Víkurfréttir - 31.05.2000, Blaðsíða 28
SJámífotolmi skoðaður
og Mustoð á hvallna!
Hvalstöðin, eða Whale Waching Centre,
gerir út frá Grófinni í Kefiavík og er í
samstarfi við Kaffi Duus. Hvalstöðin
býður upp á fjölbreyttar ferðir í kringum
Reykjanesskagann, þ.á.m. hefðbundnar hvala-
og fuglaskoðunarferðir auk ýmissa sérferða,
sem fólk getur pantað eftir eigin höfði.
Boðið er upp á kvöldferðir út í Garðsjó til að sjá
sólina setjast handan við Snæfellsjökul og einnig
hai'a sjóstangaveiðiferðir notið mikilla vinsælda.
Boðið er upp á slíkar ferðir hvenær sem veður
leyfir. Að veiðiferð lokinni er síðan hægt að slá
upp grillveislu og grilla aflann á Kaffi Duus, en
það stendur við smábátahöfnina þar sem komið er
í land.
Mb Gestur er afar vel búinn til skoðunarferða, en
hann tekur allt að 38 manns. Hlý og rúmgóð
setustofa er um borð, þar sem 12-15 manns geta
slakað á og notið útsýnisins, en hún er einnig
kjörin fyrir fundahöld. Þá er grill- og
eldunaraðstaða um borð, svo hægt er að grilla
aflann úr sjóstangaveiðinni jafnóðum.
Við réttar aðstæður er hægt að skoða hafsbotninn
og lífríkið í sjónum með neðansjávarmyndavél
sem er um Sorð í bátnum. Einnig eru þar
hlustunartæki sem gera fólki kleift aö hlusta á
hljóð hvalanna.
Hvalaskoðunarferðir eru famar alla daga vikunnar
fram til 30. september, en lagt er af stað í þær kl.
12:15 og 15:45. Fyrir hvalaskoðunarferðirnar
býðst fólki að vera sótt á hótel í Reykjavík, en
einnig er farið frá B.S.Í. daglega kl. 10:30 og
14:30.
Ljósmyndir Hvalstöðin í Keflavík