Víkurfréttir - 30.05.2002, Page 30
Keflavíkursigur í Eyjum
Keflvíkingar gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu
ÍBV 1-2 á Hásteinsvelli
í Vestmannaeyjum í 2.
umferð Símadeildarinnar í
knattspyrnu sl. laugardag.
Heimamenn komust yfir á
10. mínútu en nokkrum
mínútum fyrir leikhlé sko-
raði Þórarinn Kristjánsson
mark fyrir Keflavík. Það var
svo Guðmundur Steinarsson
sem skoraði sigurmarkið 10
mínútum fyrir leikslok eftir
um 40 metra sendingu frá
Jóhanni Benediktssyni.
Kristján Jóhannsson miðju-
maður Keflavíkurliðsins stóð
fyrir sínu í leiknum eins og allt
Keflavíkurliðið og sagði hann
að það hefði verið mjög mikil-
vægt að vinna í Eyjum. „Við
byijuðum frekar illa og fengum
á okkur mark snemma. Við
vöknuðumu hins vegar eftir
markið og spiluðum mjög vel
það sem eftir lifði leiks. Eftir
að við komumst yfir
bökkuðum við aðeins og
vörðumst og gekk það mjög
vel“.
Að sögn Kristjáns kann hann
vel við sig í nýrri stöðu sem
aftuliggjandi miðjumaður. „Að
vera svona afturliggjandi hjál-
par bæði vöminni og miðjunni.
Þetta er ný leikaðferð hjá
Kjartani og er þetta allt að
smella saman“.
Ykkur var spáð falli af öllum
fjölmiðlum, eru þið vanmetið
lið?
„Það er í raun ekki óeðlilegt að
okkur sé spáð falli enda erum
við með lítið þekkt lið og mar-
gir að spila sína fyrstu leiki í
efstu deild. Menn ætla sér hins
vegar að sýna það og sanna að
þessar spár em rangar“.
9
VF-maður leiksins:
Omar Jóhannsson
Kristján Jóhannsson
(iuðmundur Sleinars.
Þórarinn Kristjáns. vj?
Tilþrif leiksins:
Sóknin scm gaf seinna mark
Keflvíkinga.
Atvinna
Pizzasendlar óskast í hlutastarfá kvöldin
og um helgar.
Umsækjendur verða að hafa bíl til umráða.
Eingöngu áhugasamir koma til greina.
Góð laun í boði.
Upplýsingar gefur Ingólfur á staðnum
eða i sima 8612050.
Hafncirgötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777
Sjémanna-
dagshelgin
L
TILBOÐ
Fiskitvenna borin fram með
bakaðri kartöflu, salati og dillsósu
Eplakaka með vanilluís,
aðeins kr. 2200,-
LÉTT OG ÓDÝRT
Höfum bætt við úrvali af
spennandi léttum og
TILBOÐ
Rjómalöguð Aspargussúpa
Nautafillet borið fram með
bakaðri kartöflu, grænmeti
og sveppasósu,
aðeins kr. kr. 2900,-
Borðpantanir í síma 421 8787
ódýum réttum.
ILAUGARDAGUR
Fyrstu sem panta borð fyrir
laugardaginn fá aðgöngumiða á
sjómannadagsballið með
Milljónamæringunun í Stapa
HAFNARGATA 62 • KEFLAVIK • SIMI 421 8787
SPORT________________
Tvö glötuð stig hjá Grindavík
Grindvíkingar náðu
aðeins jafntefli gegn
Fram, 1-1, í Síma-
deildinni sl. laugardag en
leikurinn fór fram Grinda-
vík. Grindvíkingar voru
sterkari aðilinn í leiknum en
náðu þó ekki að skapa sér
nein alvöru færi. Guð-
mundur Bjarnason skoraði
eina mark þeirra gulu á 3.
mínútu með þruntuskoti eftir
sendingu frá Scott Ramsey.
Að sögn Bjama Jóhannssonar
þjálfara var frekar dapurt að
vinna ekki leikinn. „Við vorum
ekki að spila vel og þetta voru
tvö glötuð stig. Þetta er sérstak-
lega sárt þar sem við vorum á
heimavelli. Við þurfum smá
tíma til að smella saman og ná
að stilla okkar strengi og
vonandi gerist það sem fyrst.
Það hafa verið óvænt úrslit í
fyrstu umferðunum sem sést
best á þvi að fyrir 3. umferðina
voru þrjú neðstu liðin þau lið
sem enduðu í þremur efstu
sætunum í fyrra“.
Voru þið ofmetnir í spám
fjölmiðla?
„Ég veit það nú ekki en spár
fjölmiðla eru orðnar hálfgert
djók. Við getum hafa verið
ofmetnir eða önnur lið van-
rnetin. Fjölmiðlar virðast vera
famir að reyna að vera „röff og
töfF‘ í spám frekar en að láta
skynsemina ráða og ég held að
þessar væntingar til
Grindavíkurliðsins séu ekki
alveg marktækar“.
Hvað er það sem Grinda-
víkurliðið þarf að laga?
„Við erum með svipað lið og í
fyrra enda héldum við flestum
okkar mönnum og höfiim bætt
í hópinn. Við verðum hins
vegar að beijast betur í leikjum
því þetta kemur ekki að sjálfu
sér. Menn sigra ekki fót-
boltaleik nema að berjast og
því þurfum við að reyna að
blása meira lífi í okkar leik.“
©
VF-maður leiksins:
Guöinundur Bjamason
Ólafur Ö. Bjama
Sinisa Kekic vj?
Tilþrif leiksins:
Mark Guðmundar
Bjarnasonar var glæsilcgl.
Coca-Cola sigrar
Fyrsta umferð Coca-Cola
bikarsins í knattspyrnu
byrjaði 22. maí sl. með
tveimur leikjum. Keflavík U23
sigraði Gróttu 1-5 á Gróttuvelli
og Reynir sigraði IH 2-1 en
leikurinn var í Sandgerði.
Umferðin hélt svo áfram 23. mai
með þremur leikjum. Víðir
sigraði Deigluna 2-0 i Garði,
Grindavík U23 sigraði Ulfana 5-
4 og Njarðvíkingar sigruðu
Skallagrim 0-3 í Borganesi.
Helgi Steinsson með
vallarmet í Eyjum
Helgi Dan Steinsson, golfari úr
GS, setti glæsilegt vallarmet á
golfvellinum í
Vestmannaeyjum sl. helgi
þegar hann lék völlinn á 63
höggum. Helgi varð í 1. sæti á
mótinu á samtals 201 höggi en
þetta var fyrsta stigamótið á
Toyota mótaröðinni. Helgi setti
metið á síðasta hring mótsins
og tryggði sér þannig um leið
frækinn sigur.
Fimmtudagurinn 30. maí 2002
FOTBOLTA
molar
Lyn tekið í kennslustund
Jóhann B. Guðmundsson og
félagar í norska liðinu Lyn
töpuðu mjög illa gegn Stabæk í
norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu sl. mánudag.
Leikurinn fór 5-0 fyrir Stabæk en
Lyn spilaði mjög illa eins og
tölumar gefa til kynna. Lyn hel-
dur þó enn toppsæti deildarinnar
með 21 stig. fjórum stigum á
undan næsta liði.
Lyn hefur tapað tveimur leikjum
í deildinni og báðum mjög illa.
Fyrst fyrir Rosenborg 5-1 og nú
fyrir Stabæk 5-0.
Grindavíkurstúlkur komu
á óvart í Eyjum
Grindavík sigraði ‘IBV, 0-1, í
Símadeild kvenna i knattspymu
á sunnudag. Það var nýr leik-
maður Grindavíkurstúlkna,
Karen Penglase, sem skoraði
markið úr vítaspymu á 25. mínú-
tu. Þetta eru mjög góð úrslit fyrir
Grindvíkinga sem sjá fram á
erfitt sumar enda með mjög ungt
lið. Grindavík er með þrjú stig
eftir tvo leiki í deildinni.
Suðurnesjaliðin á góðu skriði
Víðir sigraði Skallagrím 2-0 sl.
mánudag í 2. deild karla í
knattspymu en leikurinn fór fram
á Garðsvelli. Þetta var annar
sigur Víðis í jafn mörgum
leikjum í 2. deild og em þeir í 1.
- 3. sæti í deildinni ásarnt
Njarðvík og HK.
Njarðvikingar sigmðu Tindastól
2-1 á fostudag. Tindastóll komst
yfir á 14. mínútu en stuttu síðar
jafnaði Eyþór Gunnarsson
leikinn. Eyþór skoraði svo sigur-
markið á 20. minútu en
Njarðvíkingar voru óheppnir að
vinna ekki stærri sigur þar sem
Sævar Gunnarsson misnotaði
vítaspyrnu og Eyþór misnotaði
dauðafæri á ótrúlegan hátt.
í 3. deildinni sigraði Reynir,
Gróttu 4-1 í skemmtilegum leik í
Sandgerði. Þetta var fyrsti
leikurinn í B-riðli 3. deildar og
eru Reynismenn eina liðið með
stig í riðlinum og sitja því í efsta
sæti.
RKV tapaði í grófum leik
RKV tapaði 5-1 fyrir
Haukastúlkum í 2. deild kvenna í
knattspymu i kvöld en leikurinn
fór fram í Hafnarfirði. Haukar
leiddu 3-0 í hálfleik og voru
miklu sterkari aðilinn en í seinni
hálfleik var jafnræði með
liðunum. Það var Hulda
Jónssdóttir, fyrirliði RKV, sem
skoraði mark gestanna úr
aukaspyrnu en það kom ein-
faldlega of seint.
RKV-stúlkur léku nranni færri
síðustu 35 mínútur leiksins eftir
að Nínu Osk Kristinsdóttur var
vikið af leikvelli fyrir kjaftbrúk.
Haukastúlkur spiluðu mjög gró-
fan leik sem varð til þess að þrír
leikmenn RKV liðsins fóm mei-
ddar af leikvelli og var t.d. ein
stúlkan send á sjúkrahús. Að
sögn Huldu, fyirliða RKV, var
dómarinn vægast sagt skelfilegur
og í raun til háborinnar skammar.
30