Víkurfréttir - 19.12.2002, Side 24
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Góður enda-
sprettur hjá
Keflavík og
Njarðvik kom
þeim áfram
Keflvíkingar sigruðu Hauka,
106:86, í 16-liðaúrslitumbikar-
keppni KKI og Doritos sl. sunnu-
dag á heimavelli. Leikurinn var
jafit mest allan timann og þegar um
þijár mínútur voru eftir fékk
Damon Johnson sína fimmtu villu
og leit út fyrir harðar lokamínútur.
Heimamenn tóku þá hins vegar öll
völd á vellinum og sigruðu örugg-
lega en Guðjón Skúlason og Sverr-
ir Sverrisson áttu góðan endasprett
fyrir Keflavík en sá fyrmefhdi
skoraði 15 stig á þessum kafla.
Damon Johnson var stigahæstur
með 29 stig, Gunnar Hinarsson
setti ! 9 og Guðjón Skúlason var
með 18 stig.
Njarðvíkingar sigruðu nágranna
sína úr Grindavík, 89:74, í 16-liða
úrslitum bikarkeppni karla í
körfuknattleik sl. mánudag í ljóna-
gryfjunni. Grindvíkingar höfðu
yfir i hálfleik 42:35 en í síðari hálf-
leik tóku heimamenn öll völd á
vellinum og sigruðu verðskuldað.
Gary Hunter átti stórleik fyrir
heimamenn með 40 stig en Páll
Kristinsson var einnig dijúgur og
setti niður 22 stig. Hjá gestunum
var Darrell Lewis í raun eini sem
spilaði vel en hann skoraði 35 stig.
Reynir Sandgerði tapaði fyrir
Hamri á útivelli 120:109 og eru
þeir því dottnir úr leik.
stig, Grindavík kemur næst með
14 og í 3. sæti eru Njarðvíkur-
stúlkur með 8 stig.
Keflavíkurstúlkur ósigrandi?
Keflavík burstaði KR,
92:37, í 1. deild
kvcnna í körfuknatt-
leik sl. mánudag en staðan í
hálilcik var 36:20. Keflavíkur-
stúlkur hafa fariö hamförum
það sem af cr tímabilinu og
ekki tapaö leik enn sem komið
er og virðist fátt geta komið í
veg fyrir að þær hirði alla titl-
ana þetta tímabil. Erla
Þorsteinsdóttir var stigahæst
hjá heimastúlkum með 17 stig,
Kristín Blöndal gerði 16 og
Marín Karlsdóttir 15.
Njarðvíkurstúlkur sigruðu ÍS í
miklum baráttuleik þar sem
þurffi framlengingu til að skera
úr um sigurvegarann. Staðan að
loknum venjulegum leiktíma var
68:68 en gestirnir úr Njarðvík
höfðu betur í framlengingunni og
sigruðu 80:77. Krystal Scott var
best hjá UMFN og skoraði 48
stig.
Grindavíkurstúlkur lögðu Hauka
að velli, 91:65. Leikurinn var
spennandi til að byrja með og
staðan í hálfleik var 45:42 heima-
stúlkum í hag en í síðari hálfleik
fór pressuvöm þeirra að virka og
öruggur sigur raunin. Denise
Shelton átti góðan leik fyrir
Grindavík en hún skoraði 40 stig
og hirti 17 fiáköst.
Að loknum 10 umferðum eru
Keflavíkurstúlkur efstar með 20
Erla Þorsteinsdóttir (200),
Svava Ósk Stefánsdóttir (100),
Birna Valgarðs (100), Kristín
Blöndal (300) og Anna María
Sveinsdóttir (400) léku allar
tímamótaleiki nú á árinu ot
voru þær heiðraðar fyrir leiH
Keflavíkur gegn KR á
dögunum.
24