Víkurfréttir - 30.05.2002, Side 2
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
stuttar
FRETTIR
Kærður fyrir
líkamsárás
Lögreglunni í Keflavík hefur
borist ákæra vegna líkamsárás-
ar sem átti sér stað í Reykjanes-
bæ um miðja síðustu viku.
Hjólabrettaæðið
heldur áfram í
Reykjanesbæ
Nýir hjólabrettapallar voru sett-
ir upp í Innri-Njarðvik i síðustu
viku íýrir neðan leikskólann
Holt. Krakkamir í Innri-Njarð-
vík sendu beiðni til Iþrótta-og
tómstundarráðs um gerð slíkra
palla og höfðu þau skrifað und-
ir undirskriftarlista sem fylgdi
með. Ekki hefur verið tekin á-
kvörðun um formlega vígslu á
hjólabrettapöllunum en upp-
setningin var í samráði við
krakkana þar. Kostnaður, með
undirvinnu o.fl., var um tvær
milljónir króna.
Lyklarnir af kjör-
kössunum úti í bæ!
Skondin staða kom upp í í-
þróttahúsinu í Njarðvík við
talningu atkvæða í sveitar-
stjómarkosningunum. Þegar
átti að fara að telja síðustu at-
kvæðin upp úr kjörkassanum
kom í ljós að lyklamir af köss-
unum vom ekki til staðar. Þeir
höfðu gleymst úti í bæ!
Formaður kjörstjómar brást
fljótt við og var snöggur að
sækja lyklana, þannig að taln-
ing gæti haldið áfram i Ljóna-
gryfjunni.
B Sl B
FRÉTTIR
www.vf.is
Glænýsíða
á Netinu!
FRÉTTIR
Reykjanesbær
Framboð Atkvæði Hlutfall Fj. fulltrúa
B-listi 872 13,4% 1
D-listi 3.386 52,0% 6
S-listi 2.154 33,1% 4
Auð og ógild 104
Greidd atkv. 6.516
Á kjörskrá 7.683 Kjörsókn 84,8%
Fulltrúar:
B-listi, Framsóknarflokkur. Kjartan Már Kjartansson.
D-listi, Sjálfstæöisflokkur. Árni Sigfússon, Böövar Jónsson,
Björk Guðjónsdóttir, Steinþór Jónsson, Þorsteinn Erlingsson,
Sigríður Jóna Jóhannesdóttir.
S-listi, Samfylking, Jóhann Geirdal, ÓlafurThordersen,
Guðbrandur Einarsson, Sveindís Valdimarsdóttir.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta í kosningum í Reykjanesbæ:
Árni Sigfússon næsti bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan
meirihluta í Reykjanesbæ samkvæmt loka-
tölum sveitarstjórnarkosninganna sem
fram fóru á laugardag.. Sjálfstæðisflokkur-
inn hlaut 51,96% atkvæða og sex bæjar-
fulltrúa af 11 og vann einn af Framsóknar-
flokki.
B-listi Framsóknarflokksins hlaut 872 at-
kvæði eða 13,38% og einn mann kjörinn
og S-listi Samfylkingarinnar 2154 atkvæði
eða 33,06% og fjóra menn. Auðir og ógild-
ir seðlar voru 104 eða 1,6%. Alls greiddu
6.516 manns atkvæði í Reykjanesbæ eða
84,81% af þeim sem voru á kjörskrá.
ODDVITARNIR TJA SIG UM URSLITIN
Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjanesbæ hlaut hreinan
meirihluta í kosningunum á
laugardag. Framsóknarflokk-
urinn missti einn mann úr
bæjarstjórn en Samfylkingin
stendur í stað og heldur fjór-
um mönnum inni. Næsti
bæjarstjóri Reykjanesbæjar
verður Árni Sigfússon en
hann mun formlega taka við
bæjarstjórastólnum 18. júní.
Víkurfréttir ræddu við oddvita
flokkanna eftir að úrslit
lágu fyrir.
Árni Sigfússon
„Eg er hæstánægður með niður-
stöðumar. Þetta þýðir það að við
getum framfylgt stefnuskrá okkar
Sjálfstæðismanna sem við höfúm
kynnt og munum við standa við
okkar orð í baráttunni. Ég átti alls
ekki von á þessu, við lögðum von-
ir við fimmta mann en þetta er
mjög góður árangur og vil ég koma á framfæri
þökkum til allra kjósenda og einnig þeirra sem
stóðu með okkur í þessari baráttu,“ sagði verð-
andi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Árni Sigrfús-
son, í samtali við Víkurfréttir.
Kjartan Már Kjartansson
„Ég vil óska Sjálfstæðismönnum
til hamingju með sigurinn. Það er
ljóst að bæjarbúar hafa fallist á að
veita Sjálfstæðisflokk fúllt umboð
til að stýra bæjarfélaginu. Þetta
em að vissu leyti vonbrigði fyrir
okkur en Framsóknarflokkurinn er
elsti flokkur landsins og hefur
gengið í gegnum margt, og því erum við hverrgi
af baki dottnir“. Kjartan vildi að lokum koma á
ffamfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd
á plóg fyrir Framsóknarflokkinn í þessum kosn-
ingum.
Jóhann Geirdal
„Stjórnmálamenn verða að geta
tekið kosningum. Það væri óæski-
legt ef við gerðum það ekki því
niðurstaðan er vilji kjósenda og
því verðum við auðvtiað að virða
það. Ég vil auðvitað óska Ama til
hamingju með úrslitin. Eitt er þó
víst að þetta verður örlagaríkt fyrir
Framsóknarflokk. Að lokum vil ég þakka ölllum
þeim kjósendum sem kusu okkur en samstaða
hópsins og andi var til fyrirmyndar. Stærsti sigur-
inn finnst mér þó vera hin öfíuga hreyfing ungra
jafnaðarmanna sem var rnjög ötul í starfi og
flokkur með slíka hreyfingu ungs fólks á bjarta
framtíð fyrir sér,“ sagði oddviti Samfylkingar-
innar Jóhann Geirdal.
ÚRSLIT í MINNI
SVEITARFÉLÖGUNUM
Úrslit sveitarstjómarkosninganna i öðrum sveitar-
félögum á Suðumesjum en Reykjanesbæ er að
finna aftar í Víkurfféttum í dag.
Þar er greint ffá útslitum í máli og á mynd-
rænan hátt. Einnig má nálgast upplýsingar um
sveitarstjómarkosningamar á www.vf.is
, Útgefandi:
U||l| in Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
: * IIVwR Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
FRETTIR Stmi 421 4717 (10 linur) • Fax 421 2777
Útlit, umbrot og prentvistun (pdf): Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. / Dreifing: íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar Víkurfrétta ehf. eru: Timarit Víkurfrétta,
The White Falcon og Kapalsjónvarp Vikurfrétta.
Ritstjóri og ábm.: Pált Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, simi 898 2222 hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is
Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is,
Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is
Blaðamaður: Sævar Sævarsson sjabbi@vf.is, Snorri Birgisson snorri@vf.is
Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is,
Skarphéðinn Jónsson skarpi@vf.is, Stefan Swales stefan@vf.is
Skrifstofa: Stefania Jónsdóttir, Aldís Jónsdóttir
2