Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 33

Víkurfréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 33
A ðfangadagskvöldin eru yndisleg og heilög hjá mörgum fjölskyld- um. Þá eru það hefð- irnar sem gilda. Allt þarf helst að vera eins og það var í fyrra. Okkur datt í hug að kíkja í heimsókn til húsmóður einnar hér á Suðurnesjum og for- vitnast um stússið hjá henni á aðfangadag. Systkinin, Bjarni, Kristjana Hanna og Jón Árni, voru að skera út skemmtilegar tígúrur í piparkökudeig. Ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum. Inga vaknar snemma á aðfangadagsmorgun til að undirbúa hátíðarkvöldverðinn. Viðtal og myndir: Marta Eiríksdóttir Qí Inga Ámadóttir og Benedikt Jónsson, tannlæknir eiga þrjú böm, þau Jón Ama, Bjama og Krist- jönu Hönnu. A aðfangadag em allir uppteknir við eitthvað. Inga vaknar snemma og byrjar strax að undirbúa kvöldmatinn. Benni og bömin fara einnig á stjá með pakka út í bæ og einhver jóla- kort em borin út. Þegar hin hefðbundna jóladag- skrá hefst í ríkissjónvarpinu klukkan hálf tvö þá setjast krakkamir fyrir framan skjáinn og pabb- inn læðist inn í herbergi, lokar á eftir sér og pakkar inn jólagjöf handa elskunni sinni. Oft er verið að læðupokast rétt fyrir jól með alls konar pakka. Krakkamir koma foreldrum sínum jafn- vel á óvart með handunnum gjöfúm úr skólan- um. Já, jólin em engu lík. Matseðill með sögu Inga leggur á borð snemma um morguninn, tek- ur fram fínasta matarstell fjölskyldunnar og skreytir jólaborðið. Eftirvæntingin skín úr augum bamanna sem sjá jólaborðið fínt og fallegt og þau hlakka óskaplega til kvöldsins. Gestir láta sjá sig með jólapakka til fjölskyldunnar og síðustu jólakortin detta inn um bréfalúguna. Inga segist njóta þess að undirbúa matinn og sýður kartöflumar snemma dags. Fjölskyldunni finnst best að hafa brúnaðar kart- öflur með kjötinu og grænmeti. I forrétt hafa þau alltaf spergilsúpu. Eftirrétturinn er algjör perla, ævagömul hefð úr fjölskyldu Benna. Hann kall- ast Hrísalammi en heitir auðvitað með réttu Ris a la mande og kemur frá ömmu hans Margréti Ag- nesi Helgadóttur. ,,Þessi réttur hefur verið á jólum svo lengi sem Benni man eftir sér,“ segir Inga. „Amma hans fékk þessa uppskrift frá Danmörku og bömunum fannst nafnið vera Hrísalammi og hefur þcssi réttur alltaf verið nefndur því nafni og er einung- is búin til á jólum. Það verður að nota River rice hrísgrjón í réttinn. Tímasetningin verður að vera rnjög nákvæm og það verður að hræra á sérstak- an hátt. Á meðan amma hans Benna lifði bjó hún alltaf til risastóran pott af Hrísalamma og gaf allri fjölskyldunni. Þá var farið á aðfangadag til ömmu að sækja eftirréttinn í skál og þá átti ein- ungis eftir að þeyta rjóma og bæta út í eftir smekk og möndlu. Með þessu fylgdi alltaf krækiberjasaft sem hún hafði einnig búið til um haustið. Amma Magga hafði aldrei viljað gefa neinum uppskriftina frá sér á meðan hún lifði því hún hefur liklega ekki viljað sleppa þeirri hefð að fá að búa til eftirréttinn handa allri fjölskyldunni. Benni benti ömmu Möggu á að enginn kynni að gera réttinn og það væri ekki hægt að uppskriftin færi með henni í gröfina og bað því um upp- skriftina hjá henni áður en hún dó sem hann og fékk. Eg hef svo útfært uppskriftina enn frekar með heitri karamellusósu. Benni var ekkert voða hrifinn fyrst þegar hann kom heim til foreldra minna á aðfangadagskvöld og bragðaði gtjóna- grautinn okkar. Honum fannst vanta allt bragð og vildi ólmur leyfa okkur að smakka á Hrísalamma ömmu Möggu. Eftir þá smökkun hefur hann einnig innleitt Hrísalamma í fjöl- skyldunni minni. Við viljum ekki annað á að- fangadag. Síðasta klukkutímann fyrir kvöldmat fara allir í fjölskyldunni í jólabað og gera sig klára. Ná- kvæmlega klukkan sex setjumst við öll við mat- arborðið ásamt gestum okkar, sem eru bróðir minn, kona hans og stundum foreldrar mínir. Þá er hlustað á hátíðarmessu á gömlu gufunni og allir em í hátíðarskapi. Eftir kvöldmat er gengið frá en bömin fá að opna einn lítinn pakka strax til að létta aðeins á spennunni. Þegar búið er að ganga ffá þá setjumst við öll við jólatréð og bömin lesa á pakkana. Kvöldið líður svo með kvöldkaffi og heimatilbúnu konfekti. Á jóladag hefur alltaf verið hefð fyrir því í fjöl- skyldu Benna að fara í messu í Innri-Njarðvíkur- kirkju klukkan ellefu um morguninn. Mamma hans Kristjana Kjeld var ættuð þaðan og hefur þessi hefð ríkt síðan hún var og lifði. Það er nota- leg stund á jóladagsmorgun." Lesendur fá nú uppskriftir að matseðli fjölskyld- unnar á aðfangadag sem em útfærðar að hætti Ingu: FORRETTUR Uppbökuð spergilsúpa; Smjör og hveiti brætt í potti nota safann úr spergildósinni (Green gigant) þynnt með uppleystum grænmetiskrafti rjóma bætt út í og spergli síðast. AHALRÉITUR Svínahamborgarahryggur látinn liggja í rauðvíni í pottinum frá morgni þar til klukkan er fjögur en þá er vatni bætt í pottinn og hryggurinn soðinn í eina klukkustund. -Hrærður gljái úr ananassafa, púðursykri og grófkornuðu sinnepi. Þessu er penslað á hrygginn og hann bakaður í opinni skúffu á 180°C í 30 mínútur. BRUNAÐAR KARTOFLUR Sykur bræddur í hrúgu á pönnu, hrært saman þar til allt er bráðnað. Þá er rjómi hrærður saman við og heilar smáar kartöflur steiktar í sykurbráðinni. SÓSAN smjör og hveiti brætt í potti kjötsoðinu bætt út í og bragðbætt með rjóma. Borið fram með blönduðu grænmeti og fersku rjómalöguðu ávaxtasalati. KFIIRRKTTUR borin fram með heimatilbúnu krækiberjasafti Hrísalammi (Ris a la mande) River rice hrísgrjón soðin upp í vatni en síðan er mjólk bætt út í heilar vanillustangir settar út í (en áður er skatið innan úr þeim og það einnig sett ofan í pottinn) þeyttur rjómi settur út í eftir smekk og ómissandi mandlan. Heit karamellusósa höfð með. Verðlaun í boði fyrir heppinn finnanda möndlunnar! Verði ykkur öllum að góðu og gieðileg jól! JDLABLAB VÍKURFRÉTTA 2 D 0 0 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.