Víkurfréttir - 21.11.2002, Blaðsíða 25
47. tölublað • fimmtudagurinn 21. nóvember 2002
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Anna Dóra Antonsdóttir:
(Les)blindur er bóklaus
maður - eða hvað?
Þær eru ótaldar stundirn-
ar sem foreldrar hafa set-
ið yfir börnum sínum og
látið þau lesa en árangur hefur
cf til vill alls ekki verið í sam-
ræmi við erfiði. Foreldrarnir
verða miður sín og spyrja:
Hvað er aö hjá henni Siggu
litlu? Hún er látin lesa í skól-
anum og við eyðum ómældum
tima með henni í heimalestur
en henni fer svo óskaplega lítið
fram. Hvað er að?
Og það er farið að leita skýringa,
Sigga litla er send í lesgreiningu
og niðurstaðan kemur: Hún er
með mikla lestrarerfiðleika (dys-
lexíu). Með öðrum orðum eins
og oft er sagt í daglegu tali - hún
er lesblind og þarf á sértækum
úrræðum að halda til þess að fyl-
gja eðlilegum námshraða.
Gamla orðtakið „blindur er bók-
laus maður“ merkir í flestra hug-
um að sá sem ekki hefúr aðgang
að bókum sé svo gott sem blind-
ur. Sá sem er lesblindur hefur
heldur ekki aðgang að bókum,
ekki á sama hátt og læs maður.
Það er því hlutverk okkar sem í
kringum bamið erum að auð-
velda þennan aðgang bamsins að
bókum, hér er ég að tala um for-
eldra, kennara, sérkennara og
starfsfólk skólabókasafna og aðra
sem tengjast lestrarþjálfún og
lestri bama.
Vönduð innlögn er mikilvæg
Leggja þarf alúð við innlögn i
lestri, þegar stafir og hljóó em
lögð inn í 1. bekk grunnskóla,
Það er nokkurs konar lykill að
lestrartækni. Foreldrar þurfa að
fylgjast vel með því sem bamið
er að gera í skólanum og skerpa á
línunum heima fyrir. Tökum sem
dæmi stafinn R. I skólanum er
hljóðið kynnt og stafúrinn spor-
aður, skrifaður eða laður inn á
einhvem þann hátt að hann fest-
ist baminu í minni. Þá þarf að
æfa heima. Margir foreldrar álita
að þeir haft ekki vald á hljóða-
innlögn vegna þess að þeir þekki
ekki hljóðin. Það er bábilja. Ef
við segjum örhægt orð með við-
komandi hljóði þá er auðvelt að
einangra það.
Dæmi: Hvemig er hljóð bók-
stafsinsT? Segjum hægt orðið t
a 1 a. Hljóðið sem myndast áður
en kemur að a-hljóðinu er einmitt
hljóð bókstafsins T. Tungan er
aftan við effi tanngóm og við
blásum ffá okkur, enda heitir
hljóðið ffáblásið tannbergshljóð.
Síðan er farið að æfa tengingu:
t>a = ta og l>a = la og ta>la =
tala og foreldramir styðja við og
æfa tenginguna heúna til að auka
öryggi bamsins.
A þennan hátt getum við fylgst
með og stutt við innlögn hljóða
og stafa við upphaf skólagöngu
bamsins okkar. Og þegar um er
að ræða nemanda með lesröskun
af einhveiju tagi er vinnan meiri.
Það er raunar mikil vinna bæði
fyrir bam og foreldra.
Dagleg lestrarstund er nauðsyn-
leg, þarf ekki að taka svo langan
tíma en styrkir þá ímynd sem
bamið þaif að hafa - að æftngin
skapar meistarann.
Nokkur hollráð
Gott er að foreldrar geft sér tima
til að lesa á móti baminu, Sigga
les bls. 1 og pabbi bls. 2, Sigga
les bls 3, pabbi 4 og svo ffam-
vegis. Það er líka alltaf vinsælt
VÍKUR
í’RÉTTIR
Daglegur fréttaflutningur
af málefnum Suðurnesja
www.vf.is
og gagnlegt að lesa upphátt fyrir
bamið, við háttatíma eða þegar
stundft gefast.
Mjög mikilvægt er að lesefni sé
við hæft, hvorki of þungt né of
létt. Betra að það sé ffekar of létt
en of þungt.
Stuttar lestrarbækur em betri en
þær löngu. Hver lesin bók er sig-
ur fyrir bamið.
Rétt er að byija snemma að venja
bamið við notkun hljóðbóka,
fyrst að hlusta síðan að hlusta og
lesa með.
Samskiptabók milli skóla og
heimilis hefúr margoft sannað
gildi sitt. Ekki er nauðsynlegt að
skrifast á daglega en samskipta-
leiðin er með þessu fyrir hendi,
ömgg og einföld.
Athugið vel kosti heimilistölv-
unnar. Til em ágæt tölvuforrit til
stuðnings við lestramám. Náms-
efhi grunnskóla er til að ein-
hvetju marki í tölvutæku formi
og síðast en ekki síst er ritvinnsla
í tölvu ágæt leið fyrir bam sem
gengur illa að skrifa.
Sjálfsmyndin skiptir meginmáli
Við verðum alltaf að muna að
vinna gegn skertri sjálfsmynd -
án þess þó að fara alveg yfir á
hina hliðina, ekki hugsa sem svo:
„ég er lesblind(ur)“ þess vegna
get ég ekki...
Hrósum og hvetjum það er besta
ráðið því að með óbrotna sjálfs-
mynd er baminu allir vegir færir,
það verður aldrei of oft sagt.
Anna Dóra Antonsdóttir er
sérkennslufulltrúi á Skólaskrif-
stofu Reykjanesbæjar
Við óskum eftir að ráða starfsmann til
alMiða hreinsunarstarfa. Þarf að geta
starfað sjálfstætt. Upplýsingar í
síma 421 4143 milli kl. 8-16.
f eppahreinsun Suðurnesja,
Iðavöllum 3, sími 421 4143.
AMERISKIR
HVÍLDARSTÓLAR
STOLLAMYND
R. 44.900,-
MARGAR GERÐIR,
MARGIR LITIR.
INNBÚ
ehff
Smiðjuvöllum 6 • Keflavík • Sími 421 4490
Verslun og verkstæði
Sauma í:
• sængurver
• húfur
• flíspeysur
• vinnufatnað
• boli og fleira J
JÓLATILBO
ÍSAUMUÐ HANDKLÆÐI
kr. 1.790,-
as c
Yv** \
MERKJASAUMUR
Kópubraut 6,
Njarðvík
6160 • 897 9590
25