Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 21.11.2002, Side 18

Víkurfréttir - 21.11.2002, Side 18
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is UMRÆÐAN_____________LÆKNADEILAN Á SUÐURNESJUM Málefni heilsugæslunnar í okkar hendur! að sem brennur á fólki hér á Suðurnesjum er málefni heilsugæslunnar. Þcgar Róm brann lék Neró keisari á fiðlu. 1 licil- brigðisráðu- neytinu er kannski ekki leikið á fiölu, heldur fýkur í kviðlingum. Á meðan ríkir upplausn með uppsögnum lækna og óánægju. Grundvallaratriðin virka ekki. Fólk er farið að fara framhjá tryggingakerfinu og greiöa sjálft fyrir þjónustuna, þeir sem efni hafa á því. Það ó- fermdarástand sem nú ríkir í málefnum heilsugæslunnar á Suðurnesjum er afleiðing stefnuleysis í heilbrigðismálum. Það þarf að stokka upp kerfið. Til þess þarf þverfaglegar að- gerðir og samhæfðar lausnir undir stjórn heimamanna, þar sem áhugasamtök og aðilar vinnumarkaðarins koma einnig að málinu. Frumheilsugæslan verður að vera virk. Sjúklingar verða að hafa að- gang að lækni, heilsugæslulækni, sem þeir þekkja og geta treyst. Þeir læknar sem nú eru farnir, eru farnir annað og það tekur mörg ár að byggja upp nýtt traust milli nýrra lækna og íbúanna. Frumheilsugæslan er anddyrið að skilvirku heilbrigðiskerfi. WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hef- ur komist að þessari niðurstöðu. Vinnulag heilsugæslulækna er mun ódýrari fyrsti kostur en sér- fræðilæknisþjónusta. Öflug frumheilsugæsla er þess vegna skynsamleg. I Evrópu eru menn að glíma við svipaðan vanda í heilbrigðiskerf- inu. Ný kostnaðarsöm meðferð- artækni, auknar kröfiir almenn- ings og væntingar fólks eru til þess fallnar að auka á þrýsting um meiri þjónustu samtímis því sem opinber útgjöld eru undir aðhaldi. Þetta er spurning um forgangsröðun. I Hollandi komust menn að því að rétt væri að efla frumheilsugæsluna. Þar töldu menn ekki þörf fyrir fleiri en einn húðsjúkdómalækni, svo dæmi sé tekið, á hveija 100 þús. íbúa. I Reykjavík eru þeir a.m.k. 10 með sjálftökurétt í trygginga- kerfið, sogrör í ríkiskassann, ef svo má segja. Auðvitað sjá allir að íslenska kerfið hefur bitnað á heilsugæslunni. Við erum að súpa seiðið af því og nú situr Jón Kristjánsson í súpunni og ræður ekki við nokkum hlut. Heilbrigðismál em hluti af okkar samfélagsgerð, hluti af velferðar- kerfinu í heild. Það þarf að ræða og ígrunda þörfina á að endur- skipuleggja þetta kerfi i heildar- samhengi þess raunvemleika sem við lifúm í en ekki sem þröngt afmarkað sérsvið öðm óviðkom- andi. Margir sem leita til sérfræði- lækna í dag, kannski þrír af hveijum fjórum, þjást ekki af lík- amlegum kvillum fyrst og fremst. Faraldsfræðikannanir benda á samhengi milli heilsu- fars og efnahags. Fyrir maiga er oft of erfitt að vera til og van- heilsan stafar af geðrænum, til- finningalegum eða félagslegum ástæðum. Sumir kalla þetta streitusjúkdóma sem gegnsýra þjóðfélagið. Hugtök eins og sjúk- dómsvæðing ryðja sér til rúms eða „læknisfræðileg súrsun" þar sem fólk er vanið undir heil- brigðiskerfið og gert að leiksopp- um gróðaafla og lyfjaiðnaðarins sem er að kollkeyra kerfinu. Það þarf að sigrast á þessari þróun og tryggja raunverulega ávinninga heilbrigðis og lífsgæða. Heilsu- efling í víðasta skilningi þess orðs er lykilatriði. Heilsueflingin krefst þverfaglegra aðgerða og samhæfðra lausna, þar sem á- hugasamtök og aðilar vinnu- markaðarins koma einnig að málinu. Það er þverpólitískt og þverþjóðfélagslegt og verður ekki unnið nema í samráði við heilbrigðisstéttirnar. Það þarf að efla heilsugæsluna með pólitískri ákvörðun um samvinnu ríkis og sveitarfélaga þar sem sveitarfélög yfirtaka rekstur heilsugæslu- stöðvanna, í þágu þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Það er nauðsynlegt fyrir heil- brigðisþjónustuna að setja sér markmið. Fyrst og fremst þarf markmiðið að fela í sér raunhæfa möguleika á að hægt sé að ná því. Heilsuefiing er raunhæft markmið þar sem íslenska heilsugæslukerfið, hentar vel ef það virkar og mun spara stórfé þegar til lengdar lætur. Islenska heilbrigðiskerfið kemst ekki af án heimilislækna eða heilsu- gæslustöðva. Það er raunhæft markmið að sveitarfélögin á Suð- umesjum taki að sér að reka þá starfsemi án stjórnunarafskipta ríkisins. Þá er málið i okkar höndum og undir okkur komið að gera það vel. Skúli Thoroddsen er lögfræðingur, með fram- haldsnám í hcilbrigöisþjón- ustufræðum og starfar sem framkvæmdastjóri MSS. Að loknum boígarajunái um heilsugæslumál FUNDURINN VAKTI UPP UMRÆÐUR UM SKIPULAG HEILSUGÆSLUNNAR. Eins og oft áður urðu miklar umræður eftir fúndinn á Ránni, sem væri efni í annan borgarafúnd. Fólki var tíðrætt um skipulag heilsugæslunnar og reyndir sveitarstjórnar- menn veltu því fyrir sér hvort rétt hafi verið að flytja heilsugæsluna á sínum tíma til ríkis frá sveitarfélögum og hvernig og hvort hægt væri að koma yfirstjóm heilsugæslunnar aftur í hendur heimamanna. Mér fannst tillaga Skúla Thoroddsen (sem hann dró reyndar til baka) og greinargerð með henni áhuga- verð. Þar nefnir Skúli áhugasamtök og varð mér hugsað til svokallaðs neytendafé- lags um heilbrigðisþjónustuna sem starf- aði hér á níunda áratugnum og hét „Á- hugafélag um heilbrigðismál á Suðumesj- um“ og Amdís Tómasdóttir var í forsvari fyrir. Eg held að þetta félag hafi verið einsdæmi á landsvísu. AF HVERJU BÚA HEILSUGÆSLULÆKNAR EKKI Á SVÆÐINU? Nokkrar ræðumanna á fúndinum bentu á hvað svæðið hér suður með sjó er sérstakt. Séra Ólafúr Oddur sagði að svæðið væri þekkt sem mjög viðkvæmt svæði. Árni Sigfússon bæjarstjóri hafði sagt fra þvi í sjónvarpsviðtali að engir heilsugæslulækn- ar væru búandi hér á svæðinu sem er mjög bagalegt og sérstakt. Á fundinum lýsti Ámi þeirri skoðun sinni að heilsu- gæslulæknar þyrftu „að anda með fólk- inu“. Eftir fundinn veltu menn vöngum yfir því af hveiju heilsugæslulæknar vilja ekki búa á meðal okkar hér á svæðinu og hvort nýráðinn framkvæmdastjóri Heilsu- stofnunar Suðumesja ætli að setjast hér að? VID ERUM ÞEKKT FYRIR AÐ FARA ÓHEFÐ- BUNDNAR LEIÐIR. Það fyrsta sem sveitarfélögin á Suðumesj- um sameinuðust um á sínum tíma var að koma á heilbrigðisþjónustu sem þá var í formi Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishérðs. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa líka hafl fhimkvæði að ýmsu sem ekki þekkist annars staðar í samstarfi sveitarfélaga og þeir hafa verið frumkvöðlar á margan hátt. Suðumesjamenn em þekktir fyrir að þora að fara óhefðbundnar leiðir og sérstaða okkar er ekki síst sú að hér búum við í ná- býli við herstöð og alþjóðaflugvöll sem eitt og sér skapar okkur sérstöðu á lands- vísu. Sú staðreynd hefúr m.a. áhrif á atvinnulíf- ið og þar með inn á hvert heimili. Tengsl okkar við þessa stóm vinnuveitendur s.s. Vamarliðið, verktaka tengda því og Flug- stöðina, hafa áhrif á okkar daglega líf og heilsugæslu okkar t.d. er vaktavinna hér algengari en annars staðar í byggðakjöm- um úti á landi. Áhrif vaktavinnunnar gár- ast út og hefúr víðtæk áhrif á líf fólks hér. Kristján Gunnarsson segir að hér sé at- vinnuleysi mikið núna en hér hefúr búið tiltölulega tekjuhátt fólk og lífsgæðakapp- hlaupið er frægt hér. Við eigum falleg hús og góða bíla, sumarbústaði og íbúðir á er- lendri gmndu. Við ferðumst mikið og höf- um tileinkað okkur annan lífsstíl en þekk- ist annars staðar á landinu. Þessir félags- legu þættir berast oft inn á borð heilsu- gæslulækna sem ef þeir hafa aldrei búið hér em ekki líklegir til að geta áttað sig á þeim eða eiga a.m.k. erfiðara með að setja sig í spor fólksins sem þeir „ anda ekki með“. VIÐ ÞURFUM NÆRÞJÓNUSTU í HEILSU- GÆSLUNNI Eitt af því sem fólk ræðir um em ferða- peningar eða 40 milljónir á ári sem greidd- ar em til Heilbrigðisstofúunarinnar. Megn- ið af því fer til þeirra lækna sem hér hafa starfað. Getur verið að heilsugæslulæknar fái þessa ferðapeninga greidda og séu auk þess að keyra til og ffá vinnu í vinnutíma sínum? Ljóst er að sveitarfélögin hér á svæðinu em að tapa útsvarstekjum þessara lækna sem eftir því sem heilbrigðisráð- herra sagði á fúndinum hafa 6 - 700 þús- und i mánaðarlaun (fyrir utan ferðapening- ana?). Fyrir utan allt annað sem myndi fylgja búsetu þeirra hér, fasteignagjöld o.fl. Ef við skoðum þetta í víðara sam- hengi þá er ekki spuming að það hlýtur að vera skilyrði að fá lækna sem hafa búsetu hér og em nær okkur en hingað til hefúr verið og sem ekki em eins og farandverka- menn sem maður þarf alltaf að vera að þylja upp sjúkrasögu sína fyrir og byggja upp nýtt traust. I þessum geira þurfum við svokallaða nærþjónustu þar sem þeir sem starfa í heilsugæslunni em í tengslum við sveitar- stjómir, löggæsluna, atvinnulífið, presta og skólana á svæðinu. Á fúndinum var mikið talað um grunnþjónustuna og hver er hún? Þarf ekki heilsugæslan að koma meira að forvömum? Einn fúndarmanna spurði hvort við ættum ekki rétt á sömu heilbrigðisþjónustu og aðrir landsmenn? Séra Olafúr höfðaði til siðareglna lækna því ljóst er að læknamir sem fóm héðan og réðu sig annars staðar. Hafa skjólstæðingar læknana hér liðið fyr- ir kjarabaráttu þeirra? Eftir þennan fúnd hef ég aldrei verið sannfærðari um að sveitarfélögin eigi að taka málið í sínar hendur og óska eftir þjónustusamningi við ríkið um rekstur heilsugæslunnar og við sjáum um þetta sjálf - og fömm að sjálf- sögðu ekki hefðbundnar leiðir og göngum til samninga við læknana til þess treysti ég nýkjömum sveitarstjómum á Suðunesjum. Helga Margrét Guðmundsdóttir 18

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.