja upp fleiri minningar hér, sem eru svo margar, þá langar mig að fá að þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur gefið mér og kennt. Takk fyrir að vera alltaf til staðar og leyfa mér alltaf að vera ég sjálf. Takk fyrir að kenna mér hversu mikils virði þolinmæðin og tillitsemi í garð annarra er. Takk fyrir að kenna mér að það er aldrei í boði að gefast upp. Takk fyrir alla hvatninguna og hrósið. Takk fyrir hlýju faðmlögin. Takk fyr- ir að segja mér alltaf hversu mikið þú elskaðir mig. Takk fyrir allt yndislega fólkið þitt. Takk fyrir að hafa alltaf tíma fyrir okkur. Takk fyrir alla kaffibollana og spilin. Takk fyrir allar sög- urnar. Takk fyrir sönginn. Takk fyr- ir að hafa verið heimsins besta amma, alltaf. En ég vil sérstaklega þakka þér fyrir að hafa kennt mér að sauma. Þú ert ástæðan fyrir því að saumaskapurinn er svona stór partur af mér og stefnan var tekin á klæðskerann, eftir mikla leit að því hvað ég ætti nú að verða þegar ég væri orðin stór. Takk fyrir að hafa verið til. Svo vertu viss um að láta fólk vita, hversu vænt þér þykir um það. Gefðu þér tíma til að láta fólk vita, áður en allt er um seinan og þú horfinn á annan stað. Vertu öruggur um að virða allt sem þú hefur átt, vertu þakklátur fyrir alla litlu hlutina á leiðinni, mergurinn er því það skiptir miklu að lifa í sátt, Mætast í friði á litríkri heiðinni. (Júlíus Guðmundsson/ RúnarJúlíusson) Þín ömmustelpa að eilífu, Aldís Lind. Guðrún Emilsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.