Víkurfréttir - 30.05.2002, Qupperneq 14
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
HREYSTI
Óli Thord setti met í þrekprófi slökkviliðsins
OlafurThordersen, bæj-
arfulltrúi og stjórnar-
maður Brunavarna
Suðurnesja, tók tilboði Sig-
niundar Eyþórssonar,
slökkviliðsstjóra, á dögunum
um að þreyta nýtt þrekpróf
fyrir slökkviliðsmenn B.S.
Prófið er uppbyggt með tilliti
til slökkviliðsstarfa og mælir
bæði styrk og þol þeirra. Sig-
ríður Kristinsdóttir eigandi
b'kamsræktarstöðvar
Perlunnar stjórnar þrekprófi
Slökkviliðs B.S.
Sigmundur slökkviliðsstjóri tók
síðan áskorun Olafs og þreyttu
þeir kappar prófið undir liarðri
stjóm og nákvæmri tímamæl-
ingu Sigríðar í Perlunni. Styrkt-
arprófið, sem byggir á upphíf-
ingum, armbeyjum, þríhöfða-
armbeyjum, magaæfingum og
réttstöðulyflu fór fram í
Perlunni og stóðu þeir kappar
sig með ágætum og uppfýlltu
lágmarksákvæði prófsins.
Að því loknu var haldið í
Reykjaneshöllina en þar vom
þeir klæddir í Reykköfunar-
búnað slökkviliðsins, eða sam-
tals 20 kg. búnað, sem endur-
speglar búnað Reykkafara B.S.
I þrekprófinu, sem byggir á að
ljúka 4,8 km. göngu með 20
kg. á bakinu innan tiltekins há-
markstíma, náði Ólafur forskoti
á Sigmund og kom hann í mark
á undan Sigmundi. Ólafur lauk
því þrekprófinu á tæpum 26
mínútum en Sigmundur á rúm-
um 28 mínútum.
„Eg er mjög ánægður með út-
komuna þó að skemmtilegra
hefði verið að vinna Ólaf, en
þessar niðurstöður endurspegla
það að Ólafur er í mjög góðu
líkamlegu formi og vel hæfur
líkamlega til slökkyiliðsstarfa.
Þessi frábæri tími Ólafs slær
tíma Ingvars Georgssonar út
sem var besti tími B.S. til
þessa, eða 27 mínútur og 30
sek.
Þetta framtak Ólafs er rnikil
hvatning fyrir okkur slökkvi-
liðsmenn og okkur stjómendur
slökkviliðsins til að gera betur.
Það er virkilega gaman og
hvetjandi fyrir okkur að sveit-
arstjómaimenn sýni mikilvægu
málefni sem þessu svona á-
huga. A ámnum hefur Ólafur
átt ákveðið fmmkvæði í því að
slökkviliðsmenn hafa frjálsan
aðgang að öllum líkamsræktar-
stöðvum í Reykjanesbæ," sagði
Sigmundur Eyþórsson í samtali
við Víkurfréttir að loknu
prófínu.
Sjómannamessa í Ytri Njarðvíkurkirkju kl. n.oo
Skemmtisigling fyrir yngri kynslóðina í fylgd með fullorðnum í boði
Moby Dick frá Gróf. Björgunarsveitin fylgir bátnum eftir. Siglingin
hefst kl. 13:30
Reykjaneshöllin, dagskrá hefst kl. 15:00
Stutt og hnitmiðuð ræðuhöld
Sjómenn heiðraðir
Harmonikkuleikur
Reiptog milli liða
Tvær gerðir af koddaslag
Alvöru keppni í sjómanni - Vegleg verðlaun
Björgunarsveitin Suðurnes verður á staðnum
Ýmislegt óvænt fyrir börnin
Bílasýning
Kynning á hnefaleikum í boði Hnefaleikafélags Reykjanes og BAG
Siglingafélagið Knörr kynnir starfsemi sína
Sportköfunarskóli íslands kafar eftir ýmsum sjávarlífverum á
laugardaginn og sýnir afraksturinn í körum við innganginn. Sérstök
kynning á starfsemi Sportköfunarskóla íslands.
Skemmtilegar uppákomur
Bátasafn Grims Karlssonar, Sjómannadagurinn í Duushúsum.
Á sjómannadaginn, sunnudaginn 2. júní, verður sýningin Bátafloti
Gríms Karlssonarj Duushúsum opin frá kl. 11.00-18.00. Viðar
Oddgeirsson og Árni Johnsen hafa unnið myndband þar sem Grímur
segir frá og lýsir bátunum. Myndbandið verður látið rúlla allan
daginn. Einnig yerða harmonikkuleikarar í safninu og leika þeir
sjómannalög. í tilefni dagsins er öllum gestum boðið frítt inn og
eru bæjarbúar hvattir til að koma og skoða þessa þessa frábæru
sýningu.
Frítt inn milli 11:00 -18:00
Verðtaun fyrir þann sem leggur flesta í sjómanni er matur fyrir
tvo á Kaffi DUUS og hvalaskoðun fyrir tvo með Moby Dick.
Kaffi DUUS - Sjómannadagskaffi
Sjómannadagsmatseðill eftir kl. 18:00
Bakkavör
Saltver ^ ÓSK KE-5 STAFNES Happasæll
Vísir, félag skipstjórnar- Verkalýðs- og
manna á Suðurnesjum sjómannafélag Keflavlkur
og nágrennis
Sjjéws)ÖlllíiJ3)(dagli!JD1JiHJM
/' Reykjanesbæ, sunnudaginn 2. júní
14