Víkurfréttir - 30.05.2002, Blaðsíða 25
FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
Lengra skólaár í Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar
Reykjanesbær sam-
þykkti nýverið lengingu
starfsárs Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar frá og með
næsta hausti, í samræmi við
nýja kjarasamninga tónlist-
arskólakennara og er þetta
fyrri áfangi af tveimur í leng-
ingu skólaársins á gildistíma
kjarasamningsins. Þetta þýð-
ir að næsta haust mun
kennsla íTónlistarskólanum
hefjast þriðjudaginn 27. á-
gúst. Þetta kemur fram í til-
kj'nningu frá Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar á vefsvæði
Reykjanesbæjar.
Vegna þessa þarf að breyta inn-
ritunartíma nemenda frá því
sem verið hefur, á þann hátt að
innritað verður nú í maí fyrir
skólaárið 2002-2003.
Innritun fyrir nemendur sem nú
þegar eru í skólanum, verður
fimmtudaginn 30. maí og
föstudaginn 31. maí frá
kl. 12.00 -18.00. Rétterað
benda á að þeir sem ekki inn-
rita sig á þessum dögum eiga
það á hættu að rnissa af skóla-
vist.
Innritun fyrir nýja nemendur
verður mánudaginn 3. júní frá
kl. 12.00-18.00
Innritun fer fram á skrifstofú
skólans áAusturgötu 13. Við
innritun nemenda frá fýrra
skólaári, skal ganga frá
greiðslu staðfestingargjalds, kr.
7000,- fyrir hvem nema.
Skólastjóri Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar
Jarðfræðiferð með Ara
Trausta um Reykjanes
Vetrardagskrá Miðstöðv-
ar símenntunar á Suð-
urnesjum lýkur á laug-
ardag, 1. júní, með ferð um
Reykjanes. Það er Ari Trausti
Guðmundsson, jarðeðlis-
fræðingur sem verður farar-
stjóri um eldgosa- og jarð-
hitasvæðið en um það er Ari
meðal fróðastu manna.
Þetta er eins dags ferð sem
hefst á stuttri kynningu að
Skólavegi 1 í Keflavík kl. 9.00
áður en lagt verður af stað í
rútuferð um Reykjanesið. Fjall-
að verður um jarðskjálfta og
eldgosavá. Markverðustu staðir
verða skoðaðir í nýju og gömlu
ljósi eins og Ara Trausta er ein-
um lagið. Ekki er gert ráð fyrir
rniklum göngum en betra er
fyrir ferðalanga að vera á góð-
um gönguskóm og hafa með
sér nesti. Komið verður aftur til
baka úr ferðinni um kl. 17. Enn
eru nokkur sæti laus í ferðina
sem kostar kr. 4000. Hægt er
að skrá sig hjá MSS í síma 421
7500.
Stanslausir flutningar á
malarefnum úr Helguvík
Vörubílstjórar íslenskra
aðalverktaka höfðu í
nógu að snúast í vikun-
ni. Þeir stóðu fyrir lest vöru-
bíla milli Helguvíkur og
Kefl a ví k u r fl u g va 11 a r, þar sem
þeir fluttu 25.000 tonn af
steinefnum fyrir malbikun-
arstöð ÍAV. Efnið verður
meðal annars notað við mal-
bikun flugbrauta á Keflavík-
urflugvelli í sumar.
Efnið var flutt til Helguvíkur
frá Noregi með 166 metra
löngu skipi sem ristir að auki
rúma tíu metra niður. Skipið er
búið fullkomnum losunarbún-
aði þannig að gijótinu er dælt
upp á bryggju i Helguvík og
þaðan mokað á bíla.
AFMÆLI
Anita Ósk verður 7 ára fös-
tudaginn 31. maí. Bestu kveðjur
á afmælinu frá Bárði Sindri, litla
bróður.
Elsku Matthildur amma, til ham-
ingju með 80 ária afmælið.
Þín Þórunn
Þann 31. maí n.k. mun þessi
kynþokkafulli „ruslapoka-
dansari“ halda upp á 30 ára
afmælið sitt. A óskalistanum hjá
honum er latex galli í svipuðum
stil og ruslagallinn.
Dansnemendur hans vildu nota
tækifærið og óska honum til
hamingju með daginn.
k'ikskólastjóra vantar tímabundið.
Lcikskólann Heiðarsel vantar leikskólastjóra vegna afleysinga
frá 15.septembertiIvorsins2003.Umsóknarfresturertil 10.júní2002.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolbrún Sigurðardóttir,
leikskólastjóri, sími 4211554 og Guðríður Helgadóttir,
leikskólafuHtrúi, í síma 4216 700.
Umsóknir berist til: Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar,
Hafuargötu 5 7, merkt: Leikskóli, 230 Keflavík, Reykjanesbæ.
Starfsmannastjóri.
IS
REYKJAN ESBÆR
TJARNARGÖTU 12
230 KEFLAVlK
FSNÁ
LEIGUBIFREIÐ • VÖRUBIFREIÐ • HÓPFERÐABIFREIÐ • EFTIRVAGN
UKUð^ULI a.u.
Némskeiðið hefst
mánudaginn 3. júní kl. 18.
Mikil eftirspurn er nú eftir meiraprófsbílstjórum!
Hagstætt verð og góð greiðslukjör
Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaða.
Skráningar í símum 581 1919,898 3810 og 892 4124
Kennt er í Sjálfsbjargarhúsinu, Fitjabraut 6c, Njarðvík.
ÖKUSKÖLI
sími iiHi inin i:vn?ii?gdMii
LEIGUBIFREIÐ VÖRUBIFREID HÚPBIFREID
VÍKURFRÉTTIR • 22. tölublað 2002
25