Víkurfréttir - 20.06.2002, Qupperneq 48
m. ^
Jónsmessu-
töfrar í
Bláa lóninu
Jónsmessunótt er ein mest
töfrandi og ævintýralegasta
nótt ársins. I tilefni Jóns-
messunnar verður Bláa lón-
ið opið til kl 01:00 sunnu-
daginn 23.júní.
Einnig er boðið upp á Jóns-
messugöngu á fjallið Þor-
björn sem er staðsett í næsta
nágrenni við Bláa lónið.
Gangan er árlegur við-
burður og eykst fjöldi
göngufólks nteð ári hveiju.
Lagt verður af stað kl 20:00
frá Sundlaug Grindavíkur
og er hópurinn væntanlegur
í Bláa lónið um kl 23:00.
KK mun fara með göngu-
fólki á Þorbjörn og taka
lagið þegar á toppinn er
komið. Sætaferðir vegna
göngunnar eru frá BSI kl
19:15 og frá Keflavík (SBK)
kl 19:30. Rúturnar fara til
baka kl 00:30
Jónsmessudagskráin er sam-
vinnuverkefni Bláa Lónsins
og Grindavíkurbæjar.
Á síðustu tveimur árum hafa Steinþór Jónsson,
hótelsgóri á Hótel Keflavik, ogjón Þór Maríus-
son felagi hans gert tilraunir með hvalaskoðun-
ar- og skemmtiferðir á sæþotum. Kalla þeir æv-
intýrið “Kick ferðir” enda fatt sem jafnast á við
hraða ferð á sæþotu á fallegum Faxaflóanum
með hvali og fugla í návigi.
Hótel Keflavík býður í dag uppá fjórar sæþot-
ur, þijár þriggja manna að gerðinn Sea
DoollOhp og eina tveggja manna Kawasaki
85hp. Aðstaða fýrir sæþotur og þurr-galla er hjá
Sportköfunarskóla Islands í Grófinni og er hún
til mikilar fýrirmyndar. „Mikilvægt er að að-
staða fýrir gesti sé góð þar sem allir þurfa að
vera í þurrgalla, hafa björgunarvesd, skó, hjálm
og fl. og má segja með sanni að þetta ævintýri
væri ekki mögulegt nema vegna aðstoðar hers-
höfðingja Bláa hersins, Tómasar Knútssonar",
sagði Steinþór og bættí við að öryggismál væru
í hávegum höfð og hefði fýlgdarbátur verið
með í flestum ferðum, sérstaklega þegar um
nýja aðila er að ræða.
I dag er Hótel Keflavík eina fýrirtækið í heim-
inum sem býður uppá hvalaskoðun á sæþotum
og hér er því um að ræða mikið frumkvöðla-
starf. Þar sem ánægja þeirra sem þetta hafa pru-
fað er gríðarleg telja felagarnir, Steinþór og Jón
Þór, að stutt sé í að aðrir taki þessa hugmynd
upp, jafnvel hér á Islandi og hafa þeir þegar
heyrt hugmyndir á þá leið. Segir Steinþór að
gaman sé að finna nýjar leiðir til afþreyingar en
Hótel Keflavík hefur verið leiðandi í nýjungum
i ferðaþjónustu um árabil.
Auk hvalaskoðunarferða bjóða “Kick ferðir”
uppá skoðunarferðir með Berginu að Garð-
skagavita en þar er að finna mörg skemmtileg
björg og iðandi fuglalíf. Á Garðskagavita er
hægt að skoða gamla gufukada frá skipsköðum
fýrri tíma. Þá hafa felagarnir í hyggju að bjóða
uppá ferðir að Eldey frá Sandvík en slík ferð
kallar á gott sjólag og mikinn undirbúning. Að
sjálfsögðu er hægt að fara hvert sem er og þá
eru skíðin keyrð á þann stað sem best hentar að
leggja út frá.
Þá er bara fýrir alla sem vilja fa meira út úr líf-
inu að hafa samband við þá á Hótel Keflavík og
kanna möguleika á ævintýraferð lifs síns. Einnig
er hægt að fa frekari upplýsingar á www.kef.is.
i
ÓKEYPIS