Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 62
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Uppþvottavélar - framleiddar í Þýskalandi 62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is „Ég hef alltaf stundað íþróttir af einhverju tagi, en byrjaði að hlaupa 2010 og kolféll svo fyrir utanvegahlaupum fyrir fjórum ár- um,“ segir Birgir Már Vigfússon, þjálfari Hlaupahóps Ármanns. „Ég valdi einmitt þennan hóp á sínum tíma því ég vissi að innan hans væru margir með áhuga á utan- vegahlaupum. Nú erum við um það bil 40 í hlaupahópnum, bæði konur og karlar, á aldrinum 30 til 55 ára. Þar er öll flóran, allt frá fólki sem er að koma beint af byrjenda- námskeiðum hjá Ármanni og yfir í reynda hlaupara sem hafa klárað nokkur 170 km fjallahlaup. Síðastliðið vor efndi ég í sam- starfi við Hlaupahóp Ármanns til Laugavegsnámskeiðs þar sem áherslan var á hlaupara sem stefndu að þátttöku í Laugavegs- hlaupinu sumarið 2015. Nám- skeiðið heppnaðist mjög vel og í ár erum við með nýtt námskeið á svipuðum nótum, fyrir þá sem kjósa að hlaupa utan vega og njóta um leið náttúrunnar eða stefna á þátttöku í einhverri utanvega- hlaupakeppni. Námskeiðið stendur í allt sumar, það er sniðið fyrir fé- laga í Hlaupahópi Ármanns og þar er alltaf pláss fyrir nýtt fólk.“ Mjúkt undirlag Hvernig kviknaði áhugi þinn á utanvegahlaupum? „Ég er fæddur og uppalinn á Hornafirði og stundaði ýmsar íþróttir þegar ég var yngri. Á ung- lingsárunum smitaðist ég af golf- bakteríunni og spilaði mikið, en fékk svo nóg um tvítugt. Þá þurfti ég að finna mér nýtt áhugamál og fyrir valinu varð þríþraut. Hún er hins vegar afar tímafrekt sport, ég ákvað að einfalda hlutina, hafði mestan áhuga á hlaupum og þann- ig leiddist ég út á þessa braut.“ Hvað heillar fólk mest við að hlaupa utan vega? „Sjálfum hefur mér alltaf fund- ist utanvegahlaup ofsalega skemmtilegt sport, ég upplifði það mjög sterkt þegar ég prófaði það í fyrsta sinn fyrir allnokkrum árum. Þegar áhuginn kviknaði svo fyrir alvöru 2012 varð ekki aftur snúið. Það er svo ótrúlega gaman að hlaupa á mjúku undirlaginu; í mold, sandi, grasi og þúfum, þjóta upp og niður skemmtilegar brekk- ur og yfir læki og grjót. Í utanvegahlaupum er maður alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í landslaginu, jafnvel þótt maður hlaupi oft sömu leiðina. Náttúran er síbreytileg og það fer allt eftir aðstæðum hverju sinni, veðri og birtu, hvernig maður upplifir hana. Skemmtilegast er að fara ótroðnar slóðir, velja sífellt nýjar hlaupa- leiðir og skoða ný svæði.“ Aukið sjálfstraust Geta allir æft utanvegahlaup? „Utanvegahlaup eru fyrir alla, það þarf bara að gæta þess að byrja rólega og komast markvisst, hægt og bítandi, í góða æfingu. Þetta snýst ekki um afrekshlaup. Utanvegahlaup ganga fyrst og fremst út á það að spretta úr spori utan alfaraleiðar, hafa það skemmtilegt með góðum hlaupa- félögum og njóta náttúrunnar.“ Hver er aðaláskorunin, í byrjun? „Mesta áskorunin er að koma sér af stað. Fyrir fólk sem er að byrja að hlaupa utan vega er mjög gott að fara hægt og rólega af stað, bæta síðan smávegis við tím- ann eða kílómetrana og passa að fara ekki of geyst eða vera með háleit markmið. Smátt og smátt eykst sjálfstraustið og maður fær þjálfun í því að hlaupa á ójöfnu undirlagi og bæði upp og niður brekkur á þægilegum hraða. Í ut- anvegahlaupum skiptir miklu máli að vera sterkur og með gott jafn- vægi, því eru styrktaræfingar mik- ilvægar og hitt kemur smátt og smátt, eftir því sem maður hleypur meira úti í náttúrunni við ólíkar aðstæður.“ Skór og Camelbak Hvaða útbúnaður er nauðsyn- legur fyrir utanvegahlaup? „Utanvegaskór eru grófari en þeir sem hlauparar nota á malbik- inu, en það er til þess að ná betra gripi í grófum jarðveginum. Sjálf- ur nota ég Asics-utanvegaskó. Fatnaður er meira smekksatriði, aðalatriðið er að eiga góðan, hlýjan og léttan fatnað. Við búum á Ís- landi og hér er allra veðra von, því er eiginlega nauðsynlegt að eiga regn- eða vindheldan jakka og góð- an ullarbol. Hlaupabuxur eru til í miklu úr- vali, mér finnst best að hlaupa í CW-X compression buxum með styrkingum fyrir mjóbak og kálfa. Nauðsynlegt er að hugsa um að innbyrða næga orku og vökva á æfingum, sérstaklega lengri æfing- unum og vera þá með Camelbak- vesti eða brúsabelti til að geyma dótið sitt í.“ Hvernig er utanvegahlaupaæf- ingum háttað hjá Ármanni – er hægt að bætast í hópinn? „Utanvegahlaup er klárlega vax- andi sport á Íslandi, ég finn fyrir miklum áhuga hjá útivistarfólki og það eru allir velkomnir til okkar í Hlaupahóp Ármanns. Við hittumst á þriðjudögum og fimmtudögum eftir vinnu, oftast við Laugardals- höll og hlaupum þaðan. Á mánu- dagskvöldum er fjallaæfing, þá er Úlfarsfellið vinsælt, og á föstudög- um eru styrktaræfingar sem hlauparar gera saman eða sjálfir heima. Á laugardagsmorgnum eru lengri utanvegaæfingar og þá hitt- umst við fyrir utan höfuðborgar- svæðið, oft í Heiðmörk.“ Hengill-Ultra Stefnir hlaupahópurinn að þátt- töku í keppnum? „Hér á Íslandi er boðið upp á mörg skemmtileg utanvegahlaup, þau helstu eru Esja-Ultra, Snæ- fellsjökulshlaupið, Laugavegurinn, Hvítasunnuhlaupið, Hengill-Ultra, Jökulsárhlaupið og Vesturgata. Það er alltaf freistandi að taka þátt í keppnum og margir æfa með það fyrir augum, þar á meðal ég. Hlaupahópur Ármanns hefur undanfarin ár efnt til hópferðar í tengslum við Laugavegshlaupið. Enda þótt hlauparar hafi ekki endilega sjálfir tekið þátt hafa þeir fjölmennt á staðinn og aðstoðað hina, keyrt þá á áfangastað og síð- an tekið á móti þeim í Húsadal með tilheyrandi fagnaðarlátum og grillveislu í Básum. Fyrir þá sem hafa áhuga á því að fræðast nánar um utanvega- hlaup á vegum Hlaupahóps Ár- manns, og langar jafnvel að slást í hópinn, er best að hafa samband með því að senda tölvupóst á: hlaupahopur@frjalsar.is“ Stokkið á milli steina  Hlaupahópur Ármanns stundar markvissar æfingar í utanvegahlaupum og margir stefna að þátttöku í helstu keppnum sumarsins  Þjálfari hópsins segir utanvegahlaup vera góða heilsurækt og skemmtilega áskorun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lífsgæði „Mesta áskorunin er að koma sér af stað. Fyrir fólk sem er að byrja að hlaupa utan vega er mjög gott að fara hægt og rólega af stað, bæta síðan smávegis við tímann eða kílómetrana, og passa að fara ekki of geyst eða vera með háleit markið.“ Töfrarnir Birgir Már Vigfússon, þjálfari Hlaupahóps Ármanns: „Í utanvega- hlaupum er maður alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í landslaginu, jafnvel þótt maður hlaupi oft sömu leiðina. Náttúran er síbreytileg og það fer allt eftir aðstæðum hverju sinni, veðri og birtu, hvernig maður upplifir hana.“ ÍÞRÓTTIRog útivist
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.