Víkurfréttir - 19.12.2002, Qupperneq 26
Aramótin
í Kapalsjónt/arpi
Víkurfrétta
í Reykjanesbæ
AUGIÍSIHGASÍWINM
|R 421 0000
'a til Birgis Þórarinssonar varaoddvita
Jólahugvekj
w
síðasta tölublaði Víkur-
frétta skrifaöi Birgir Þórar-
insson grein sem hann
nefndi „Sveit-
arstjórapyngj-
an“ og er þar
að gera at-
hugasemdir
við skrif mín
og bókanir
um launamál
sveitarstjóra.
Mál þetta er greinilega mjög
viðkvæmt. Ég er hrædd um
að varaoddvitinn hafi hlaupið
á sig í þessum skrifum sínum.
Hann segir að ég setji málið
þannig upp að „nú verði hvert
mannsbarn í hreppnum að
safna mánaðariega í pyngju
sveitarstjóra“ og að í fyrstu
hafi upphæðin verið um þús-
und krónur á mann svo hafi
ég farið að reikna aftur og sé
núna komin í tæpar þúsund
krónur.
Og svo fræðir hann lesendur
Víkurfrétta, að ekki þurfi lengur
að ganga í hús og safna fyrir
launum sveitarstjóra heldur sé
tæknin orðin nútímalegri. Þessi
sýn hans er í raun svo bamaleg.
í sambandi við þessi launamál
vil ég benda á það að núverandi
oddviti samdi við sveitarstjóra á
sínum tíma, þá fékk sveitarstjóri
reyndar 92% (óstaðfestar heim-
ildir) af þingfararkaupi en fær
100% í dag ásamt óunninni yfir-
vinnu, bílastyrk og fl. Einnig
kemur fram i ráðningarsamningi
sveitarstjóra, að hún skuli leitast
við að hafa viðveru á opnunar-
tima. Sem sveitarstjóri og fé-
lagsmálastjóri hefur hún enga
fasta viðtalstíma. Ég get afhtr á
móti upplýst varaoddvitann um
það að á miðju síðasta kjörtíma-
bili varð mikil hækkun á þing-
farakaupi 30-40% og það eitt og
sér hefði verið næg ástæða til að
endurskoða ráðningarsamning
sveitarstjóra. En það er rétt að
segja varaoddvitanum það á
„mannamáli" svo notuð séu
hans orð að miðað við stærð og
umfang, að ég tali nú ekki um
fjárhagsstöðu sveitarfélagsins þá
erum við að borga of há laun.
Við þurfum ekki að vera með
neina „gulrót" eins og kannski
þurfti fyrir 12 árum síðan.
Einnig vil ég benda þér á nýlega
könnun á kjörum framkvæmda-
stjóra sveitarfélaga, sem Sam-
band íslenskra sveitarfélaga birti
í ágúst 2002. Þetta er alitaf
spuming um forgangsröðun og í
hvað við viljum setja fjármuni
hreppsins. Þið veljið að halda
uppi H-launa stefnu en það á
reyndar bara við um sveitarstjór-
ann og kannski einhveija „gæð-
inga“ en ekki um hinn almenna
launamann hreppsins. En aftur
að kostnaði við laun sveitarstjó-
ranns því eins og þú segir rétti-
lega þá eiga íbúarnir rétt á því
að vita í hvað skattamir þeirra
fara, setjum dæmið upp hreint
og klárt eins og það kemur fram
í fjárhagsáætlun hreppsins sem
er núna í vinnslu. Þar kemur
ffarn að laun sveitarstjóra á ár-
inu 2003 verði kr. 7,372.147,-
bifreiðarstyrkur kr. 749.000.-
einnig fær hún greiddan síma-
kostnað og þá á eflir að reikna
launatengdan kostnað (sem er
ekki inni í þessum tölum) sem
og nefndarlaun. Sveitarstjóri á
seturétt í nánast öllum nefttdum
hreppsins og fær greitt fyrir það,
einnig fær hún greitt fyrir
hreppsnefndarfundi og fyrir
þetta þurfa íbúar í Vatnsleysu-
strandarhreppi að greiða. Ég get
upplýst þig um það að 614 þús-
und er ekki sú tala sem sveitar-
stjóri er að hafa fyrir starf sitt
hjá Vatnsleysustrandarhreppi. í
sambandi við setu sveitarstjóra í
öllum nefndum, þá er það fá-
heyrt að sveitarstjórum séu veitt
slík völd, þó þetta sé löglegt.
Einnig segir varaoddvitinn að
það sé ekki hægt að lækka laun-
in hennar, það væri rakinn dóna-
skapur, en það er greinilegt að
það á ekki við um aðra starfs-
menn hreppsins eins og nýlegt
dæmi sannar.Varaoddvitinn talar
svo um að sveitarstjórirtn gegni
stöðu félagsmálastjóra og því
séu launin hennar ekki of há og
miðar við að algeng laun félags-
málastjóra séu um 350.000.- á
mánuði. í þeim tilfellum er um
menntaðan félagsráðgjafa eða
sálffæðing að ræða og efast ég
ekki um að þeir kunni lágmarks
kurteisi og mannleg samskipti,
en þær kröfur eru greinilega
ekki gerðar til félagsmálastjóra
Vatnsleysustrandarhrepps. Ég
vil meina að miðað við stærð og
umfang sveitarfélagsins þá væri
raunhæft að ráða félagsmála-
stjóra í 20% starf eða sem svarar
einum virkum degi í viku, með
fasta viðtalstíma.Varaoddvitinn
minnir á að sveitarstjórinn hafi
unnið fýrir laununum sínum og
dásamar verk hennar í hástert en
gleymir að segja frá því að á
sama tíma og hreppurinn samdi
við IAV um framkvæmdir í
hreppnum án útboðs og Spari-
sjóðurinn lánaði til verksins, þá
sat sami sveitarstjóri í stjórn
sparisjóðsins. Nú tala menn ekki
um hagsmunaárekstra eða hvað?
Hvar er allt viðskiptasiðferðið
núna? Svo taiar varaoddvitinn
um hvað allir hafi nú grætt mik-
ið á störfum sveitarstjóra, já það
væri fróðlegt að vita hver
græddi? Og á hvetju? Því varla
getur þú þakkað sveitarstjóra
Vatnsleysustrandarhrepps hækk-
un á fasteignaverði sem hefur
orðið á landinu öllu en mest í
sveitarfélögum næst höfuðborg-
inni. Ég vil benda varaoddvitan-
um á það að sveitarstjóri á að
hafa framkvæmt það sem meiri-
hluti hreppsnefndar samþykkti
að gera. Én þú ert að segja okk-
ur það að sveitarstjórinn hafi
verið einráður í hreppnum, en
reyndar nefnir þú að fýrrverandi
oddviti hafi stutt sveitarstjóra, ja
hérna, hver var nú yfirmaður
hvers og hver að stjóma hveij-
um? Og hver er að gera lítið úr
hverjum? En það virðist vera
einhver lenska hjá ykkur að
þakka sveitarstjóra það sem vel
tókst, en kenna fýrri oddvita um
það sem miður fór. Þið þurfið
að gera ykkur grein fýrir því að
málið snýst um að gera betur og
að skoða það sem miður hefur
farið svo við getur lært af mis-
tökunum en ekki að berja
hausnum við steininn. Vatns-
leysustrandarhreppur fékk ekki
verðlaun fyrir markaðsátakið,
heldur fékk auglýsingastofan
verðlaun fyrir þessa auglýsinga-
gerð. Þessi dýrkun varaoddvit-
ans á sveitarstjóra er með öllu
óskiljanleg svo og þessi mál-
flutningur hans.Við vitum það
vel að það er ekki alltaf hægt að
gera öllum til hæfis og að fólk
hefur misjafhar áherslur. Sumir
eru neikvæðir og velja að sjá
alltaf eitthvað neikvætt út úr
öllu, t.d. eins og sjá mátti á ný-
legri grein eftir varaoddvitann
þar sem hann fór geyst um
mynd sem tekin var i Bláa Lón-
inu af ungum Suðumesjapiltum,
en sem betur fer eru fleiri já-
kvæðir og velja að horfa á bros-
legu hliðamar. Effir að ég fór að
kynna mér hreppsmálin hefur
ýmislegt komið í ljós sem mér
finnst að betur ætti að fara.
Vinnubrögð þar em óvönduð að
mínu mati og lítill metnaður í að
gera vel eða kunnátta ekki meiri
en sem sýndi sig í nýlegri starfs-
mannastefnu og einnig þegar
hreppsnefhdarmenn fengu send
gögn til skoðunar í sambandi
við fjárhagsáætlunargerð sem
nýlega var í vinnslu. Hvar er ný-
tískulega tæknin núna sem vaia-
oddvitinn hreykti sér hátt af? Ég
vil benda varaoddvitanum á það
að íbúum Vatnsleysustrandar-
hrepps hefur fækkað á síðasta
ári um þijá (tölur ffá sept. sl.) en
það em kannski staðreyndir sem
honum þóknast ekki að horfa á?
Varaoddvitinn talar um að tekjur
sveitarfélagsins hafi aukist um
60% á þremur árum en sam-
kvæmt ársreikningum áranna
1999 og 2001, þá hafa tekjur
ekki aukist nema um tæp 37%,
þú nefnir það ekki einu orði
hvað skuldir hafi aukist, nei
bara talað um það sem kemur
best út í hvert eitt sinn. En til að
upplýsa þig og aðra íbúa hrepps-
ins um það, þá hafa skuldir auk-
ist um 150% á sama timabili.
Fjölgun íbúa er 9% á sama tíma-
bili en ekki 19% eins og þú
heldur fram. Peningaleg staða
versnaði um 53% og skuldir pr.
íbúa hafa aukist um 117% á
sama tíma. Svo að endingu em
það vinnubrögð meirihluta
hreppsnefndar, þau einkennast
af yfirgengilegum hroka og
dónaskap og lítilsvirðingu gagn-
vart minnihlutanum, en það er
efni í annað bréf. Það er full
ástæða til að gera fólki grein
fyrir vinnubrögðum og fram-
komu ykkar.
Með guðs ffiði og bestu jóla og
nýársóskum til þín og þinna.
Halldóra M. Baldursdóttir
Fulltrúi V-lista, í minnuhiuta
hrcppsnefndar
Vatnsieysustrandarhrepps