Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á allt
ÍÞRÓTTIRog útivist
kveðst fyrst hafa hjólað þennan
hring í kringum árið 2000. „Leiðin
liggur eftir stígum á Hólmsheiðinni
og á svæðinu kringum Rauðavatn.
Þetta eru einkum malarstígar, sum-
ir svolítið grófir, og á köflum er hjól-
að inn í Rauðavatnsskóginn þar sem
fara þarf yfir stöku trjárætur. Þeg-
ar mótið fer fram eru stígar orðnir
vel pakkaðir og hringurinn ekki
mjög tæknilega krefjandi.“
Áhorfendavæn keppni
Sú leið sem keppendur fara
myndar tæplega 7 km langan hring.
A-flokkur karla hjólar fjóra hringi,
A-flokkur kvenna þrjá hringi og B-
flokkur og unglingaflokkur spreyta
sig á tveimur hringjum. Allir leggja
af stað á sama tíma en Bjarki segir
að fljótlega skilji þeir hraðskreiðu
sig frá þeim sem hægar hjóla og
engin örtröð sé á leiðinni. „Það gerir
þetta mót líka mjög áhorfendavænt
að farinn er stuttur hringur nokkr-
um sinnum, frekar en langur hring-
ur einu sinni. Á einum kafla skarast
tveir hlutar leiðarinnar og er það
góður staður til að fylgjast með hjól-
reiðafólkinu koma úr öllum áttum.“
Keppninni er stýrt af Hjólreiða-
félagi Reykjavíkur og hefst kl. 18.
Lýkur deginum með verðlaunathöfn
í húsakynnum Morgunblaðsins í Há-
degismóum en blaðið er aðal-
styrktaraðili viðburðarins. „Hver
sem er getur tekið þátt, og um að
gera fyrir áhugasama að prufa og
sjá hvernig upplifun það er að taka
þátt í keppni af þessu tagi. Til að ár-
angurinn á mótinu telji upp í bikar-
mótaröðina þarf keppandi að vera
skráður í hjólreiðafélag innan ÍSÍ,“
útskýrir Bjarki. Má skrá þátttöku í
mótinu á www.hjolamot.is.
Frjáls á fjallahjóli
Merkileg þróun hefur orðið í hjól-
reiðamenningu Íslendinga á undan-
förnum árum. Breytingin sést
greinilega á götum úti og mun meira
er um hjólandi fólk í umferðinni en
áður. Upp á síðkastið hefur orðið
sprenging í vinsældum svokallaðra
borgarhjóla og „racer“ götuhjóla, en
ef leitað er lengra aftur kemur í ljós
að það voru fjallahjólin sem komu
landanum fyrst á bragðið. Bjarki
segir að aukning sé greinileg í fjalla-
hjólasportinu í dag enda margt sem
gerir fjallahjólin að hentugum tækj-
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þann 28. apríl næstkomandi má
reikna með mikilli umferð fjallahjóla
í næsta nágrenni Rauðavatns. Þá fer
fram það fyrsta af fjórum fjallahjól-
reiða-bikarmótum ársins, en keppn-
in hefur fengið nafnið Morgunblaðs-
hringurinn.
Bjarki Bjarnason ætlar ekki að
láta sig vanta. „Þetta er mjög hent-
ugur staður til að hefja kepnis-
sumarið enda náttúruperla rétt við
borgarmörkin,“ segir hann og
um til samgangna og útivistar.
„Sjálfum finnst mér gaman að skella
mér á götuhjól, en fjallahjólin eru
samt toppurinn. Þetta eru hjól sem
hægt er að flakka á hvert á land sem
er. Maður er ekki jafn takmarkaður
við bundið slitlag og á götuhjóli, og
hefur því meira frelsi. Ég á það til
að hjóla bara af stað og sjá hvert
ferðin leiðir mig, og er kannski óð-
ara kominn á fallega stíga í Heið-
mörk eða búinn að hjóla upp og nið-
ur Esjuna.“
Fyrsta hjól margra er fjallahjól
og segir Bjarki það m.a. koma til af
því að auðveldara er fyrir börn og
unglinga að hafa stjórn á fjallahjóli
en götuhjóli. Fjallahjólin henta líka
vel orkuboltum með ævintýraþrá og
eflaust eiga margir lesend ljúfar
æskuminningar af spani á fjallahjóli
um Öskjuhlíð eða Elliðaárdalinn.
„Fjallahjólið er mín uppáhalds leið
til að upplifa náttúruna. Maður
kemst hraðar yfir en á tveimur jafn-
fljótum en er samt í náinni snert-
ingu við umhverfið.“
Tekist á við landslagið
Þegar kemur að keppnishliðinni
segir Bjarki að fjallahjólin séu á
ýmsan hátt meira krefjandi en götu-
hjólin. Skemmtilegustu hjólaleið-
irnar liggja oft um mishæðótt og
óslétt landslag þar sem takast þarf á
við brattar brekkur og ýmsar hindr-
anir. „Hraðabreytingarnar eru
meiri og tíðari en á götuhjóli úti á
þjóðvegi. Er t.d. algengt að þurfa að
fara inn í krappa beygju, bremsa á
hárréttum tíma og ná svo upp hraða
beint upp úr beygjunni. Brekkurnar
eru styttri en um leið brattari, bæði
upp og niður. Leiðin getur verið
tæknilega krefjandi, og kallað á að
hjólreiðamaðurinn hafi gott vald á
hjólinu og sé fljótur að lesa það út
hvaða leið er best að fara.“
Hvar á fólk svo að byrja ef það
langar að reyna fyrir sér í fjalla-
hjólamennsku? Bjarki segir mestu
skipta að halda af stað og prófa.
„Það þarf ekki meira en ágætt hjól
og hjálm, og svo er bara að rúlla af
stað. Má svo bæta við smátt og
smátt, og fjárfesta í dýrari aukabún-
aði eða léttara hjóli. Er líka um að
gera að hjóla með vinum og fjöl-
skyldumeðlimum. Á ég t.d. eina sjö
ára stelpu og hjólum við töluvert
saman innanbæjar sem utan.“
Hjólað og lesið í
landslagið um leið
Bjarka Bjarnasyni finnst fátt skemmtilegra en að þeysa um á
fjallahjólinu Bikarmótaröðin hefst með Morgunblaðshringnum
Ljósmynd / Arnold Björnsson
Kraftur Bjarki stillir sér upp með hjólinu, og Rauðavatn í baksýn. Hann segir fjallahjólunum fylgja mikið frelsi.
Leiðin Þegar hjólað er á fjallahjóli þarf að takast á við hæðir og hóla.
Útsýni Bjarki segir auðvelt að byrja í sportinu og þurfi ekki að kosta mikið.