Víkurfréttir - 20.06.2002, Side 47
NÝ MENNINGARSTOFNUN
Saltfisksetur íslands
opnar í Grindavík
Sett hefur verið á
stofh sjálfseignar-
stofiiun sem heitir
Saltfisksetur Islands í
Grindavík. Asamt
Grindavíkurbæ standa 15
fyrirtæki og einstaklingar
að sjálfseignarstofhuninni.
Dómsmálaráðherra stað-
festi skipulagsskrá stofii-
unarinnar þann 12. júní
2001. í sq'órn Saltfiskset-
ursins eiga sæti: Einar
Njálsson, bæjarstjóri sem
er stjórnarformaður.
Aðrir í stjórn eru Dag-
bjartur Einarsson, Petrína
Baldursdóttir, Guðmund-
ur Einarsson og Björn
Haraldsson.
Saltfisksetur Islands mun setja
upp og reka sýningu tileink-
aða saltfiski. Markmið sýning-
arinnar er að:
Safna saman og varðveita
muni og myndir sem segja
sögu saltfisksins í þeiin til-
gangi að kynna fýrir almenn-
ingi og ferðamönnum mikil-
vægi þessa atvinnuvegar fýrir
íslenskt samfelag.
Sinna fræðslustarfi fýrir skóla
og aðrar menntastofiianir um
saltfiskvinnslu og samfelagsleg
áhrif hennar á íslandi.
Veita afþreyingu fýrir ferða-
menn sem sækja Grindavík
heim. Kynna fýrir gestum
saltfisk, bragð hans og gæði
með sérstakri áherslu á hrein-
leika íslensku vörunnar og
§ölbreytta möguleika í matar-
gerð.
Hugmyndin er búin að vera
nokkuð lengi í deiglunni.
Hún kviknaði vegna þess að
fýrirtæki í Grindavík hafa
löngum verið stærst í saltfisk-
framleiðslu á landinu og eru
enn. Og leiðandi menn í
sölusamtökum framleiðenda
hafa gjarnan komið úr
Grindavík. Allar aðstæður
eru ákjósanlegar í Grindavík
vegna nálægðar við stærsta
markaðssvæðið, Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og Bláa lónið.
Kostur er á samstarfi við Bláa
lónið og Eldborg þar sem er
jarðsögusýning Hitaveitu
Suðurnesja við Svartsengi.
Og síðast en ekki síst er
ákjósanlegt að vera í tengslum
við lifandi starfsemi hafnar-
innar og sjávarútveginn í
Grindavík.
I fýrsm var unnið út frá því
að nýta byggingu sem áður
hýsti áhaldahús bæjarins fýrir
sýninguna. Þegar á átd að
herða þótti hún ekki henta
hvorki vegna stærðar eða
staðsetningar. Akveðið var að
ráðast í byggingu sýningar-
skála og samkomulag tókst
við fýrirtækið Þorbjörn
Fiskanes h/f um að láta eftir
hluta af lóð felagsins við
Hafnargötu fýrir hús Saltfisk-
setursins. Lóðin er afar vel
staðsett, miðsvæðis við höfh-
ina og sér vel yfir athafha-
svæðið. Kann ég forsvars-
mönnum fýrirtækisins bestu
þakkir fýrir viðsýni og þann
mikla velvilja sem þeir sýna
verkefninu með þessari gjörð.
Þegar þetta lá fýrir var farið í
alútboð á húsnæði. Fjórir
verktakar voru valdir i forvali
til að taka þátt i útboðinu.
Spennandi tillögur bárust frá
öllum bjóðendum og var
samþykkt að ganga til sarrm-
inga við lægstbjóðanda í
verkið.
Þannl4. desember 2001 var
undirritaður verksamningur
milli Istaks h/f og Saltfisk-set-
ursins um byggingu sýningar-
skála. Sýningarskálinn er 650
m2 að grunnfleti og sýning-
arsvæði á tveimur gólfúm alls
510 m2. Gert er ráð fýrir að
húsið verði tilbúið í ágúst
2002 og kostnaðarverð sam-
kvæmt verksamningi er unt
106,5 milljónir króna.
Grindavíkurbær mun verða
leiðandi aðili við framkvæmd
verkefnisins í samstarfi við
stofnendur Saltfisksetursins og
aðra styrktaraðila. Sparisjóð-
urinn í Keflavík verður bak-
hjarl verkefnisins hvað varðar
fjármögnun. Hönnuðir sýn-
ingarskálans eru Yrki s/f arki-
tektar Asdís H. Agústsdóttir
og Sólveig Berg Björnsdótdr.
Síðastliðið sumar var gerður
samningur við Björn G.
Björnsson sýningahönnuð
um hönnun og uppsetningu
sýningarinnar. Þeirri vinnu
miðar vel áfram og módel er
að verða tilbúið. Saga salt-
fisksins verður sögð með stór-
um myndum, hnitmiðuðum
texta og faum en lýsandi
munum. Gínur konra í stað-
inn fýrir fólk í leikmyndinni.
Mörkuð er ákveðin leið í
gegnum sýninguna og sagan
þannig rakin í tímaröð. Gert
er ráð fýrir að uppsetning
sýningarinnar geri hafist áður
en frágangi hússins lýkur þan-
nig að hús og sýning verði
tilbúin á svipuðum tíma. I
framtíðinni má tengja við
sýningarsalinn veiringahús
sem hefhr á boðstólum sæl-
kerarétti úr saltfiski
Sýning af þessu tagi á sér ekki
margar hliðstæður á Islandi. I
henni felst kröftug uppbygg-
ing atvinnumála og styrking
ferðaþjónustu í bænunt. En
hér er fýrst og fremst á ferð-
inni mjög merkilegt og að
mörgu Ieyri einstakt ntenn-
ingarlegt framtak. Hér er ekki
bara verið að staðfesta sögu-
lega og menningarlega sjálfs-
rnynd Grindavíkur heldur er
hér haldið á Ioft römmum
þætri i sögu Islands og lífsbar-
áttu þjóðarinnar. Sú er mín
spá að gesrir muni koma út af
þessari sýningu með brim-
roða á hvarmi og saltbragð i
munni.
Einar Njálsson
47