Víkurfréttir - 19.12.2002, Síða 12
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRÉTTIR I; 1________________GLEÐILEGA HÁTÍÐ
„Kundalini"
nýr 17 laga
safndiskur
með Jóhanni
Helgasyni
„Kundalini“ ncfnist 17 laga
safndiskur mcð Jóhanni
Helgasyni tónlistarmanni frá
Keflavík. Diskurinn geymir
úrval laga af síðustu fjórum
sólódiskum Jóhanns og inni-
heldur m.a. hin vinsælu lög
„Bid Me To Live“ og „Work-
ing Girl“, einnig eitt nýtt lag:
„Anyway U Want Me“
í tilefni þess að 30 ár eru liðin
frá því fyrsta lag Jóhanns
„Mary Jane“ kom út á hljóm-
plötu gefúr Hugverkaútgáfan
einnig út vandaða nótnabók
sem inniheldur25 afþekktustu
og vinsælustu lögum Jóhanns.
Bókin verður fáanleg í öllum
helstu hljóðfæra og ritfanga-
verslunum.
Jóhann hefúr komið viða við á
tónlistarferli sínum og eru út-
gefin lög hans á diskum og
hljómplötum um 300 talsins,
eða einn diskur á ári að meðal-
tali. Mörg þessara laga hafa
notið viðvarandi vinsælda
meðal þjóðarinnar og teljast
orðin „sígræn".
Jafnframt hafa lög Jóhanns ver-
ið gefin út erlendis í eigin
flutningi og annara m.a. í Bret-
landi, Skandinavíu, Þýskalandi,
Japan og Suður Ameríku.
Utgefandi „Kundalini" er Hug-
verkaútgáfan, dreifingu annast
Skífan. Verð kr 2.399-
j ’Ayju
ER 421 0000
Bragðgóð skemmtun á Bókakonfekti
Hið árlega Bókakonfckt
var haldið á Bókasafni
Reykjanesbæjar laugar-
daginn 7. desember. Nokkrir
rithöfundar komu á safnið og
lásu upp úr og kynntii nýjustu
verk sín. Þeir rithöfundar sem
heiðruöu Suðurnesjamenn
með nærveru sinni voru Guð-
jón Friðriksson, Sigurbjörg
Þrastardóttir, Kolbrún Berg-
þórsdóttir og Þórarinn Eld-
járn.
Dagný Þ. Jónsdóttir sópransöng-
kona kom einnig fram og söng
nokkur lög. Bókabúð Keflavíkur
var með sölubás á staðnum þar
sem gestir gátu keypt bækumar
og fengið þær áritaðar. Gestir
gátu að loknum upplestri bragð-
að sér á gómsætu konfekti og
kaffi.
Fálki sat á
Stekkjar-
staur!
Fálki liefur af og til gert
vart við sig í Njarðvík á
síðustu misserum. Af og til
höfum við llutt fréttir af fálka
sem hefur verið við tjarnirnar
á Fitjum og tvívegis liafa Ijós-
myndarar Víkurfrétta myndað
þessa tignarlegu fugla á Fitj-
um. Sl.laugardag sást til fálka í
Ijósastaur í Innri Njarðvík.
Þegar Ijósmyndari Víkurfrétta
náigaðist fuglinn hvarf hann á
braut. í dag fcngu Víkurfréttir
síðan hingingu um að fálki sæti
uppi í staur á Fitjum.
Fálkinn var þar í næsta nágrenni
tjamanna og sat i staur við göt-
una Stekk. Þar með var fálkinn á
Stekkjar-staur í orðsins fyllstu
merkingu. Ekki náðust myndir af
fúglinum í dag, frekar en í gær.
Við hvetjum fólk til að standa
með okkur vaktina og láta okkur
vita af ferðum fálkans.
Á FIMMTUDEGI
Að taka pillur við ólund
Aöldum Ijósvakans hafa nú heyrst
háværari raddir en áður um að
geðheilsu landsmanna fari hrak-
andi. Okkur er sagt
að nú hafi þunglyndi
og depurð færst mjög
í vöxt. Samt er það
svo að aldrei hefur
verið eytt jafnmiklum
fjármunum í geðlyf
ýmiskonar. Fólkvirð-
ist ekki lengur geta
hrist af sér óiundina í
líkamsrækt, eða sökkt sér í meiri vinnu
og tekur nú pillur til að bæta geð sitt.
Eg heyrði í landlækni um daginn og
mér varð um og ó þegar ég hlustaði á
spár um að þunglyndi fari nú ört vax-
andi og ætti í framtíðinni eftir að verða
eitt af stærstu heilsufarsvandamálun-
um.
Eg þekki unga konu sem er í saumaklúbb,
sem er nú ekki í frásögur færandi en hún
og vinkonur hennar, ungu konurnar í
saumaklúbbnum, þjást allar af einhverri
óværu sem gerir það að verkum að þær
þurfa að taka ýmist geðdeyfðarlyf, jafn-
vægislyf, vöðvabólgu-lyf eða aðrar pillur
til að halda sér gangandi í lífinu. Að vinna
fúlla vinnu utan heimilis og sinna bömum
og búi, utan þess, virðist alveg vera að
gera út af við heilsu þeirra. Þeir sem hafa
séð leikritið „Sellófon" eftir Björk Jak-
obsdóttur í Hafnarfjarðarleikhúsinu vita
kannski hvað hér um ræðir og hvers kyns
óáran þetta getur verið, en leikritið lýsir á
frábæran hátt lífi ungrar móður og eigin-
konu. Til hamingju Björk með afbragðs-
góða sýningu.
Er mannrækt besta meðalið?
Gaui litli sem ffægur varð fyrir að leyfa
sjónvarpsáhorfendum að fylgjast með
megrun sinni skrifaði athyglisverða grein
í Morgunblaðið lO.nóvember s.l.sem ber
yfirskriftina „Aukakílóin - aðalkílóin". I
greininni setur Gaui litli ffam nýtt sjónar-
hom á offituvanda okkar og leiðir að því
líkum að tengja megi þann vanda m.a.
ólundinni. Hann leggur til að undinn verði
bráður bugur á þessu vaxandi heilsufars-
vandamáli. Gaui spyr í greininni: „ Hvaða
máli skipta vextir þegar lífshamingja er
ekki fyrir hendi?“ Hann deilir á stjóm-
völd og segist hafa það á tilfinningunni að
ráðamenn sakni þess að hafa misst eina
Evrópumetið sem við áttum sem var að
við áttum feitustu böm í Evrópu áður en
Þjóðveijar unnu þennan vafasama titil af
okkur.
Gaui gefúr lítið fyrir skyndilausnir eins og
„að komast í kjólinn fyrir jóliri* og „að sjá
á sér eistun fyrir þorranri'. Hann vill for-
varnir og skorar á stjórnvöld með heil-
brigðisráðherra í broddi fylkingar að boða
til þjóðarátaks gegn offitu sem hann telur
hið mesta böl þjóðarinnar. Gaui vill
meina að þegar kemur að umræðunni um
orsakir offitunnar fari menn undan í
flæmingi, þegar svara á, hvort það geti
verið að hluta til að vandinn sé fólginn í
andlegri vanlíðan, stressi.einelti og fíkn,
jafnvel erfðum. Síðan slær hann ffam eft-
irfarandi tillögu að lausn: „Veitum skatta-
afslátt ef fólk nær að létta sig. Bjóðum ó-
keypis líkamsrækt fyrir fólk til að taka
upp breyttar lífsvenjur." Ja, hvemig væri
það góðir landsmenn? Eða eigum við
bara að sætta okkur við staðreyndina um
pillunotkunina og taka þessi útgjöld inn í
útreikninga á neysluvísitölunni?
En í alvöru mér hrís hugur við þessu og
sting upp á því við landsmenn, núna í
skammdeginu, að þeir sinni ekki síður
mannrækt og geðrækt eins og þeir sinna
líkamsrækt, þannig að ásamt því að kom-
ast í kjólinn fyrir jólin og sjá á sér eistun
og allt það þá geti þeir líka horfst í augu
við bömin sín um jólin, faðmað þau og
tekið þátt í bamslegri gleði þeirra. Er það
ekki bara ágæt forvöm?
Helga Margrét Guðmundsdóttir
12