Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 17
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
Litla
stúlkan
með eld-
spýturnar
I Byrginu á Sandgerðisheiði
eru nokkrar stúlkur og drengir
sem lentu í svipaðri aðstöðu og
litla stúlkan í ævintýri H.C.
Andersen forðum daga og
höfðu náð tökum á þeim. 011
féllu þau úr lest hamingjunnar
um sinn, á ferðalagi sínu gegn-
um lífið en em nú að reyna að
fóta sig á ný með hjálp þeirra
sem reka starfsemina þar. Við
sem betur stöndum í lífinu
höfum því tækifæri til að láta
hug okkar í ljósi, nú fýrir þessi
jól til þeirra sem horft hafa á
eldspýtur sínar brenna, hveija
af annarri, en eygja nú von um
betra líf. Þeir sem vilja leggja
góðu málefni lið, með því að
gefa jólapakka til þeirra sem
þama dvelja, munu framkalla
bros þakklætisins í augum
þeirra á þessari jólahátíð. Um
er að ræða 55 karlmenn á
aldrinum 25-60 ára og 9 konur
á aldrinum 40-50 ára. Og gott
væri ef tekið væri fram á
merkimiða líklegur aldur, sem
pakkinn passar fyrir. Verslunin
Kóda, Hafhaigötu 15, mun
veita jólapökkum þessa
málefhis móttöku.
Stuðningshópurinn.
LANCOMEI
P A R I S
KYNNIHGI’ DAG
' KL. 13-18
Verið velkomin.
Apótek Keflavíkur
Snyrtivörudeild
Suðurgötu 2 - t^flavík
Opnunartími yfir
hátíðirnar
Aðfangadagur kl. 8-12
Jóladagur LOKAÐ
2. í jólum LOKAÐ
Gamlársdagur kl. 8-12
Nýársdagur LOKAÐ
Sorpeyðingastöð
B Suðurnesja^
Éfk Opið aðra daga ^
frá kl. 8-20
Starfsmenn Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja óska Suðurnesjabúum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
17