Víkurfréttir - 19.12.2002, Blaðsíða 18
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
ÚTGÁFAN
FÓLK í FRÉTTUM
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Simi 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
PálL Ketiisson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hitmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
kristin@vf.is,
Jóffíður Leifsdóttir,
Jóhannes Jensson skipaður aðstoðaiyfirlögregiuþjónn
Þann 1. desember sl. var Jóhannes Jensson skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti Sýslu-
mannsins í Keflavík. Jóhannes tekur við af Karli Hermannssyni sem nýlega var skipaður yfirlögreglu-
þjónn. Jóhannes starfaði sem sumarafleysingamaður í Lögreglunni í Keflavík árið 1975, en frá ár-
inu 1976 hefur hann starfað óslitið hjá Lögreglunni í Keflavík, nú síðast sem lögreglufulltrúi í rann-
sóknardeild lögreglunnar. Mynd: Lögreglan í Keflavík
Úrum og
skartgripum
stolið í
Grindavík
Fyrir hclgi var brotist
inn í úra- og skart-
gripaverslun Gilberts í
Grindavík. Að sögn Kol-
brúnar Guðmundsdóttur
vcrslunarstjóra virðist sem
hurð hafi verið spennt upp.
Talsverðu af úrum og skart-
gripum var stolið og segir
Kolbrún að tjónið sé umtais-
vert.
Tilkynnt var um innbrotið í
morgun og fer rannsóknar-
deild Lögreglunnar í Keflavík
með rannsókn málsins.
Jólafréttavakt
www.vf.is
jofridur@vf.is
BLaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
sími 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
simi 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is,
Stefan Swales,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefanía Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - VikuLega í Firðinum
Timarit Víkurfrétta,
The White FaLcon og
Kapalsjónvarp Vikurfrétta.
MUNDI
Ég og Kallinn óskum
öllum velunnurum
gleðilegrar jólahátíðar
ogfarsældará nýju ári.
Kallinn á kassanum
FYRIRGEFIÐ ágætu lesendur en pistillinn
náði ekki inn í síðasta tölublað Víkurfrétta.
Kallinn hefur fengið töluvert af tölvupósti þar
sem kvartað er yfir
þessu. Beðist er af-
sökunar á þessum
mistökum og lofað
að þetta gerist ekki
aftur. Hér kemur
pistillinn sem átti
að birtast í síðasta
blaði, með smá við-
auka.
AÐ SJÁLFSÖGÐU á Kristján Pálsson að
fara í sérframboð, sama hvort það væri DD
eða eitthvað annað. Það er búið að fara illa
með manninn og hann á það skilið að fá tæki-
færi til að vinna áfram fyrir Suðumesjamenn.
Ef hann fer fram þá kemst hann inn á þing og
þá væri gaman að sjá ftaman í alla Sjálfstæð-
ismennina sem komu honum út af þingi.
Sameinumst að baki Kristjáns og styðjum
hann - hann á það skilið.
ÞESSIR heilsugæslulæknar, sem hafa svarið
iæknaeiðinn eru nú komnir upp á kant við yf-
irvöld einu sinni enn. Það virðist sem ekkert
sé nógu gott fyrir þá og það eina sem þeir
hugsa um eru krónur og aurar. Það getur vel
verið að þeir séu ósáttir við það hvemig heil-
brigðisráðherra og hin nýja reykvíska fram-
kvæmdastýra halda á málum, en þeir verða
líka að hugsa um íbúa Suðumesja, fólksins
sem skapar þeim sína atvinnu. Þeir geta ekki
endalaust látið kjarabaráttu sína bitna á fólk-
inu. Ráðherra og reykvíska framkvæmdastýr-
an ásamt læknunum verða að finna lausn á
þessu vandamáli og það strax. Nú skulið þið
setjast að samningaborðinu og semja um
þessa deilu. Hr. Jón, ef þér tekst ekki að leysa
þennan hnút ertu ekki hæfur til starfans - um
það em allir sammála.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hefur
loksins gefið út einhvem lista um úthlutanir
úr byggðakvótanum. Glæsilegt eða hitt þó
heldur, en samt flottur kosningaáróður hjá
íhaldinu. Öll bæjarfélög vilja byggðakvóta og
sjálfsagt á ráðherra eftir að úthluta kvótanum
þar sem sýnt þykir að fylgi flokksins sé í lág-
marki - er ekki pólitíkin annars þannig! Sam-
kvæmt útreikningum Kallsins eiga hugsan-
lega eftir að koma í mesta lagi 100-150 tonn í
Sandgerði af byggðakvótanum og hvað er
það hátt hlutfall af þeim 11.500 þorsk-
ígiidistonnum sem hafa horfið firá Sandgerði
á síðustu 5 árum? Það er svo mikii synd að
sjá sjávarútvegsráðherra íslands sitja með
spekingssvip og dásama kerfi sem er að
ganga af litlum útgerðum og sjávarútvegs-
þorpum dauðum. Hvað ætli faðir hans, sá
mæti maður Matthías Á. Mathiesen hugsi
þegar hann kemur til Sandgerðis og sér
ástandið þar? Ámi veit það best sjálfur. Hann
ætti kannski að snúa sér aftur að dýralækn-
ingum - þar er hann sjálfsagt á heimavelli. í
pólitík á hann ekki heima - allavega ekki
meðan hann hagar sér svona.
ENGIN svör bárust fra fulltrúum minnihlut-
ans varðandi hugmyndimar um aukna verð-
mætasköpun í sjávarútvegi. Það sýnir það að
enginn áhugi þessara manna er á því að auka
þessi verðmæti. Ágætu kjósendur - þetta skul-
um við muna. Þið, fulltrúar minnihlutans í
bæjar- og sveitarstjómum hefðuð nú getað
sent Kallinum smá skeyti varðandi þessar
hugmyndir. En fyrst þið kjósið að gera þetta
svona, þá getið þið verið vissir um það að
Kallinn mun nfja þetta upp fyrir næstu kosn-
ingar, þegar þið hlaupið um allt kjassandi,
kyssandi og takandi í höndina á öllum. En
núna er ykkur alveg sama. Pólitíkin er skrýtin
tík, en þetta verður rifjað upp.
MEIRIHLUTINN er ekkert skárri - það
gildir það sama um ykkur og sagt er að ofan.
KALLINN Á KASSANUM óskar eftir því
að Steinþór Jónsson hótelstjóri og frumkvöð-
ull verði klónaður. Ósk Kallsins er sú að hinn
nýji Steinþórmuni með elju sinni og krafti
blása lífi í sjávarútveginn hér á Suðumesjum,
bæði með hugmyndavinnu varðandi vinnslu-
aðferðir og að sameina kraftana sem hér em
til að vinna saman að því að halda kvótanum
í byggðarlaginu. Steinþór er engum líkur - við
þurfum bara fleiri.
ÞAÐ ER BARA hreint ótrúlegt hvetju mað-
urinn áorkar. Fyrir utan það að ganga vel í
viðskiptum þá er hann gjörsamlega óstöðv-
andi í margskonar verkefnum. Hann reynir
með öllum ráðum að rífa upp jólaverslun í
Reykjanesbæ og það hefur gengið mjög vel.
Hann, ásamt félögum sínum í áhugahóp um
breikkun Reykjanesbrautar hefur barist mjög
hatrammlega fyrir breikkun brautarinnar og á
dögunum var skrifað undir samning þess efh-
■■■■
is. í ferðamálum er hann að vinna stóra sigra
og nú hefur hann samið við kanadískt flugfé-
lag um að hefja flug til Islands. Það fyrsta
kom hér við í fyrradag. Það er greinilegt að
Steinþór er skipulagður maður sem kemur
hlutunum í verk. Kannski hefitr hann tekið
mikil spekingsorð sér til fyrirmyndar sem
mætur maður mælti eitt sinn: „Ekki hugsa of
mikið um hvað hvert verkefhi tekur langan
tíma - tíminn líður hvort sem er!“
SJÁLFSAGT hefur Reykjanesbær aldrei
fengið jafh stóra auglýsingu heldur en í
Spaugstofunni um daginn en þar var gert grín
að átaki sem á að hvetja til jólaverslunar í
bænum. Þetta var frábær auglýsing og við
getum verið stolt. Annars hefúr Kailinn fund-
ið fyrir miklum áhuga frá fólki sem vill fá að
sofa heima hjá Áma bæjarstjóra fyrir 500
kall.
GETUR ÞAÐ verið að gerast að Sjálfstæðis-
flokkurinn i Suðurkjördæmi muni breyta röð
jólasveinanna? Við getum búist við hverju
sem er af þeim og ekki kæmi á óvart að þeir
myndu taka sig til og breyta röð þeirra og
jafnvel taka út einn, þratt fyrir vilja fólksins.
Kallinum skylst að Böðvar Jónsson sé kom-
inn í stað Bjúgnakrækis. Við þekkjum vinnu-
brögð þeirra og kæru íbúar, látum okkur ekki
bregða þó Kertasníkir hafi komið í nótt til að
gefa i skóinn.
MUNIÐ að senda Kallinum póst á
kallirm@vf.is.
KALLINN Á KASSANUM óskar lesend-
um Víkurfrétta gleðilegra jóla og farsældar á
nýja árinu. Kallinn vill í leiðinni óska eftir
heitum fréttum og skemmtilegum málum frá
lesendum. Sendið því póst!
Lifið heil,
Kallinn
Þær skoðanir sem fram koma hjá Kallinum
á kassanum þurfa ekki að endurspegla skoðanir
ritstjórnar Víkurfrétta.
18