Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 65
MINNINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
RÍKARÐUR PÁLSSON
tannlæknir,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut þriðjudaginn 12. apríl.
Jarðarför auglýst síðar.
.
Selma Hannesdóttir,
Hannes Ríkarðsson, Hella Willig,
Smári Ríkarðsson, Hrafnhildur Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir, systir, frænka, amma og
langamma,
HAFDÍS ÁRNADÓTTIR
HILDIGUNNARSSON
frá Grindavík,
lést á heimili dóttur sinnar í Greenfield,
Massachusetts, 7. apríl síðastliðinn.
Minningarathöfn verður haldin síðar.
.
Herdís Eriksson,
Heba Árnadóttir Theriault, Belinda Theriault,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
ERLA KRISTINSDÓTTIR,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Siglufirði, sunnudaginn 3. apríl 2016.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 16. apríl klukkan 14.
.
Guðlaugur Henriksen,
Sigrún G. Henriksen, Petter Stokke,
Ásta Henriksen,
Ólafur H. Henriksen, Lilja Sveinsdóttir,
Elín Henriksen, Bjarni Sv. Ellertsson.
Ástkær móðir okkar,
SIGRÍÐUR BÁRÐARDÓTTIR
frá Jarðlangsstöðum í Mýrasýslu,
sem andaðist þriðjudaginn 5. apríl á
Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsungin frá
Borgarneskirkju föstudaginn 15. apríl
klukkan 13. Jarðsett verður að Borg á Mýrum.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Sigríður Bára Einarsdóttir,
Þuríður Einarsdóttir,
Kristín Einarsdóttir,
Fanney Einarsdóttir
og Jóhannes Guðmundur Einarsson.
✝ Guðrún Emils-dóttir fæddist
30. júlí 1930 í
Brekku á Hánefs-
staðareyrum við
Seyðisfjörð. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
4. apríl 2016.
Hún var dóttir
hjónanna Guðnýjar
Helgu Guðmunds-
dóttur og Emils
Theódórs Guðjónssonar. Þeim
Guðnýju og Emil varð tólf barna
auðið og var Guðrún, eða Rúna
eins og hún var alltaf kölluð,
næstyngst. Nú þegar Rúna er
fallin frá eru aðeins tvö systk-
inanna eftirlifandi, það er Val-
gerður, sem búsett er á Seyðis-
firði og á fáeina mánuði eftir í
að fagna 100 ára afmæli, og
Friðrik sem er búsettur í
Reykjavík. Þá lifa hana einnig
tvær uppeldissystur, þær Rún
Pétursdóttir, búsett í Grindavík,
og Jóhanna Júlía Júlíusdóttir,
búsett í Keflavík.
Hermann Sigurðsson, eigin-
maður Guðrúnar, var fæddur
19. júní 1930, hann lést 1. nóv-
ember 2009. Synir Guðrúnar og
Hermanns eru: 1) Skúli Hafþór,
kvæntur Jóhönnu Egilsdóttur,
þau eiga tvö börn og fjögur
barnabörn. 2) Helgi
Þór, kona hans er
Sigríður Rósa
Laufeyjardóttir,
börn þeirra eru
fimm og barnabörn
eru þrjú. 3) Sig-
urður Örn, sem lést
14. ágúst 2007,
hann var kvæntur
Ölmu Tómasdóttur,
þau eiga þrjá syni.
4) Emil Ásólfur,
kvæntur Dagnýju Kjærnested,
þau eiga þrjú börn og fimm
barnabörn. 5) Hermann Rúnar,
kvæntur Karólínu Júlíusdóttur,
þau eiga þrjú börn. 6) Margeir,
kvæntur Irenu Auði Péturs-
dóttur, börn þeirra eru fjögur
og eitt barnabarn.
Dóttir Guðrúnar og Árna
Stefánssonar er Hjördís. Hún á
þrjú börn og tvö barnabörn.
Börn Hermanns sem hann
átti áður eru: a) Katrín, gift Jóni
Magnússyni, þau eiga tvær dæt-
ur og fimm barnabörn. b) Egill,
hann á sex börn, tvo fóstursyni
og barnabörnin eru fjögur. c)
Elsa Katrín.
Einnig átti Hermann soninn
Ellert.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 14. apríl
2016, klukkan 13.
Móðir mín og minn besti vin-
ur er látin. Vinátta okkar var
svo einstök og minningarnar
svo kærar að ekki verður mikið
pláss fyrir tómarúm í hjarta
mínu.
Mamma var hvunndagshetja,
æðrulaus, umburðarlynd og
kærleiksrík. Eins og sannar
hvunndagshetjur vann hún verk
sín hljóð. Það væri efni í marg-
ar bækur að telja þau upp og
ekki í hennar anda, hún vildi
aldrei berast á. Vegna eigin-
leika sinna snerti hún hjörtu
allra sem kynntust henni.
Mamma var fyrirmynd um heið-
arleika, umburðarlyndi og hóg-
værð og hefur kennt okkur af-
komendum sínum hvað það er
sem skiptir máli í lífinu.
Takk, elsku mamma mín, fyr-
ir lífið mitt. Ég veit að þú dans-
ar nú inni í eilífðinni eins og þú
ætlaðir þér.
Dansi, dansi mamma mín,
dásamlega ertu fín.
Dansar inn í himininn,
við hann elsku pabba minn.
Nú ert þú á dansskónum,
vængjum prýdd í gullkjólum.
Öllum englum finnst þú fín,
dansi, dansi mamma mín.
Þín elskandi dóttir,
Hjördís.
Ég var 15 ára þegar ég og
Ási byrjuðum að vera saman.
Við byrjuðum okkar búskap í
kjallaranum á Túngötunni hjá
ykkur tengdapabba. Við vorum
lítið niðri, hlýja þín og hófsemi
dró fólk að þér. Barnabörnin
fengu að baka með þér, ærslast
og lærðu ljóð með þér. Mér
fannst þolinmæði þín yndisleg,
betri tengdamömmu hefði ég
ekki getað átt. Ég ákvað ung að
svona amma ætlaði ég að vera.
Ég eignaðist Rúnu Lís 19 ára.
Á göngu okkar niður í bæ sá ég
föt á Rúnu sem mig langaði svo
í en voru of dýr en þér var
margt til lista lagt, þegar ég
kom í heimsókn næst varst þú
búin að sauma þau. Það var allt
ekkert mál hjá þér, þú bara
gerðir það. Ásdís systir þín og
þú voruð alltaf mjög nánar og
birtust hún og Óli nánast á
hverjum degi. Alltaf var til nóg
af bakkelsi og pönnukökurnar
þínar hurfu ofan í okkur beint
af pönnunni en þú gleymdir
aldrei að gera nokkrar dökkar
handa tengdapabba. Minnis-
stæðar eru sumarbústaðarferð-
irnar í Húsafell sem ég fór með
ykkur, fyrst með Rúnu Lís og
síðar Hjördísi og voru Frissi og
Sigrún iðulega með. Oftast var
ég eftir þó Ási færi heim að
vinna, því þú elskaðir að hafa
fólk í kringum þig og við elsk-
uðum að vera í nærveru þinni.
Þegar Emil Örn fæddist varð
ég veik en þú dróst heila
skírnaveislu fram úr erminni –
já þér var margt til lista lagt.
Samdir ljóð, saumaðir, prjón-
aðir, passaðir og jóla- og afmæl-
iskort þín eru mér geimsteinar
því mikið var í þau lagt og þau
voru svo persónuleg. Seinni árin
var ekki frí nema Ási sonur
þinn kæmist til þín að spila en
það var eitthvað sem ég nennti
ekki svo þú geymdir
barnakrossgátur handa mér.
Þér fannst líka bara hlýlegt
þegar ég hraut í stofusófanum
og sagðir oft: „Nú líður Dag-
nýju vel.“ Þegar þú fluttir svo
af Faxabrautinni tókstu kaffi-
bollana okkar með þó þeir væru
ekki þeir fallegustu. Með þess-
um litlu hlutum gerðir þú okkur
öll einstök.
Leiddu mig heim í himin þinn
hjartkæri elsku Jesús minn.
Láttu mig engla ljóssins sjá
er líf mitt hverfur jörðu frá.
(Rósa B. Blöndals)
Hvíldu í friði, elsku Rúna.
Þín
Dagný.
Eftir tvo mánuði komum við
til Íslands að hitta yndislega
fólkið okkar og kynna nýjasta
meðliminn í fjölskyldunni okk-
ar, en engin amma Rúna heima
til þess að spila rommý við, fá
kaffi og með því, enginn bleikur
sófi til að kúra. Elsku amma,
það verður svo tómlegt að koma
heim og fá ekki að taka utan
um þig og kyssa. En minning-
arnar um þig fæ ég alltaf að
eiga og þær eru margar, man
hversu gaman var að fara til
ömmu og afa um helgar á Fax-
abrautinni, maður hljóp upp
stigann eins og fætur toguðu,
opnaði dyrnar og þar varstu,
alltaf, með svuntu, að undirbúa
veislu bara af því að, tilefnið var
bara að borða á sig gat hjá
ömmu og afa. Í stofunni sat afi
með strákana sína sem sátu og
öskruðu á sjónvarpið, allir hver
í sinni fótboltatreyjunni, á með-
an þú dekkaðir upp fínu stofuna
og hentist öðru hverju eftir
kaffi fyrir afa og sykursjúkling-
urinn ég gat ekki beðið eftir að
þú kallaðir „gjörið svo vel“.
Þetta er ein af mörgum minn-
ingum sem ég á alltaf eftir að
eiga, þú að dekra við allt ríki-
dæmið þitt sem er nú alls ekki
lítið. Ég elska þig svo mikið og
á eftir að sakna þín svo, en nú
er komið að því að afi fái smá
dekur aftur og Siggi fái að taka
utan um mömmu sína.
Einar Aron sér til þess að
Mikael læri rommý og við
sjáum til þess að segja honum
sögur af þér og afa og svo von-
andi einn daginn þá fæ ég að
vera amma Rúna sem þú varst í
mínu hjarta og að barnabörnin
mín horfi á mig sömu augum og
við horfðum á þig.
Elskum þig, elsku amma,
alltaf.
Rúna Lís, Einar Már, Einar
Aron og Mikael Már.
Get ég sett í orð þann kær-
leika, skilning, einlægni og ást
sem amma mín hafði í brjósti
sér, og er nú í að springa í
brjósti mér. Að vera góð mann-
eskja er ekki sjálfgefið. Að sýna
öllum og öllu umburðarlyndi og
aldrei dæma. Hún þóttist ekki
skilja það sem hún skildi ekki,
og settist aldrei á háan hest.
Betri vin og trúnaðarmann er
ekki hægt að hugsa sér.
Hásæti á hún svo sannarlega
skilið, skreytt öllum hinu feg-
urstu steinum. Veit ég að henn-
ar hásæti vorum við, börnin
hennar, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn. Við vorum
hennar gersemar. Og hún er
okkar. Hún var fullkomlega
laus við efnishyggju, af þeim
skóla að það sem hana vantaði
og langaði í gerði hún sjálf.
Dugleg og iðin.
Að sjá gleði og ánægju í aug-
um hennar var það dýrmætasta,
því ekki þurfti mikið til. Að sjá
blómin sín springa út, að fá að
gefa okkur smákökur, pönnu-
kökur og annað góðgæti töfrað
fram úr hennar ermi, að spila
við okkur tímunum saman. Að
finna gleði og fegurð í hvers-
dagsleikanum. Það tek ég mér
til fyrirmyndar.
Nú hefur sálin hennar kvatt
þennan heim en ég veit að hún
er núna í einhverjum öðrum
heimi, heimi sem kann enn bet-
ur að meta hennar fallegu sál
þar sem hún valhoppar á milli
fallegra blóma, dansandi og
syngjandi með ást í hjarta, með
öllum þeim sem hún elskaði og
farið hafa á undan henni á þann
fagra stað.
Ég elska þig óendanlega,
amma mín. Og mun alla tíð
sakna þín, það verður erfitt að
kveðja líkama þinn, en með
gleði og þakklæti í hjartanu
mínu mun ég ætíð minnast þín.
Takk fyrir að vera amma mín,
yndislega góðhjartaða og fal-
lega fyrirmyndin mín. Að eilífu.
Ósk.
Elsku amma Rúna.
Þú varst svo rík. Þó ekki af
einhverju veraldlegu drasli –
heldur rík af fólki. Fólki sem þú
lifðir fyrir og ég er svo þakk-
látur og blessaður að vera einn
af þessu fólki. Þú lifðir svo vel
og ríkulega í öllum lífsins skiln-
ingi. Mér er í svo ferskur minni
sunnudagurinn áður en þú
kvaddir, þegar við vorum sam-
an komin um það bil tíu manns
úr stóra hópnum þínum inni á
sjúkrastofunni að hlæja saman,
segja sögur og gera góðlátlegt
grín að hvert öðru. Þar kristall-
aðist kjarninn í því sem það
þýðir fyrir mig að vera partur
af þessari stóru fjölskyldu. Mér
fannst ég soldið vera kominn
aftur á Faxabrautina þar sem
alltaf var gestagangur, ef ein-
hver fór þá kom alltaf einhver
annar í heimsókn í sömu andrá.
Þú varst líka svo ótrúleg
kona. Hversdagshetja og salt
jarðar. Með hjarta sem hefði
leyft þér að lifa í þrjúhundruð
ár ef restin af litla kroppnum
þínum hefði boðið upp á það.
Bestu gjafir sem lífið hefur
gefið mér eru dóttir mín og
nafnið þitt. Ég er stoltur að
heita eftir þér og ég er svo
glaður og þakklátur að þú hafir
komið norður til okkar og verið
viðstödd skírnina hennar Ronju.
Þú varst svo yndisleg og allir
sem hittu þig þar höfðu á orði
við mig hvað hún amma mín
væri frábær og yndisleg. Ef ég
get gefið áfram til Ronju brot
af þeim kærleik og hlýju sem
þú gafst þá veit ég að henni
vegnar vel.
Rúnar.
Þakklæti er mér efst í huga
fyrir að hafa stórkostlega
hversdagshetju í lífi mínu í rúm
40 ár, allar dásamlegu minning-
arnar af okkar leið í gegnum líf-
ið fylla hjartað mitt af gleði og
deyfa þann óbærilega sársauka
og sorg sem er í hjarta mínu
núna. Ég flaug hálfan hnöttinn,
elsku amma, til að vera hjá þér
á erfiðri stundu og þú sýndir
hetjudáð og sjarmeraðir okkur
fjölskylduna, hjúkrunarfólkið og
læknana með þinni einstöku
ljúfmennsku og dugnaði. Þegar
ég þurfti svo að skreppa aftur
út í þrjár vikur þá lofaðir þú að
„halda þig á mottunni“. Það
gerðir þú en aðeins sólarhring
eftir komu mína aftur til þín þá
gastu ekki meir. Takk fyrir að
bíða eftir mér, elsku gull,
kveðjustundin var jafnfalleg og
lífið þitt. Stund sem ég gleymi
aldrei frekar en öllum samveru-
stundum okkar. Hjartað þitt
var nógu stórt og fallegt fyrir
alla sem á vegi þínum urðu. Þú
varst mín trúnaðarvinkona ég
veit bara hreinlega ekki hvernig
lífið verður án þín því þú áttir
svo stóran þátt í því. Ef ég get
verið partur af þeirri góðu
manneskju sem þú varst þá get
ég vel við unað. Takk fyrir að
kenna mér að elska, fyrirgefa,
hekla, leika, spila, gráta, syrgja,
treysta. Takk fyrir að vera
amma mín. Takk fyrir að vera
Skúla og Elmari yndisleg
langamma, takk fyrir að vera
vinkona Smára. Þeir elska þig
og sakna. Ég trúi að núna sértu
hjá afa, Sigga, Guðjóni litla og
öllum hinum fallegu englunum,
Ég sé fyrir mér dúllulega vinkið
þitt sem ég fékk í hvert skipti
sem ég skutlaði þér heim. Ég
elska þig alltaf. Þín ömmu-
stelpa,
Bára Skúla.
Elsku fallega amma mín.
Ég sit hér með kökk í háls-
inum og trúi varla að ég sé að
skrifa, tala, til þín síðasta skipt-
ið.
Orð fá því ekki lýst hversu
mikils virði þú ert mér. Allt frá
fyrstu stundu þegar mamma
kom með mig til ykkar á Fax-
abrautina og til síðustu stundu
varstu og verður alltaf ein af
mikilvægustu manneskjum í
mínu lífi.
„Félagsheimilið“ á Fax-
abrautinni var sá staður sem
flestum þótti best að vera. Ég
er ekki viss um að það sé mjög
algengt að vera úti að leika með
vinum sínum ca. 7-12 ára gömul
og það er beðið um að fara heim
til ömmu þinnar í leiki, heimsins
bestu pönnukökur og spil. En
þetta var hér um bil daglegur
viðburður hjá mér og það voru
allir alltaf velkomnir, hvort sem
ég dró með mér tvo eða tíu vini
þá var aldrei neitt mál og það
var svo lýsandi fyrir þig, elsku
amma mín.
Svo í seinni tíð var ég svo
heppin að amma var ekki bara
amma, heldur ein af mínum
bestu vinkonum. Ég er svo
þakklát fyrir allar þær stundir
sem ég fékk að eiga með þér.
Kvöldsögurnar, allir tónleikarn-
ir, leikhúsferðirnar, Stokk-
hólmsferðin, útilegurnar og allt
annað sem ég fékk að gera með
þér voru yndislegir tímar sem
ég mun alltaf meta mikils en
það sem ég mun sakna mest eru
samtölin okkar yfir kaffibolla og
spili eða klukkutíma löngu sím-
tölin sem enduðu yfirleitt alltaf
á: „Jæja, þetta fer nú vera gott
af blaðri í okkur.“ Þú varst
besta trúnaðarvinkona sem
hægt var að hugsa sér og í stað-
inn fyrir að vera rifja upp fleiri
minningar hér, sem eru svo
margar, þá langar mig að fá að
þakka þér fyrir allt sem þú hef-
ur gefið mér og kennt.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar og leyfa mér alltaf að
vera ég sjálf. Takk fyrir að
kenna mér hversu mikils virði
þolinmæðin og tillitsemi í garð
annarra er. Takk fyrir að kenna
mér að það er aldrei í boði að
gefast upp. Takk fyrir alla
hvatninguna og hrósið. Takk
fyrir hlýju faðmlögin. Takk fyr-
ir að segja mér alltaf hversu
mikið þú elskaðir mig. Takk
fyrir allt yndislega fólkið þitt.
Takk fyrir að hafa alltaf tíma
fyrir okkur.
Takk fyrir alla kaffibollana
og spilin. Takk fyrir allar sög-
urnar.
Takk fyrir sönginn. Takk fyr-
ir að hafa verið heimsins besta
amma, alltaf.
En ég vil sérstaklega þakka
þér fyrir að hafa kennt mér að
sauma. Þú ert ástæðan fyrir því
að saumaskapurinn er svona
stór partur af mér og stefnan
var tekin á klæðskerann, eftir
mikla leit að því hvað ég ætti nú
að verða þegar ég væri orðin
stór.
Takk fyrir að hafa verið til.
Svo vertu viss um að láta fólk vita,
hversu vænt þér þykir um það.
Gefðu þér tíma til að láta fólk vita,
áður en allt er um seinan og þú
horfinn á annan stað.
Vertu öruggur um að virða allt sem
þú hefur átt,
vertu þakklátur fyrir alla litlu hlutina
á leiðinni,
mergurinn er því það skiptir miklu
að lifa í sátt,
Mætast í friði á litríkri heiðinni.
(Júlíus Guðmundsson/
RúnarJúlíusson)
Þín ömmustelpa að eilífu,
Aldís Lind.
Guðrún
Emilsdóttir