Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 20
Lestu Vlkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Foreldrarnir Jón Ársæll Gíslason og Janja Lucic voru mjög ánægð
með gjafirnar. Að ofan er Sigurrós Benedíktsdóttir með systurnar
hressar og kátar.
Jólagjöf til
Nú í vikunni færðu Samkaup og Víkurfréttir
þríburunum í Grindavík jólagjaflr og vöktu
gjafirnar mikla lukku á heimilinu, þríburun-
um voru færð löt, blcyjur og gjafabréf frá Samkaup-
um fyrir 100 barnamatskrukkum. Adam Jónsson, litli
bróðir þríburanna fékk einnig torfærutrukk að gjöf
sem hann var að vonum ánægður með. Þær Anna
María, Natalia og Thea voru hinar ánægðustu með
heimsóknina og gjafirnar og undu sér vel þegar Sigur-
rós Benediktsdóttir settist mcð þær allar þrjár í
sófann, en Rósa hefur starfað hjá Samkaup í tæp 50
ár, fyrst hjá Kaupfélaginu og síöar Samkaup.
Foreldrarnir Jón Ársæll Gíslason og Janja Lucic voru
mjög ánægð með gjafimar og sögðu að þetta skipti þau
miklu máli, enda er dýrt að vera með þrjú lítil krýli á
þríburanna
heimilinu og lítinn strák: „Auðvitað er þetta mikið álag en
að sama skapi er þetta mjög gaman. Stelpumar em allar
heilbrigðar og það hefur sem betur fer ekkert verið að og
það er fyrir öllu,“ segir Janja. Stelpumar dafha allar vel og
þyngjast með hverjum deginum. Anna María var 11
merkur þegar hún fæddist og er í dag 5,650 grömm.
Natalia var 10 merkur en hún er mesti boltinn af þeim og
er í dag 6,300 grömm. Thea var 11 merkur og er í dag
5,450 grömm, en þær fæddust þann 12. september sl.
Janja segir að þær vakni mörgum sinnum á nóttu til að fá
að drekka og þá sé ofl mikið stuð á þeim: „Maður sefitr
ósköp lítið á nóttunni og stundum er þetta þannig að ein er
vakandi á meðan hinar sofa og þegar hún sofnar, þá vakn-
ar önnur og koll af kolli. Nætumar geta því oft orðið ansi
langar," segir Janja og bætir þvi við að hún þurfi stundum
í Grindavík
að sparka Jóni út úr rúminu á nóttunni: „Hann sefitr alltaf
eins og steinn, en ég sparka honum bara fram úr og þá fer
hann fram og sinnir stelpunum," segir Janja og brosir, en
Adam stóri bróðir er einnig duglegur að vakna með
mömmu sinni á nóttunni og þá reynir hann að hjálpa
henni. Jón starfar í vaktavinnu og segir Janja að þau séu
búin að sækja um heimilishjálp frá Grindavíkurbæ: „Ég
vona bara að heimilishjálpin komist fyrir jól, en þau hjá
bænum em ekki bjartsýn á að það takist. Jón verður að
vinna alla rauðu dagana, nema á aðfangadag og jóladag
og þá verður erfítt að vera ein með bömin því systir mín
verður farin til Króatíu. En auðvitað hlakkar okkur mikið
til jólanna og við ætlum okkur að hafa það gott,“ sagði
Janja að lokum.
Þreföld skírn
í Grindavík
IVíkurfréttum í október var
sagt frá þríburum sem
fæddust í septcmber og
búa í Grindavík. Um síðustu
helgi voru þríburarnir sem all-
ir eru stclpur skýröar að kaþ-
ólskum sið í Grindavíkur-
kirkju. Athöfnin var öll hin há-
tíðlegasta og voru stelpurnar
rólegar þegar þær voru skýrö-
ar og vatninu hellt yfir höfuðið
á þeim. Fjölmenni var þcgar
presturinn, sr. Jakob Roland
skýrði stúlkurnar, enda um
verulegt verk að halda á þrcm-
ur yngismeyjum undir skírn.
Þær voru skýrðar Anna Mar-
grét, Natalia Jenny og Thea
ólafía Lucic Jónsdætur. For-
eldrarnri Jón A. Gíslason og
Janja Lucic voru að vonum
ánægö með skírnina og tveggja
ára sonur þeirra Adam Lucic
var ánægöur með systur sínar.
Skírnarveisla var haldin eftir
athöfnina, en systurnar voru
þrevttar á ágangi ljósmyndara
Víkurfrétta og gáfu honum
langt nef, enda þreyttar eftir
strangan undirbúning. Þær
sofnuöu værum svefni meöan
gestir fengu sér kaffisopa og
gæddu sér á skírnarkökunni.
20