Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 73
Sólheimar eru dýrðarstaður eftir
áratuga skógrækt föður míns og
stórkostlegt útsýni til Öræfajökuls í
austri og Mýrdalsjökuls í vestri. Þar
er tímanum eytt í matjurtarækt,
slökun og aðra nytsama iðju.“
Magnús æfði handbolta með
Gróttu og fótbolta með Val, en
knattspyrnuferlinum lauk í ut-
andeildinni með Hvatberum.
Frá 13 ára aldri var Magnús á
sumrin í bæjarvinnu hjá Seltjarn-
arnesbæ, fiskvinnslu í Ísbirninum,
við lagerstörf hjá Sól hf, í bygging-
arvinnu, vann í Járnsteypunni hf og í
miðasölunni á þeim sögufræga stað
Villta Tryllta Villa.
Magnús gekk í Mýrarhúsakóla og
Valhúsaskóla, lauk stúdentsprófi frá
MR 1986 og útskrifaðist sem tann-
læknir frá HÍ 1992. Hann var að-
stoðartannlæknir á Egilsstöðum
sumarið 1991 og síðan tannlæknir á
Reyðarfirði og í Reykjavík í þrjú ár.
Þá hélt fjölskyldan til Stokkhólms
þar sem Magnús sinnti rannsóknum
við tannholdsfræðideild Tannlækna-
deildar Karolinska Institut 1995-96.
Hann stundaði doktorsnám við Af-
deling for Parodontologi í Tann-
læknadeild Kaupmannahafnar-
háskóla og varði doktorsritgerð sína
þar í tannholdsfræðum árið 2001.
Magnús var síðan tannlæknir í
Reykjavík, stofnaði ásamt félögum
sínum tannlæknastofuna Valhöll, ár-
ið 2006, þar sem hann starfar enn.
Árið 2015 varð hann lektor við HÍ.
Magnús sat í stjórn Félags tann-
læknanema 1990-91, í stjórn Tann-
læknafélags Íslands 2005-2007, situr
í ritstjórn Tannlæknablaðsins og í
stjórn Lærdómsfélags ITI.
Magnús skreppir í fluguveiði á
hverju sumri með Rögnu konu sinni
og góðum vinum, ræktar ættaróðalið
á Sólheimum og er sílesandi. Hann
er áhugamaður um á mat og mat-
reiðslu en íþróttaiðkanir síðustu ára
einskorðast við hlaupahópinn Ár-
bæjarskokk. Með þeim hópi hefur
hann hlaupið nokkur maraþon víða
um heim og Laugavegshlaup.
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Ragna
Árnadóttir, f. 30.8. 1966, lögrfæð-
ingur, LLM, aðstoðarforstjóri
Landsvirkjunar og fyrrv. ráðherra.
Foreldrar hennar eru Árni Björn
Jónasson, f. 19.7. 1946, verkfræð-
ingur, og Guðrún Ragnarsdóttir, f.
27.9. 1947, menntaskólakennari.
Dætur Magnúsar og Rögnu eru
Brynhildur, f. 26.10. 1993, nemi við
HÍ, og Agnes Guðrún, f. 8.9. 2000,
nemi í Hagaskóla.
Systir Magnúsar er Heiður Agnes
Björnsdóttir, f. 30.4. 1962, viðskipta-
fræðingur, markaðsstjóri og meist-
aranemi, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar: Björn Jó-
hannes Jónsson, f. 3.7. 1932, d. 3.2.
2010, cand mag, skólastjóri Haga-
skóla og þýðandi, og Guðrún Sigríð-
ur Magnúsdóttir, f. 8.2. 1934, d. 14.8.
2005, cand.mag. og sérfræðingur við
Örnefnastofnun Þjóðminjasafnsins.
Úr frændgarði Magnúsar Jóns Björnssonar
Magnús Jón
Björnsson
Auðunn Þórarinsson
b. á Eystri-Dalbæ í Landbroti
Magnús Auðunsson
b. á Sólheimum
Kristjana Jónsdóttir
kennari og húsfr. á
Sólheimum í Landbroti
Guðrún Magnúsdóttir
cand.mag. og sérfræðingur
Sigríður Þorsteinsdóttir
húsfr. á Steig
Jón Þorsteinsson
b. á Steig í Mýrdal
Heiður Agnes
Björnsdóttir
viðskiptafr. og
markaðsstj.
í Rvík
Dr. Björn Guðfinnsson
prófessor
Guðrún
Auðunsdóttir
húsfreyja á
Prestbakka á
Síðu
Gestur Guðfinnsson
skáld og blaðam. við Alþýðublaðið
Björg Þuríður Guðfinnsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðfinna
Ragnarsdóttir
jarðfræðingur
og fyrrv.
mennta-
skólakennari
Kjartan
Hákonarson
tónlistar-
maður og
lyfja-
fræðingur
Fríða Björnsdóttir
fyrrv. framkv.stj. BÍ
Ingólfur
Guðbrandsson
söngstj. og
ferðamála-
frömuður
Gyðríður
Pálsdóttir
húsfr. í
Seglbúðum
GuðrúnM.
Pálsdóttir
húsfr. á
Hallormsstað
JónHelgason
fyrrv. alþm.og ráðherra í Seglbúðum
Hjörleifur Guttormsson
fyrrv. alþm. og ráðherra
Gunnar Guttormsson
fyrrv. forstj. Einkaleyfastofunnar
Loftur Guttormsson
prófessor emeritus
Þorgerður Ingólfsdóttir
kórstjóri
Vilborg Ingólfsdóttir
skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu
Rut Ingólfsdóttir
fiðluleikari
Unnur María Ingólfsdóttir
fiðluleikari
Inga Rós Ingólfsdóttir
sellóleikari
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfr.
Jóhannes Konráðsson
b. á Brekku og Völlum í Skagafirði
Jón Jóhannesson
b. á Ytra-Skörðugili
Agnes Guðfinnsdóttir
húsfr. á Ytra-Skörðugili
í Skagafirði
Björn J. Jónsson
cand.mag. og
skólastj. Hagaskóla
Sigurbjörg Guðbrandsdóttir
húsfr. í Litla-Galtardal
Guðfinnur Jón Björnsson
búfr. og b. í Litla-Galtardal,
af Ormsætt
Páll
Sigurðsson
b. í Þykkvabæ
í Landbroti
Sigríður
Sigurðardóttir
húsfr. á
Eystri-Dalbæ
Sigurður
Sigurðsson
b. í Nýjabæ
í Meðallandi
ÍSLENDINGAR 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Birgir fæddist í Reykjavík 14.4.1926. Foreldrar hans voruFrímann Ólafsson, forstjóri
Hampiðjunnar hf., og k.h., Jónína
Guðmundsdóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar.
Systkini Birgis: Hörður verkfræð-
ingur; Ólafur Helgi, fyrrv. deildar-
stjóri í Útvegsbankanum; Fríða
Kristín deildarstjóri, og Kristinn sem
lést í frumbernsku.
Eftirlifandi eiginkona Birgis er
Valdís Blöndal, fyrrverandi leið-
sögumaður, dóttir Ragnars Halldórs
Blöndal, forstjóra í Reykjavík, og Ilse
Blöndal, fædd Luchterhand í Danzig í
Þýskalandi.
Börn Birgis og Valdísar: Nína
Kristín flugfreyja; Ragnar rekstr-
arhagfræðingur, og Gunnar jarð-
verkfræðingur.
Birgir lauk stúdentsprófum frá
MR 1945, tók fyrrihlutapróf í verk-
fræði frá HÍ 1948, hélt áfram námi
við Danmarks Tekniske Højskole
(DTH) í Kaupmannahöfn og tók það-
an seinnihlutapróf í byggingarverk-
fræði 1951, stundaði framhaldsnám
við Massachusetts Institute of
Technology (MIT) í Boston og lauk
þaðan námi árið 1954.
Birgir var verkfræðingur hjá
Vatns- og hitaveitu Reykjavíkur
1951-53, deildarverkfræðingur hjá
flugher Bandaríkjanna á Keflavíkur-
flugvelli 1953-55, verkfræðingur hjá
verktakafyrirtækinu Verklegum
framkvæmdum hf. 1955-61 og for-
stjóri og annar eigandi Verks hf.,
steypustöðvar og verktakafyrirtækis,
1961-74. Síðar rak hann eignarhalds-
félagið Skjaldbreið hf. frá 1974.
Síðustu starfsárin vann hann að
fræðistörfum í tengslum við
Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins.
Birgir var fær verkfræðingur,
slyngur stórverktaki og hafði umtals-
verð áhrif á frjáls útboð ríkis og sveit-
arfélaga á stórum verkþáttum.
Birgir var formaður Steinsteypu-
félags Ísland 1972-75 og formaður
Verktakafélags Íslands 1971-74.
Hann sat í ritnefnd TVFÍ 1970-72 og
var um árabil félagi í Lionsklúbbi
Reykjavíkur.
Birgir lést 24.1. 2001.
Merkir Íslendingar
Birgir G.
Frímannsson
90 ára
Dýrleif Jónsdóttir
85 ára
Anton Geir Sumarliðason
Arndís Kristjánsdóttir
Guðlaugur B. Sumarliðason
Guðmundur Lárusson
Ragnhildur Björg
Erlendsdóttir
80 ára
Óskar Jóhannesson
Þórður Hannesson
75 ára
Björk Sigdórsdóttir
Guðgeir Ólason
Ingvar Pálsson
Laufey Þorbjarnardóttir
Soffía H. Sigurgeirsdóttir
70 ára
Ásgerður Ágústsdóttir
Garðar Gestsson
Guðmundur Guðmundsson
Gunnar Kjartansson
Hildur Svavarsdóttir
Ingveldur B. Jónsdóttir
Margrét Rannveig
Guðmundsdóttir
Marsilía Ingvarsdóttir
Sigríður K. Þorvaldsdóttir
60 ára
Arnar Eiríkur Gunnarsson
Björn H. Sigurliðason
Egill Þ. Sigmundsson
Eyjólfur Valur Gunnarsson
Guðný Kristín Heiðarsdóttir
Gunnar R.H. Óskarsson
Gunnlaugur Sigurðsson
Haraldur Sigurðsson
Ólafur Stefaníu Jakobsson
Viggó Hólm Valgarðsson
Þröstur Stefánsson
50 ára
Arnfríður Hjaltadóttir
Brynhildur K. Kristinsdóttir
Guðmundur Guðmundsson
Guðrún Vala Ólafsdóttir
Gunnlaugur Magnússon
Jóhann Magnússon
Jónína Guðrún Skaftadóttir
Lilja Gissurardóttir
Magnús Jón Björnsson
Peter Tompkins
Robert James Robinson
Rungnapha Gudmundsson
Sigríður Jónsdóttir
Þorsteinn Guðmundsson
40 ára
Árni Þór Hlynsson
Ástríður Guðmundsdóttir
Björn Andrésson
Grétar Þorsteinsson
Helgi Ingólfur Eysteinsson
Hildur Jóna Þorsteinsdóttir
Hulda Dögg Georgsdóttir
José Fernando Lemos De
Oliveira
Karol Bogdan Hnat
Kristín Eva Ólafsdóttir
Margrét Ýr Einarsdóttir
Michael Anthony Weaver
Rósa Hrönn Árnadóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Vigdís Garðarsdóttir
30 ára
Anna Justyna Lipska
Anna Sigrún Ingimarsdóttir
Auður Sólrún Ólafsdóttir
Helga Gunnólfsdóttir
Ingunn Guðmundsdóttir
Pálmar Jónsson
Polona Janzic
Salóme Mist
Kristjánsdóttir
Saranrat Neladanuvong
Sigrún Sæmundsen
Songkrant Geirsson
Til hamingju með daginn
30 ára Auður lauk BSc-
prófi í umhverfis- og
byggingaverkfræði frá HÍ
og starfar hjá Lotu verk-
fræðistofu.
Systkini: Andrea, f. 1994;
Ólafur, f. 1995; Alexander,
f. 1997, og Andri, f. 2000.
Foreldrar: Sigrún Valdi-
marsdóttir, f. 1968, og
Ólafur Gunnar Pétursson,
f. 1967. Maður Sigrúnar
er Þórir Frank Ásmunds-
son, en kona Ólafs er Ás-
dís Íshólm Ólafsdóttir.
Auður Sólrún
Ólafsdóttir
40 ára Vigdís ólst upp að
Syðra-Laugalandi í Eyja-
fjarðarsveit, býr í Reykja-
vík er tónmenntakennari
og starfar við Reykjavík
Letterpress.
Systkini: Ólöf Birna, f.
1967; Hulda Björk, f.
1969, og Stefán Elfar, f.
1981.
Foreldrar: Garðar Karls-
son, f. 1947, d. 2001,
grunnskólakennari, og
Steingerður Axelsdóttir, f.
1947, vann við umönnun.
Vigdís
Garðarsdóttir
30 ára Helga ólst upp í
Keflavík, býr í Reykjavík,
lauk BSc-prófi í sálfræði
og er að ljúka ritgerðinni.
Maki: Sigurgeir Sigur-
geirsson, f. 1982, flug-
umferðarstjóri.
Dætur: Hugrún Líf, f.
2009, og Aníta Sif, f.
2014.
Foreldrar: Fanney
Bjarnadóttir, f. 1953, hús-
freyja, og Gunnólfur Árna-
son, f. 1950, pípulagn-
ingameistari.
Helga
Gunnólfsdóttir
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
1.395
Öflugar
Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákústar á
tannbursta-
verði
Garðklóra/
Garðskófla
595
1.995
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 1.995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
4.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
Úðabrúsar
í mörgum
stærðumfrá 995
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295