Víkurfréttir - 30.05.2002, Blaðsíða 26
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
M' m ^3385 Verkalýðs sjómannaf Keflavíli og nógrei sendir sjómör á Suðurnesjum og íjölsky þeirra bestu hátíðarkv í tileíni da< I »■ og élag tur . nms mum idum eðjur jsins
Nýtt útlit á Net www.vf. inu! is
<J> Krabbameinsfélag Suðurnesja opnar skrifstofu „þjónustumiöstöð' Hringbraut 99, e.h. í Keflavík. fimmtudaginr Opið verður þann dag kl. 13-17 fyrir gesti og skráningu í Heilsuhlau Opnunartíminn er annars á þriðjudögum sjá nánar fréttatilkynningu. Krabbameinsfélag Suðurnesja, sími 4 netfang: krabbsud@simnet.is að 16. júní nk. DÍð. kl. 13-18, 21 6363
wn IIOHITÍII
Kaffitár óskar eftir starfsfólki í eftirfar Pökkun og framleiðslu í s Sumarafleysingar frá 1. júní -1. október 2002 Símavörslu og skrifstofust Um er að ræða fullt starf til fra Upplýsingar gefur Guðbjc í síma 421 2700. andi störf. al. örf. imtíðar irg
FRÉTTIR
Stærsta sjómannahátíð
landsins í Grindavík
Sjóarinn síkáti, sjómanna- og fjölskylduhátíö, fer fram í
Grindavík sjómannadagshclgina 1.-2. júní. Að sögn Her-
manns M. Sigurðssonar, formanns sjómanna- og vélstjórafé-
lags Grindavíkur þá telur hann líklegt að þetta sé staersta sjó-
mannahátíð sem haldinn verður á landinu. Meðal skemmtanna
verða sprell lciktæki og kraftakeppni í umsjón Magnúsar Ver,
kraftajötuns. Þá verður einnig sjómannadagsball í Festi undir
veislustjórn Ómars Ragnarssonar. Á sjálfan sjómannadaginn,
sunnudag, verða ýmis hátíðarhöid við höfnina. Þá mun Ottó
Magnússon íslandsmeisari í klakaskurði sýna listir sýnar ásamt
fleirum skemmtanahöldum í Grindavík á þessari glæsihátíð mcð
þéttskipaðri dagsskrá. Útvarpsstöðin Bylgjan verður með beina
útsendingu frá Grindavík yfir helgina.
Blómamarkaður í Njarðvík
st ui 'tar
FRÉTTIR
Sjómannadagurinn
í Garðinum
Sjómannadagurinn hefst klukkan
11, laugardag, en þá verður siglt
frá Gerðabryggju á Hannesi Þ.
Hafstein. Á sunnudaginn verður
Einar Georg Einarsson ræðu-
maður dagsins og sjómaður
verður heiðraður í tilefni dagsins.
Eftir messu á sjómannadaginn
verður kaffísala í Þorsteinsbúð,
þar mun harmonikkuleikari spila
sjómannalög fyrir gesti.
Sjómannadagurinn
í Reykjanesbæ
Sjómannadagurinn verður hald-
inn hátíðlegur í Reykjanesbæ.
Dagskráin hefst með sjómanna-
messu íYtri - Njarðvikurkirkju
klukkan 11. Hvalaskoðunarbát-
urinn Moby Dick mun sigla frá
Keflavikurhöfn klukkan 13:30,
en að því loknu hefjast hátíðar-
höld í Reykjaneshöllinni þar sem
boðið verður upp á þéttskipaða
skemmtidagskrá fyrir alla aldurs-
hópa. Þá verður mikil sýning í
Bátasafhi Gríms Karlssonar í
Duus húsum á sjómannadag. En
þar verður sýnt myndband um
Grím og harmonikkuleikarar
spila fyrir gesti og gangandi.
Safhið verður opið frá klukkan
11-18.
Sjómannadagur
í Sandgerði
Hjálmar Ámason, alþingismað-
ur, verður ræðumaður dagsins á
sjómannahátíð í Sandgerði sem
fer fram á laugardag og sunnu-
dag. Dorgveiðikeppni verður á
höfhinni þar sem aflinn verður
vigtaður og mældur. Ymis önnur
skemmtidagskrá verður yfir
helgina en þyrla Landhelgisgæsl-
unnar mun einnig líta við á
sunnudeginum.
Föstudaginn 31. maí til sunnu-
dagsins 2. júní n.k. heldur
Systrafélag Ytri-Njarðvíkur-
kirkju sinn árlcga blómamark-
að. Þetta er 22. árið sem
blómamarkaðurinn er haldinn
og er hann orðinn fastur liður í
hugum margra bæjarbúa.
Mörgum fínnst sumarið fyrst
komið þegar Systrafélagskon-
ur helja sölu sína. Þetta er
aðal fjáröflunarleið félagsins
og vonumst við eftir að sem
flestir komi og geri góð kaup.
Eins og undanfarin ár verður
m.a. boðið upp á sumarblóm,
fjölær blóm, rósir og runna.
Markaðurinn verður við kirkj-
una og er opinn alla dagana
frá 13-17. Alltaf heitt kaffi á
könnunni.
Með fyrirfram þökk fyrir
góöan stuðning,
Systrafélag
Ytri-Njarðvikurkirkju
i--------------------------------------------------1
Kvenfélagið í Njarðvík heldur kökubasar n.k.
föstudag, 31. maí, við Stapann í Njarðvík. Allur j
ágóði mun renna til líknarmála. Stjórnin.
Vorsýning fimleikadeildar Keflavíkur var haldin með pompi og pragt í íþróttahúsinu við
Sunnubraut. Sýningin var lokahlekkur í vetrastarfi deildarinnar og eftir hana eru langflestir iðk-
endurnir komnir í sumarfrí. Sýnd voru atriði frá öllum aldurshópum fimleikanna og var mikið fjör á
svæðinu enda glæsileg sýning. Margt var um manninn og voru áhorfendasvæði kjaftfull af fólki.
26