Víkurfréttir - 20.06.2002, Page 43
GOLFVELLI RN I R
Góður golfvöllur fyrir byrjendur
að Vallarhúsum við Sandgerði
Vallarhúsavöllur í Sandgerði er
þægilegur og góður golfvöllur
sem hentar vel byijendum jafnt
sem lengra komnum og er léttur und-
ir fórinn. Ekki er mikið um erfiðar
holur á vellinum en 2. holan sem er
par þrír hola er talin sú erfiðasta og
hefur oft komið hátt skor af henni.
ViðVallahúsavöll er gott klúbbhús
með veitingasölu og einnig er þar á-
gætt æfingasvæði.
Golfvöllurinn áVatnsleysuströnd er
byggður upp ffá gömlum túnum
og er hann umlukin hrauni og
gijótgörðum.Völlurinn er 9 holur, stutt-
ur en samt sem áður nokkuð erfiður.
Hann hentar vel fýrir byijendur og há-
forgjafakylfinga. 5. hola vallarins hefbr oft
farið iHa með rnargan kylfinginn enda
þarf gott teighögg ef takast á að komast
irrná grín á þessari par þijú holu. Klúbb-
hús er við völlinn þar sem er nbnniháttar
veiringasala og ýmsar smávörur ril
golfiðkunar, s.s. boltar og tí.
„Martröðin“ og
„skelfingin“ hrella
golfara í Gríndavík
IGrindavík er Húsatóftavöllur, 13 holu golfvöllur rétt fyrir
utan byggð, sem opnaður var 1981 og er næst elsri golf-
völlur á Reykjanesi. Glæsilegur völlur sem lifgur að
nokkrum hluta meðffam sjávarlengjunni og er svo umlukin
hrauni.Tvær nýjar holur hafa vakið töluverða athygli en það
eru „martröðin" (9. hola) og „skelfingin" (10. hola) en þær
bera nafn með réttu enda mjög erfiðar og ef ekki er spilað rétt
geta menn lent í vandræðum. A Húsatóftum er golfskáli með
veiringasölu og æfingasvæði er einnig til staðar.
Stuttur en erfiður
völlurá Vatns-
leysuströndinni
43