Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 53
UMRÆÐAN 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Módel: Hrönn Johannsen Gleraugu: Lindberg – NÝTT MERKI HJÁ OPTICAL STUDIO MÓDEL: HRÖNN JOHANNSEN GLERAUGU: BOTTEGA VENETA Vegna mikillar sölu vantar okkur fasteignir á höfuðborgarsvæðinu, á söluskrá. Ef þú ert í söluhugleiðingum, endilega hafðu samband sem fyrst, í síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign, hafðu samband í síma 533-4200 eða arsalir@arsalir.is Ágæti fasteigna eigandi ! Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi. Liðinn aldarfjórð- ung hafa kjölfestufjár- festar haft forystu um uppbyggingu og rekst- ur HB Granda hf. Ár- angur framsýnnar stjórnarstefnu þeirra, öflugra stjórnenda og starfsmanna kemur fram í afkomu síðasta árs, en þá skilaði fé- lagið einum besta rekstrarárangri frá upphafi. Á aðalfundi HB Granda hf. þann 1. apríl sl. birtist ágreiningur vegna kröfu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um margfeldiskosningu við stjórn- arkjör. Vegna þessa drógu allir nú- verandi stjórnarmenn félagsins til baka framboð sín til stjórnar og vildu með því skapa svigrúm til að eiga frekari viðræður við stjórn Líf- eyrissjóðsins. Stjórn HB Granda hf. leitaði þannig eftir skýringu frá stjórn Lífeyrissjóðsins á þeim atrið- um sem hún er ósátt með í stjórnun og rekstri HB Granda hf., sem valda því að Lífeyrissjóðurinn telur sig knúinn til að nýta lagaákvæði um einskonar neyðarrétt minni- hluta til að krefjast margfeldis- kosninga. Séríslenskt lagaákvæði um margfeldiskosningar Kjör til stjórna í hlutafélögum fer eftir 63. grein hlutafélagalaga nr. 2 frá 1995. Samkvæmt lögum hér á landi og erlendis er algengast að viðhafa meirihlutakosningu við kjör til stjórnar í hlutafélögum. Í ís- lenskum hlutafélagalögum er hins vegar sérstakt ákvæði um marg- feldiskosningar en ákvæði um slíkt form kosninga er ekki í lög- um á hinum Norður- löndunum né öðrum helstu nágrannalöndum okkar. Tilgangur þessa lagaákvæðis er að „auka vernd minni- hluta“, og hefur vænt- anlega einkum verið beitt þegar rekstur fé- lags gengur illa eða mikill ágreiningur hef- ur verið meðal hluthafa um starfsemi félags. Ágreiningur stjórnar HB Granda hf. og stjórnar Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna snýr einkum að tveimur atriðum:  Annars vegar hvort eðlilegt geti talist að stjórn Lífeyris- sjóðs verzlunarmanna beiti vog- arafli séríslensks lagaákvæðis um margfeldiskosningar til að þrýsta „sínum fulltrúa“ inn í stjórn vel rekins fyrirtækis, í stað þess að fylgja almennum reglum um meirihlutakosningu eins og venja er að viðhafa við stjórnarkjör í hlutafélögum hérlendis og í okkar helstu ná- grannalöndum.  Hinsvegar hvort eðlilegt geti talist að stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna skipi eigin stjórnarmenn í stjórnir þeirra fyrirtækja þar sem sjóðurinn er hluthafi, í stað þess að velja þá hæfustu einstaklinga sem mest- ur ávinningur er fyrir viðkom- andi hlutafélag að fá til starfa í sína stjórn. Flestir aðrir lífeyr- issjóðir heimila ekki slíka stjórnarhætti. Ný stjórn tók við í Lífeyrissjóði verzlunarmanna þann 15. mars sl. og eru nú allir átta stjórnarmenn nýir í stjórn. Fyrri stjórn Lífeyris- sjóðsins hafði tekið ákvörðun um að krefjast margfeldiskosningar og að stjórnarmaður í Lífeyrissjóðnum yrði fulltrúi sjóðsins í framboði til stjórnar HB Granda hf. Nýja stjórnin hafði því hvorki komið að ákvörðun um margfeldiskosningu né framboð. Óskað var því eftir að ný stjórn Lífeyrissjóðsins myndi endurmeta afstöðu fyrri stjórnar og fylgja þá vandaðri stjórnarháttum. Í yfirlýsingu frá 7. apríl sl. kemur fram að nýja stjórnin heldur sig að fullu við ákvörðun fyrri stjórnar. Þau svör koma á óvart og eru vissulega vonbrigði. Ábyrgð samtaka atvinnurekenda Lífeyrissjóðir eru hálfopinberar stofnanir. Sjóður eins og Lífeyris- sjóður verzlunarmanna starfar samkvæmt sérstökum lögum nr. 129 frá 1997. Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er skipuð átta mönnum. Fjórir eru tilnefndir af stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og fjórir tilnefndir af eftirtöldum samtökum atvinnurek- enda: Félagi atvinnurekenda, Kaupmannasamtökum Íslands, Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Nú virðist svo vera að fulltrúar sem tilnefndir eru af samtökum at- vinnurekenda í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafi einkum notið stuðnings Lífeyrissjóðsins til að ná kjöri í stjórnum hinna ýmsu hluta- félaga, en ekki fulltrúar tilnefndir af Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Þessir fjórir fulltrúar atvinnurek- enda sitja í stjórn Lífeyrissjóðsins í umboði ofangreindra samtaka. Í ljósi þess er hér með óskað eftir op- inberri afstöðu frá stjórn hvers og eins þessara samtaka atvinnurek- enda við þeim tveimur atriðum sem ágreiningur er um milli stjórnar HB Granda hf. og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, og lýst er hér að ofan. Væntingar um vandaðri stjórn- arhætti Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna Lífeyrissjóðir eru mikilvægar stofnanir og er gerð til þeirra rík krafa um vandaða stjórnarhætti, siðferði og háttvísi. Eignir lífeyris- sjóða nema yfir 3.000 milljörðum króna og eru lífeyrissjóðir í heild því lang-, langstærstu fjárfestar í fyrirtækjum sem skráð eru á ís- lenskan hlutabréfamarkað. Enginn ágreiningur er um að líf- eyrissjóðir hafa fullan rétt til að nota atkvæðastyrk sinn með virkum hætti á hluthafafundum og komi ábendingum sínum um rekstur, stefnu og stjórnarhætti til stjórnar og forstjóra hlutafélaga þar sem þeir eru hluthafar. Staða, stærð og afl lífeyrissjóða gera hins vegar enn ríkari kröfur um háttvísi þeirra gagnvart umhverfinu en gerðar eru til hins almenna fjárfestis á mark- aði. Lífeyrissjóður verzlunarmanna getur því ekki látið í veðri vaka að hann sé undirokaður minnihluti sem ekkert tillit sé tekið til og sjái því þá einu leið færa gagnvart hluta- félögum á markaði að nýta sér vog- arafl margfeldiskosningar til að þvinga fram áform sín. Ýmsir aðrir líta á slíka framkomu sem misnotk- un á þessu lagaákvæði og óeðlilega framkomu í okkar samfélagi. Eftir Þórð Sverrisson Þórður Sverrisson »Er eðlilegt að Líf- eyrissjóður verzl- unarmanna beiti vog- arafli séríslensks lagaákvæðis um marg- feldiskosningar til að þrýsta „sínum fulltrúa“ í stjórn? Höfundur er stjórnarmaður í HB Granda hf. Gegndi áður starfi for- stjóra Nýherja hf. og framkvæmda- stjóra hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands. Ábyrgð og meðferð á valdi lífeyrissjóða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.