Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 52

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 52
jf ^Mí/im/fyfóíki mími., " h- V'uhfdptar/inum rx 4 Qfifh'rrw/jamönmim ósfdr umgrnikgjolag :f ;fimeftkmumái ár, mer)fiökk fyrir |irií ém er ar) íiía Hilmar R. Sölvason Rœstingaþjónusta (Óskum viáskiptavinum okfar cjkMexjrajó(a ojjfarsædíar d níjju ári m a annu sem er aSkSa. Sinara o/j [ jByujja Hársnyrtistofan Klifs, Gónhól 14, Njarðvík Við viljum vekja athygli á heimsóknartímum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem eru kl. 15-16 ogkl. 18.30 - 19.30. Á stórhátíðum eru heimsóknartímar kl. 14-21. Heilbrigðisstofhun Suðumesja Jéhbækmar 2000 Lífsgleði - minningar og frá- sagnir Þórir S. Guðbergsson skráði I þessari nýju bók rifja fimm þekktir íslendingar upp liðnar stundir og lífsreynslu. Séra Birgir Snæbjörnsson er þekktur fyrir frásagnargleði og skemmtileg stíibrögð. Hér rifjar hann upp nokkrar eftirminnilegar sögur frá æskuslóðum á Akur- eyri, bemskubrekum, sögulegri fiugferð og atvik úr farsælu prestsstarfi. Einnig segir hann frá kynnum sínum af blindum, ein- stökum bónda í Bólstaðarhlíðar- hreppi. Jón Guðmundsson, bóndi og fv. oddviti á Reykjum í Mosfellsbæ, er löngu þekktur fyrir störf sín, einnig sérstæðar og skemmtileg- ar frásagnir. Asamt æskuminn- ingum sínum segir hann á eftir- minnilegan hátt frá samferða- manni sínum og eftirminnilegum sveitunga, Stefáni Þorlákssyni í Reykjahlíð, sem Halldór Lax- ness minnist á í Innansveitar- króníku. Margrét Thoroddsen, húsmóðir og viðskiptafræðingur, rifjar upp æskuminningar úr Reykjavík á fyrri hluta aldarinn- ar. Hún segir frá eftirminnilegum árum í Bandaríkjunum og Mexíkó og Háskólaárunum eftir að hún settist á skólabekk 57 ára. Þekktust er Margrét fyrir störf sín hjá Tryggingastofnun og Fé- lagi eldri boigara. Páll Gíslason, yfirlæknir er löngu landsþekktur fyrir störf sín sem læknir, skáta- höfðingi, borgarfulltrúi í Reykja- vík og formaður í Félagi eldri borgara. Páll rifjar upp einstakar minningar frá læknisstörfum á Patreksfirði og Norðfirði um miðja öldina, þegar aðstæður í heilbrigðismálum voru frum- stæðar og heilbrigðismálin í mót- un. Ragnheiður Þórðardóttir, húsmóðir á Akranesi, ekkja Jóns Amasonar alþingismanns, segir frá bemskuámm á Skaganum og eftirminnilegu fólki sem hún kynntist á þeim tíma. Þá rifjar hún upp aðdraganda og stofnun Kvenskátafélagsins á Akranesi, lýsir ævintýralegum ferðum þeir- ra stallsystra og ógleymanlegum útilegum. Utgefandi: Hörpuútgáfan, Akra- Hver er sinnar gæfu sniiður Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér nýja bók eftir höf- undinn vinsæla BODIL FORS- BERG. I bókarkynningu segir: Otrúlega spennandi og hrífandi saga tveggja hjóna og dætra Þú getur unnið 28” sjónvarp, ársbirgðir af Kaffitári, Lazy Boy hvíldarstól ef þú verslar heima fyrir þessi jól. Um 300 vinningar í jólahappdrætti verslana og Víkurfrétta. þeirra, sem fæddust sama daginn á sömu fæðingarstofu, atburðarás sem varð kveikjan að meiri erfið- leikum og verri ógöngum en nokkum hafði órað fyrir. Á fyrsta skóladegi litlu dóttur sinnar fær Nína skyndilega hugboð um að barnið hennar og Lennarts, mannsins hennar, sé ekki þeirra bam. Þau höfðu vafið litlu stúlk- una ást og umhyggju í sjö ár, en þá vaknar gmnur um að ekki sé allt með felldu. Karen og Harrý hafa í raun alið upp hið rétta bam þeirra Nínu og Lennarts, því að á fæðingardeildinni höfðu orðið dapurleg mistök. Og svo birtist Karen tískuhönnuður og krefst fallega fyrirmyndarbamsins síns og vill skila „ljóta andamngan- um” sem hún og Harrý maður hennar höfðu frant að því alið upp í misgripum sem sitt bam. Utgefandi: Hörpuútgáfan, Akra- nesi. Háskaflug Komin er út hjá Hörpuútgáfunni á Akranesi ný bók eftir metsölu- höfundinn JACK HIGGINS. í bókarkynningu segir: Háskaflug er sannkölluð flug- hetjusaga með öllum þeim ógn- um og skelfingaraugnablikum, sem herflugmenn einir upplifa. „Harðsoðin spennubók, eins og þær gerast bestar.” - The New York Times. „Higgins fær hárin til að rísa á höfði lesandans.” - Publisher Weekly. Útgefandi: Hörpuútgáfan, Akra- nesi. Nýjar hljóðbækur fyrir börn Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér fimm nýjar hljóð- bækur undir heitinu „Hljóðbæk- ur Hörpuútgáfunnar". Flytjendur og sögumenn: Heiðdís Norðfjörð og Bessi Bjamason. Nýju hljóðbækumar em: EMIL í KATTHOLTI eftir Astrid Lindgren Þýðing: Vilborg Dagbjartsdóttir. Lesari: Bessi Bjarnason. Efni: Þegar Emil tróð höfðinu ofan í súpuskálina. Þegar Emil gerði þrjár hetjulegar tilraunir til að draga jaxlinn úr Línu. Þegar Emil setti allt svoleiðis á annan endann að maður getur varla sagt ffá því. Tvær snældur með bráð- skemmtilegu efni um prakkarann Emil í Kattholti. ÆVINTÝRI HC Andersen 1-2. Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð. Efni: Ljóti andamnginn, Flibb- inn, Kertaljósin, Murusóleyin, Svínahirðirinn, Penninn og blek- byttan, Silfurskildingurinn, Þum- allína. Tvær snældur með völd- um þekktum ævintýmm. ÆVINTÝRI HC Andersen 3-4. Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð. Efni: Hans Klaufi, Tindátinn staðfasti, Nýju fötin keisarans, Grenitréð, Litla stúlkan með eld- spýturnar, Koffortið fljúgandi, Prinsessan á bauninni, Eldfærin, Engillinn. ÆVINTÝRIN OKKAR 1-2 eftir Heiðdísi Norðfjörð. Lesari: Heiðdís Norðfjörð. Efni: Ævin- týri úr Dagdraumalandi, Er kött- urinn með stél? Má ég fara í sveit, Afmælisgjöfin, Sparigrís- inn, Kalli huldustrákur, Tinna, og fleiri sögur. ÆVINTÝRI FRÁ ANNARRI STJÖRNU 1-2 eftir Heiðdísi Norðfjörð. Lesari: Heiðdís Norð- fjörð. Efni: Ævintýrastjömur, Astró og vinir hans, Skógarferðin, Vinur í neyð, Pabbi verður hræddur, Kmmmi króknefur, Allt verður gott á ný, og fleiri sögur. Hljóðleikar Ljóðabók Jóhanns Hjálmarsson- ar. Marlíðendur (1998) vakti mikla athygli og fékk góða dóma gagnrýnenda. Bókin hefur að hluta eða í heild verið þýdd á mörg tungumál og er væntanleg á spænsku. Hún hefur verið kynnt víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum, á alþjóðlegri ráðstefnu í Venezuela og á Bóka- stefnunni í Gautaborg. Hljóðleikar er sextánda ljóðabók Jóhanns Hjálmarssonar. Eins og bók hans Marlíðendur, sækir hún efni í Eyrbyggju og aðrar ís- lenskar fomsögur og eddukvæði. Þannig má segja að hún sé eins konar franthald Marlíðenda. Einnig er ort um landafundi Is- lendinga og Vínland. Flest ljóð- anna eru þó úr eigin umhverfi skáldsins og sum afar persónu- leg. Jafnframt því sem ljóðin endurspegla tímann, ferðir og hugmyndir er leitað til upp- mnans og dregnar upp myndir úr fortíð. Útgefandi: Hörpuútgáfan, Akra- nesi. Máttur bænarinnar Hörpuútgáfan á Akranesi hefur endurútgefið bókina Máttur bæn- arinnar eftir hinn þekkta kenni- mann Norman Vincent Peale. Hann varð fyrst kunnur hér á landi þegar bók hans „Vörðuð leið til lífshamingju” kom út árið 1965. Bænimar í bókinni gáfu Peale kjark og kraft til að takast á við lífið. Sömu reynslu hafa hinir fjölmörgu lesendur hans upplif- að. Allir geta fundið hér bænir til að nota í gleði og sorg. Að auki geymir bókin leiðbeiningar um bænaiðkun og umfjöllun um gildi bænarinnar í daglegu lífi okkar. Þær em komnar á prent til að vera öðrum til sama gagns. Þessi ágæta bók hefur verið ófá- anleg um nokkurt skeið. Útgefandi: Hörpuútgáfan. Akra- nesi. 52 JDLABLAfl VÍKURFRÉTTA 2 0 0 0

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.