Víkurfréttir - 19.12.2002, Qupperneq 22
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Jólin hjá ömmu
Helga Gunnólfsdóttir er „stór“ amma
Amma í stuði á jólaballi með 67 afkomendum
Fyrir stuttu lá leið Víkur-
frétta í samkomusal
Skipasmíðastöð var
Njarðs'íkur en þar inni var stór
hópur fólks að skera og steikja
laufabrauð. Þegar inn í salinn
var komið voru börn að dansa
í kringum jólatré og jólalög
voru sungin. Með börnunum
var glæsilcg kona sem var
greinilega amman i hópnum.
Þetta var Helga Gunnólfsdóttir
en afkomendur hcnnar eru 67
talsins og eignaöist hún ásamt
manni sínum Arna Þorkels
Árnasyni, alls 11 börn. „Ég
missti fyrsta barnið mitt sem
ég eignaðist þegar ég var
sautján ára göniul en það var 6
mánaða þegar það dó,“ segir
Hclga og sýnir blaöamanni ljóð
sem kallast Fölnaður fífill en
Ijóðið er saniið í minningu
Lilla eins og liann er kallaöur,
en ljóðið orti Hólmfríður Sóley
Hjartardóttir og færði amma
Helgu henni Ijóöið á jarðarfar-
ardaginn.
Helga er 77 ára gömul og er hún
fædd og uppalin á Þórshöfn á
Langanesi og segir Helga að
hugurinn hvarfli oft á heimaslóð-
irnar: „Jólin heima á Þórshöfn
voru mjög indæl, en þó allt öðru-
vísi en þau eru í dag. Þá vorum
við með smiðað jólatré sem var
skreytt með kertum og pappirs-
pokum sem voru fullir af sæl-
gæti,“ segir Helga og bætir við
að hún hafi ekki kynnst skötu
fyrr en hún fluttist á Suðumesin:
„Eg er aldrei sjálf með skötu á
Þorláksmessu en börnin min
borða hana.“
Fjársjóður
Helga og eiginmaður hennar
fluttu til Keflavíkur árið 1964 og
hafa búið hér siðan. Helga segir
að á svo stóru heimili hafi oft
verið mikið fjör: „Það var oft
mikið fjör á heimilinu og ansi
glaðlegt, en um 20 ár em á milli
elsta og yngsta barnsins," segir
Helga og bendir stolt á myndim-
ar af bömum sínum, bamaböm-
um og barnabarnabörnum sem
hanga uppi um alla veggi hjá
henni: „Þetta er minn helsti fjár-
sjóður og ég vil hafa þau öll ná-
lægt mér.“
Þrír aðalréttir
Þegar Helga rifjar upp jólin sem
bam segir hún að það hafi alltaf
verið voðalega gaman: „Við vor-
um alltaf með hangikjöt og svið
á aðfangadag og síðan lamba-
steik. Ég hef alltaf haldið þessari
hefð við og haft þijá aðalrétti á
aðfangadag. Við fengum alltaf
jólapakka, en þeir voru miklu
minni en þeir eru í dag. Oftast
var okkur gefið eitthvað heima-
Opnunartími yfir
hátiðarnar
Þorláksmessa 11:30-23
Aðfangadagur lokað
Jóladagur Lokað
Annar í jólum kl. 15-22
Gamlársdagur Lokað
Nýársdagur kl. 15-22
liHa
421 4067
22