Víkurfréttir - 30.05.2002, Qupperneq 18
FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
stuttar
F R É T T I R
Keflavík og Njarðvík
æfa saman í sumar
Vegna framkvæmda á gólfi í
sal A í íþróttahúsi Keflavíkur
munu körfuknattleikslið Kefla-
víkur og Njarðvíkur bæði æfa í
Ljónagreyfjunni þ.e. í íþrótta-
miðstöð Njarðvíkur í sumar.
Á næstunni verður borað í gólf
A-sals til þess að koma fyrir
töppum sem lagðir verða undir
nýtt parket.
Fimleikaiðkendur verða einnig
að færa sig um set í júní en þá
munu þeir æfa i íþróttahúsinu í
Heiðarskóla. Unnið er að frá-
gangi á loftræstingu í sal B og
einnig verður sett upp millihurð
fyrir gryfju, segir i frétt á vef
Reykjanesbæjar.
Frauðplast og
burðarvirki brann
Slökkviliðsmenn réðu niður-
lögum elds i nýbyggingu við
Vatnsnesveg í síðustu viku.
Eldurinn var í frauðplasti í
kjallara og einnig brann eitt-
hvað af burðarvirki undir gólf-
plötu ásamt flekamótum. Sig-
mundur Eyþórsson, slökkvi-
liðsstjóri, sagði tjónið vera á
um 50 fermetra svæði í kjallara
hússins, sem nú er að rísa við
Vatnsnesveg.
Lent með hjartveikan
mann í Keflavík
Vél fiugfélagsins Air France
lenti á Keflavíkurflugvelli
klukkan hálf sjö á laugar-
dagskvöld vegna hjartveiks
manns um borð. Vélin var á
leið frá París i Frakklandi til
Atlanta í Bandarikjunum þegar
óskað var eftir leyfi til að lenda
henni í Keflavík.
Sjúkrabíll frá Brunavörnum
Suðumesja og læknir frá Heil-
brigðisstofnun Suðumesja voru
kallaðir til.
ÚRSLIT KOSNINGA
F-listinn heldur meirihluta í Garðinum
F-listinn í Garði heldur meirihluta og
hefur fjóra menn í hreppsnefnd eftir
sveitarstjórnarkosningarnar. I-list-
inn tók mann af H-listanum og
fær inn tvo menn. H-Iistinn
hafði tvo en fékk einn mann inn
í kosningunum. F-listinn fékk
346 atkvæði, H-listinn 150 at-
kvæði og I-listinn 182 atkvæði.
Grindavík II I
Framboð Atkvæði Hlutfall Fj. fulltrúa
B-listi 388 29,8% 2
D-listi 431 33,2% 2
S-listi 481 37,0% 3
Auð og ógild 19
Greidd atkv. 1.319
Á kjörskrá 1.543 Kjörsókn 85,5%
Fulltrúar:
B-listi, Framsóknarflokkur. Hallgrímur Bogason,
Dagbjartur Willardsson.
D-listi, Sjálfstæðisflokkur. Ómar Jónsson, Sigmar Eðvarðsson.
S-listi, Samfylkingar. Hörður Guðbrandsson,
Garðar Páll Vignisson, Ingibjörg Reynisdóttir.
Sjálfstæðisflokkur og
K-listi saman í meiriö
hluta í Sandgerði
Sjálfstæðisflokkurinn og K-listi,
listi óháðra og Samfýlkingarinnar
skrifuðu í gærdag undir samning
um sameiginlegan meirihluta í
bæjarstjóm Sandgerðis fyrir komandi
kjörtímabil. Sjálfstæðismenn fengu einn
mann kjörinn en K-listi 3 menn. K-listi var í meirihluta á seinasta
kjörtímabili. SigurðurValurÁsbjamarson, ráðinn sveitastjóri í
Sandgerði verður áfram bæjarstjóri Sandgerðisbæjar.
Sandgerði //'*» I
Framboð Atkvæði Hlutfall Fj. fulltrúa
B-listi 193 23,6% 2
D-listi 117 14,3% 1
K-listi 348 42,5% 3
Þ-listi 161 19,7% 1
Auð og ógild 0
Greidd atkv. 819
Á kjörskrá 894 Kjörsókn 91,6%
Fulltrúar:
B-listi, Framsóknarflokkur. Höskuldur Heiðar Ásgeirsson,
Ester Grétarsdóttir.
D-listi, Sjálfstæðisflokkur. Reynir Sveinsson
K-listi, Óháðir borgarar samfylkingin. Óskar Gunnarsson,
Sigurbjörg Eiríksdóttir, Ingþór Karlsson.
Þ-listi, Sandgerðislistinn. Ólafur Þór Ólafsson.
Gerðahreppur IIVÍKU* |
Framboð Atkvæði Hlutfall Fj. fulltrúa
F-listi 346 51,1% 4
H-listi 150 22,2% 1
l-listi 181 26,7% 2
Auð og ógiid 23
Greidd atkv. 700
Á kjörskrá 787 Kjörsókn 88,9%
Fulltrúar:
F-listi Framfarasinnaðir kjósendur. Ingimundur Þ. Guðnason,
Einar Jón Pálsson, Guðrún S Alfreðsdóttir, Gísli Heiðarsson.
H-listi, Sjálfstæðismenn og frjálslyndir. María Anna Eiríksdóttir.
l-listi, Óháðir borgarar. Arnar Sigurjónsson,
Sveinn Magni Jensson.
Meirihlutinn heldur í Grindavík
Meirihluti Sjálfstæðismanna og Fram-
sóknarmanna heldur velli í
Grindavík og fá bæði framboð tvo
menn inn. Samfylking fékk 3
menn.
>í Grindavík greiddu 1319 at-
kvæði sem féllu þannig að B-
listi Framsóknarflokks fékk 388
atkvæði og tvo menn, D-listi
Sjálfstæðisflokks fékk 431 at-
kvæði og tvo menn og S-listi Sam-
fylkingarfélags Grindavíkur fékk 481
atkvæði og þrjá menn í bæjarstjórn.
Vatnsleysustrandarhreppur //%
Framboð Atkvæði Hlutfall Fj. fulltrúa
H-listi 263 57,5% 3
T-listi 116 25,4% 1
V-listi 78 17,1% 1
Auð og ógild 0
Greidd atkv. 457
Á kjörskrá 525 Kjörsókn 87,0%
Fulltrúar:
H-listi Listi óháðra borgara. Jón Gunnarsson, Birgir Þórarinsson,
Kristinn Þór Guðbjartsson.
T-listi, Listi fólksins. Eiður Örn Hrafnsson.
V-listi, Áhugafólk um velferð Vatnsleysustrandarhrepps.
Halldóra Baldursdóttir.
Öruggur sigur H-listans í Vogum
Jón Gunnarsson og hans fólk á H-listanum í
Vogum á Vatnsleysuströnd vann ör-
uggan sigur í sveitarstjórnarkosn-
ingunum sl. laugardag. Alls
greiddu 463 atkvæði í kosning-
unum. Þrír seðlar voru auðir
og þrír ógildir. H-listinn hlaut I
263 atkvæði eða 57% og þrjá I
menn í hreppsnefnd.
T-listinn hlaut 116 atkvæði eða
25% og einn mann. Þá hlaut V-
listinn 78 atkvæði eða 17% og einn
mann.
18