Víkurfréttir - 19.12.2002, Side 27
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
JÓLALUKKAN GERIR LUKKU
14 ára norðlensk Suðurnesjamær
fékk Evrópuferð í Jólalukku
Víkurfrétta og verslana:
Komu til
Suðurnesja í
jólagjafakaup
Mér dauðbrá þegar ég
skóf af miðanum og
sýndi mömmu hann
orðlaus”, sagði Erla Kristín
Jónasdóttir, 14 ára en hún var
að gera jólainnkaup í Ótrúlegu
búðinni í Keflavík si. iaugardag
með móður sinni og yngri syst-
ur. Erla fékk eins og ailir sem
gera jólainnkaup á Suður-
nesjum Jólalukku Víkurfrétta
og verslana og vann Evrópu-
ferð með Flugleiðum.
Erla Kristín fór með miðann sem
hún fékk yfir í næstu verslun,
Kóda þar sem móðir hennar,
Bryndís Guðmundsdóttir var að
skoða jólafötin, og sýndi henni
vinninginn. „Við vorum
nýkomnar úr Kringlunni en
fannst ekki skemmtilegt að
versla þar og ákváðum að fara í
jólainnkaupin í Keflavík. Það
borgaði sig, svo sannarlega",
sagði móðirin sem bjó lengi í
Sandgerði og var meðhjálpari þar
til margra ára. Hún hefur búið á
Akureyri síðan 1999 en er samt
aftur kominn til Keflavíkur því
hún stundar hársnyrtinám í
Fjölbrautaskóla Suðumesja.
„Það er frábært að fá svona
skaímiða íyrir það eitt að versla á
Suðumesjum. Svo eru líka marg-
ar verslanir héma sem eru mjög
góðar", sagði Bryndís. Erla dóttir
hennar og vinningshafi sagðist
ekkert vita hver hún væri að fara
á næsta ári. „Ég er ekki farin að
hugsa svona langt“.
Mæðgur fengu tvo Evrópu-
vinninga sama daginn
Sylvía Færseth datt held-
ur bctur í lukkupottinn
sl. laugardag þcgar hún
gerði jólainnkaupin sín í
Reykjanesbæ. Um morguninn
lá leið hennar í Apótek Kefla-
víkur þar sem hún keypti
snyrtivörur. Sylvía fékk
Jólalukku að kaupunum lokn-
um og þar leyndist utaniands-
ferð og ætlaði hún ekki að trúa
sínum eigin augum.
„Ég rétti bara vinkonu minni
miðann því ég trúði þessu ekki.
Hún sagði mér að ég hefði unnið
og ég varð auðvitað himinlif-
andi”. Óhætt er að segja að þessi
dagur verði lengi í minnum hafð-
ur því ekki var heppni hennar
þennan dag á þrotum. Seinna
þennan dag var Sylvía ásamt
dóttur sinni, Sædísi Ósk, að
kaupa jólaföt sín hjá Óskari og
viti menn, litla stelpan vann líka
utanlandsferð. „Ég var búin að
kaupa jólafötin á hana og því
fékk hún að velja sér jólalukku-
miða. Þegar hún var búin að
skafa miðann kom hún með hann
til mín skælbrosandi og ég verð
nú bara að segja að það var næst-
um því liðið yfir mig”, sagði
Sylvía og hló. „Þetta á ekki að
vera hægt”.
Sylvía hefur keypt allar sínar
jólagjafír í Reykjanesbæ og segir
að hér sé einfaldlega best að
versla. „Já það borgar sig að
versla heima um jólin því hér fær
maður frábæra þjónustu”.
Sylvía sagðist ekki vera búin að
ákveða sig hvað gera ætti við
vinninginn. „Ég hef ekki ákveðið
hvað ég geri við vinninginn en
það eru hins vegar ýmsar hug-
myndir i gangi”, sagði Sylvía að
lokum.
Þú færð flotta
jólagjöf hjá Fjólu!
Vönduð
gjafavara
Fjóla
Hafnargötu 21* 230 Keflavík • Simi 421 1011
Sylvia, Sædis Osk og
Ragnheiður
Ragnarsdóttir í
Apóteki Keflavíkur.
Rétt áður en blaðið fór
í prentun fóru að
berast fréttir af fleiri
vinningshöfum með
vrópuferðir!
27