Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 14.12.2000, Qupperneq 42

Víkurfréttir - 14.12.2000, Qupperneq 42
Sendum Suðurnesjamönnum bestu óskir um Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða LÍFEYRISSJÓÐUR SUÐURNESJA -lífeyrir til œviloka ems'momum ogjjrMkijMuM feirra festu ósfzir um (jíeðiGgjóC ár. samstarfið á árinu sem er aá Cða. Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis 9: W) h 'A 1,0. A ? farsceS íwmancfi ár [jöíCfmm viðsfziptin á (ifínuM ámm. Sigurður Markússon og fjölskyfcia. Nú líður senn að jólum og flestir að undirbúa sig fyrir há- tíðina en við hin sem sitjum á skólabekk verðum að gera okkur það að góðu að bíða með undirbúning jólanna þar til eftir að prófum lýkur. Við lestur ýmissa greina fóru að velkjast í mér ýmsar vangavelt- ur sem ég vildi skrá á blað og þar sem ég er mikill Sandgerð- ingur í mér leiddust hugsanir mínar auðvitað þangað og hugsunin barst að menningar- sögu okkar. Eins og svo oft áður fór ég að hugsa um öll húsin í Sandgerði sem eiga sér nafn og við nánari eftirgrennslan (sem var hjálp frá móður minni og upplýsing- ar frá bæjarskrifstofunni) kom í ljós að það eru ansi mörg hús eða um 70 talsins. Ég fór því að velta því fyrir mér hvort þetta væri ekki hluti af okkar menningarsögu þar sem ein- staklingar/fjölskyldur væru kennd við húsin er þau ólust upp í t.d. Bubbi í Holti, Gunna í Gerði svo einhverjir séu nefndir. Það hafa margir tekið upp á því að merkja húsin sín og tel ég með því að þama sé skilinn eftir menningararfur fyrir okkur sem yngri erum. Ungt fólk sem kaupir sér gam- alt hús veit kannski ekkert um sögu þess hvað þá að það beri eitthvert nafn. Þetta tel ég vera stóran þátt í varðveislu sögu okkar Sandgerðinga og einnig er þetta sannkallað húsprýði. Einnig var mér hugsað til byggðasafns sem hefur það hlutverk að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka minjar um menningarsögu svæðisins og kynna almenn- ingi. Er það ekki einmitt verð- ugt verkefni framtíðar okkar bæjarfélags, við höfum skól- ann, Fræðasetrið og Botndýra- rannsóknastöðina og einnig Atlahús eða húsakynni Lista- smiðjunnar Nývíddar og Jökla- Ijósa en það vantar byggðasafn. Ég er sannfærð um að ýmsir bæjarbúar lumi á einhverju spennandi s.s. ljósmyndum, bókum og ýmiskonar hlutum sem það vill varðveita en veit ekki hvað á að gera við og gæti lánað eða gefið til slíks safns og þá væri einnig áhugavert að tengja þar skólasögu okkar inn í. Ég er búin að velta þessu lengi fyrir mér og þá auðvitað líka staðsetningu byggðasafns- ins og sá húsakostur sem varð fyrir valinu hjá mér eru bæjar- skrifstofumar því það hús á sér sögu einnig. Ég velti þessu upp þar sem ég tel mig vita að inn- an fárra ára eigi að flytja starf- semi bæjarskrifstofunnar á svo- kallað „Bensatún” eða við hlið nýbyggingu Sparkaups. Það vantar eflaust fjárveitingar í svo víðamikið verkefni sem byggðasafn er en ég vildi bara með þessu móti vekja athygli ykkar á þessu og kannski með von/óskhyggju gerist eitthvað í þessum málum í nánustu fram- tíð. Hér hafið þið allavega fundið sjálfboðaliða í gagna- söfnun ef til þess kemur. Þetta verður vonandi til þess að við yngri kynslóðimar getum lært menningarsögu okkar svæðis, ekki aðeins með lestur bóka heldur höfum við eitthvað áþreifanlegt og getum viðhald- ið sögunni fyrir þá næstu sem á eftir koma. Ég kveð nú í bili og fagna því ef ég hef fengið einhvem bæj- arbúann í lið með mér! Með baráttukveðju um bætta menningarsögu! Reykjavik 5.deseinber 2000 Jóhanna Þórunn Egilsdóttir Olafur biskup dregur ekkert undan í samtalsbók við séra Björn Ut er komin bókin um Ólaf Skúlason biskup. í bókinni rifjar hann upp æviminningar sínar í samtali við séra Björn Jónsson , fyrrverandi sóknarprest í Keflavík. Ólafur var prestur í Norður-Dakota í Bandaríkj- unum og í Bústaðasókn og varð fyrsti æskulýðs- fulltrúi kirkjunnar. Þá var hann kjörinn til fjöl- margra trúnaðarstarfa. Hann var t.a.m. formaður Prestafélags íslands, dómprófastur í Reykjavík og vígsjubiskup í Skálholti áður en hann varð biskup Islands 1989. Ólafur var einnig um skeið í stjóm Lútherska heimssambandsins og ferðað- ist þá m.a. til Indlands og Brasilíu. í bókinni greinir Ólafur frá fjölskyldu sinni og uppvexti í Keflavík og lýsir kynnum sínum af fjölmörgu fólki. Hann dregur ekki fjöður yfir ýmis konar átök sem áttu sér stað innan kirkj- unnar á starfstíma hans. 42 JÓLABLAB VÍKURFRÉTTA 2 0 □ □
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.