Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.02.2001, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 22.02.2001, Blaðsíða 20
Teppahreinsun Suðurnesja Iðavöllum 3, sími 421 4143 ÞARF AÐ HREINSA MOTTURNAR? VIÐ HREINSUM: Allskonar mottur og dregla stóra og smáa. Mottur með gúmmíi eða plast botni. Gólfteppi laus og áföst. Barnastóla, kerrur og vagna. Húsgögn og stólaáklæði Rúmdýnur og veggteppi. Jesús Kristur er svarið Samkoma öll fimmtudagskvöld kl. 20.00. Allir velkomnir. Barna- og fjölskyldusamkoma sunnudaga kl. 11.00. Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84, Keflavík. Auglýsingasíminn er 421 4717 ÍIíiFS smenni Jh I IMýtid ykkur 27% afslátdnn staðun'nri fyrír W ðs. Hafnagata 23 Keflavík • Sími:421 6303 veinctiyus uy Heimasíða: www.studiohuidu.is „ sjomannareiag Nettang: studeo@studiohuidu.is Ksflavikur og nagrennis FILMUÍSETNINGAR 12 ára ábyrgð á filmum og ísetningum GT bón og filmuísetningar Framnesvegi 23, Keflavík - 421 8888. VEFSÍÐA: www.gospel.is 20 Svart og sykurlaust Drífa í vistun Jón Kristjánsson og Hjálmar Jónsson sömdu vísustúf um Drífu Sigfúsdóttur varaþing- mann þegar þeir fréttu að hún hefði starfsaðstöðu að Vonarstræti 12 á meðan hún sinnti þingstörfum. Athvarfvar ekkert í bœnum undruðumst það við hin. Hún er vistuð hjá vinstri grœnum vesalings kerlingin. En talandi um athvarf má geta þess að lítill fugl hvíslaði því að okkur að Drífa hafi sótt um byggingarlóð í Hafnarfirði en stalla hennar í bæjarráði Reykjanesbæjar, Jónína Sanders hafi gert það sama, nema í Garðabæ. Kjallarahola eða kartöflugeymsla Fólk í fasteignaleit verður að hafa hraðar hendur og fætur ef það ætlar sér að næla í eign á Suðumesjum. Staðan er orðin þannig að eignir seljast unr leið og þeir fara á skrá hjá fast- eignasölunum. Fyrstur kemur, fyrstur fær, en er ekki kominn tími til að gera eitthvað í hús- næðismálum hér á Suðumesj- um áður en ástandið versnar enn frekar og verður eins og á kreppuárunum. Hver vill búa í gluggalausri kjallaraholu eða kartöflugeymslu? Fíflaskapurinn með flugvöllinn Staðsetning innanlandsflug- vallar í framtíðinni hefur verið eitt heitasta málið í landsfjöl- miðlum að undanfömu og hef- ur Ámi Johnsen (D) farið ham- förum í sjónvarpsviðtölum og víðar. Hann er harður á því að flutningur flugvallarins frá Reykjavík skerði þjónustu við landsmenn gríðarlega. Þar sem rök Ama halda illa þá dettur manni helst í hug að hann nenni einfald- lega ekki sjálfur að keyra „alla leið“ frá Keflavík til Reykja- víkur en maðurinn ferðast vegna starfs síns mjög oft með innanlandsflugi... Lenda á Austurvelii Það væri ansi gaman að bjóða Áma í skoðunarferð um helstu borgir heims og láta hann telja hversu margar þeirra hafa al- þjóðaflugvöll í hjarta borgar- innar. Niðurstaðan kæmi hon- um eflaust á óvart. Hann vill kannski hafa hann á Austurvelli framan við Alþingishúsið, þá getur hann tölt úr flugvélinni og beint inn á Alþingi... Hvað með tvöföldunina? Skoðanir hans skjóta að sumu leyti skökku við því sem hann hafði fram að færa á borgara- fundi í Stapa fyrir skömmu. Þar talaði hann fjálglega um tvö- földun Reykjanesbrautarinnar en þegar þeirri framkvæmd lýkur batna samgöngur mikið á milli Suðurnesja og liöfuðborg- arinnar... Skert öryggi hverra? Eitt af rökum Áma er að hann telur flutning vallarins frá Reykjavík til Keflavíkur skerða öryggi landsbyggðarfólks. Hann á við að erfiðara verði að koma fólki, sem kemur með sjúkraflugi, frá Keflavík á sjúkrahús í Reykjavík. Það má hins vegar benda Áma á að það tekur skemmri tíma að aka frá flugvellinum í Keflavík til Reykjavíkur, heldur en frá Kjalamesi, Akranesi, Mosfells- bæ og jafnvel Grafarvogi á há- annatíma. Svo ekki sé minnst á sjómenn sem slasast á sjó og þurfa stundum að bíða von úr viti eftir þyrlunni ef aðstæður til björgunar eru slæmar. Hvað ætlar Ami að gera fyrir það fólk? Steinþór á Bergið! Mikil umræða hefur verið um háhýsi í Reykjanesbæ á liðnum mánuðum og hún heldur áfram. Nú er verið að skoða hvort byggja eigi 8 hæða há- hýsi við Framnesveg en í hús- inu verða um 26 íbúðir, ef af verður, þ.e. tíu metrum hærra en Flug-Hótel. Ætli bæjar- stjómendur og byggingaraðilar sjái Reykjanesbæ fyrir sér í framtíðinni sem Manhattan eyju norðursins? Ef svo er þá væri hægt að koma fyrir styttu af „Frelsisengli Reykjanesbæj- ar“, Steinþóri Jónssyni, á Berg- inu sem biði alla sjófarendur velkomna... Umsjón: Silja@vf.is London New York l,Boston Amsterdam Kaupmannahöfn Frankfurt- flug og bíll Miimeapolis París, höfuöborg ástar og ævintýra Sólarstrendur á Spáni ICELANDAIR Söluskrifstofa í Leifsstöö - Sími 425 0220 Opið frá kl. S:30 til 17:00 aila daga FRÉTTASÍMINN ER 690 2222

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.