Víkurfréttir - 30.05.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
stuttar
F R É T T I R
Sinubrunar í Svarts-
engi og við Lónið
Slökkviliðinu í Grindavík hefur
að undanfömu borist útköll
vegna sinubruna í Svartsengi og
í kringum Bláa Lónið. Ás-
mundur Jónsson, slökkviliðs-
stjóri í Grindavík sagði i samtali
við VíkurfTéttir í morgun að
honum fyndist mjög líklegt að
þama hefðu ferðamenn verið að
kveikja í sinu, þóhafi það ekki
fengist staðfest. Ásmundur
sagði einnig að það væri alltof
títt að sinueldur blossi upp í
kringum þessi svæði yfir sum-
artímann.
Þegar kveikt er í sinu er fuglalíf
í mikilli hættu og er því mjög ó-
æskilegt að kvekja í sinu hvort
sem það er fjær þyggðarlagi
eður ei.
Skrautlegir boðberar
sumars!
Sumarið er að koma með full-
um krafti. Gróðurinn hefur tek-
ið mikinn kipp síðustu daga og
flest tré em orðin græn og fólk
er jafhvel farið að slá garða
sína. Það eru einnig fleiri vor-
boðar á ferðinni þessa dagana.
Þessi fluga brosti við vorinu
þegar Ijósmyndari Víkurfrétta
var í návígi við hana með
myndavélinni. Sem betur fer
var gler á milli flugu og ljós-
myndara, enda flugan ekki sak-
leysisleg að sjá.
Tveimur bifreiðum
stolið í Reykjanesbæ
Tveimur biffeiðum var stolið í
Reykjanesbæ í síðustu viku.
Um kiukkan níu á miðviku-
dagskvöldið var bifreið stolið í
Njarðvík. Lögreglumenn í
Hafharfirði urðu síðan bifreið-
arinnar varir við Öldugötu í
Hafnarfirði og náðu bílþjófnum
á hlaupum.
Þá var bifreið stolið þar sem
hún stóð í lausagangi fyrir utan
hús í Keflavík. Eigandi bílsins
hafði bmgðið sér frá í nokkrar
mínútur, en þegar hann ætlaði
að vitja um bifreið sina að nýju
var hún horfin. Bíllinn fannst
nokkm síðar og vegfarandi gat
gefið greinargóða lýsingu á
þeim sem var á bílnum. Hann
reyndist ölvaður.
Fréttir af www.vf.is
TÍR undirritar
samninga upp
á 26 milljónir
Tómstunda- og íþrótta-
ráð Reykjanesbæjar
undirritaði fyrir helgi
santninga sem TÍR hefur
gert við hin ýmsu félög og
klúbba. Ráðið hefur sam-
þykkt að gera 19 samninga
við aðila sem tengjast íþrótta
og tómstundastarfi í Reykja-
nesbæ og voru tólf þeirra
undirritaðir í Skátahúsi
Heiðabúa í gærkt öld.
Búið var að undirrita sjö samn-
inga áður, en það vom samn-
ingar við knattspymudeildimar
í Keflavík og Njarðvík um
rekstur íþróttasvæða. Samning-
ar um umsjón öskudags-
skemmtunar við foreldrafélag
Tónlistarskólans. Samningur
um húsaleigustyrk við Pútt-
klúbb Suðumesja og samning-
ur við Björgunarsveitina vegna
þrettándabrennu og flugelda-
sýningar.
Álls hljóða samningar TIR upp
á 26 milljónir en þá var einng
ákveðið að afhenta Jóhanni R.
Kristjánssyni fjárstyrk vegna
undirbúngs hans og þátttöku á
Heimsmeistaramótinu í borð-
tennis sem fram fer í Taiwan
nú í sumar. Þá hefur ráðið
einnig undirritað aðra samn-
inga sem tengjast verkefnum
ráðsins, meðal annars við lög-
reglumenn í Keflavík urn eyð-
ingu vargfugls og samning um
eyðingu minka og refa.
Alls hljóða samningar TÍR upp
á 26 milljonir en þá var einng
ákveðið að afhenta Jóhanni R.
Kristjánssyni fjárstyrk vegna
undirbúngs hans og þátttöku á
Heimsmeistaramótinu í borð-
tennis sem fram fer í Taiwan
nú í sumar.
Myndir: Gísli Jóhannsson
spurning!
Hefur þú tekið þátt í
skoðanakönnun vikunnar
á www.vf.is ?
4