Víkurfréttir - 19.12.2002, Síða 29
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Viðtal og myndir: Jóhannes Kr. Kristjánsson
un var hann staðráðinn í því að
ná fiillum bata: ,»Eg fór strax af
fiillum vilja að berjast við þetta
og reyna á hægri hliðina. Bar-
átta mín var alveg á fullu og ég
held að það hafi hjálpað mér
mikið því ég ætlaði mér aldrei
að gefast upp. Ég fer núna
reglulega að synda og á sumrin
er ég í golfinu. Ég hef verið á
bíl þegar ég hef verið að spila
golf, en næsta sumar ætla ég
mér að ganga hringinn," segir
Logi en eins og margir vita er
hann forfallinn golfáhugamað-
ur. „Getan í golfrnu er náttúru-
lega mun minni en hún var.
Maður veit ekkert hvernig
sveiflan er því ég er ekki enn
búinn að ná fúllu valdi á hægri
hliðinni. En þetta kemur allt,“
segir Logi.
Mikill áhugi lækna
Fyrir rúmum 5 ámm seldi Logi
stóran hlut í Tros til SÍF. Á síð-
asta ári keypti svo SIF restina
af hlutafénu í fyrirtækinu en
ætlunin var að Logi myndi
starfa þar áírarn. í september á
síðasta ári buðu nýir eigendur
Loga að fara í tveggja ára veik-
indalfí á launum svo hann gæti
náð sér. Logi þáði boðið og
hann ætlar sér að nýta þann
tíma vel. „Það skipti miklu
máli að fá þetta svigrúm. Mér
var ráðlagt að fara til taugasál-
fræðings og það hefur einnig
hjálpað mér mjög mikið með
málið, minnið og lesturinn"
segir Logi og bætir við að
vegna þess hve fáir ná sér á
strik eftir veikindi sem sem
þessi þá hafi hann fundið fyrir
miklum áhuga lækna á sér:
„Sálfræðingurinn minn skipu-
lagði fund þar sem yfir 20
taugalæknar komu og spurðu
mig spjörunum úr. Þeim fannst
það merkilegt hve vel ég hefði
náð mér eftir þetta,“ segir Logi
og brosir.
Man illa nöfn
Ýmis eftirköst hafa hrjáð Loga
eftir veikindin og meðal annars
á hann mjög erfitt með að
rnuna nöfn og hann getur lítið
lesið: „Það er ekkert að minn-
inu mínu nema ég er agalega
slæmur að muna nöfh. Það er
alveg sama þó þú hafir sagt
mér hvað þú hétir, þá gæti ég
ekki munað það. Það er engin
regla á því hvernig ég man
nöfnin. Ég hef líka misst allt
lyktarskyn og finn bara alls
enga lykt núna. Það er dálítið
skrýtið stundum að finna enga
lykt en þegar ég var strákur í
sveit þá var svo vond lykt þar
að ég vandi mig á það að vera
ekkert að þefa, þannig að ég
tók ekkert eftir því fyrr en
löngu seinna að ég fyndi ekki
lykt“, segir Logi og bætir bros-
andi við að það geti haft
nokkra kosti að finna ekki lykt.
Erfitt að þegja
Þegar hlustað er á sjúkrasögu
eins og Loga þar sem hann var
talinn af að minnsta kosti fjór-
um sinnum fer maður ósjálfrátt
að hugsa hvernig manni eins
og honum líði í dag. „Þetta var
náttúrulega mjög erfitt fyrir
fjölskylduna, en ég lít á þetta
sem ákveðið verkefni í lífinu
sem þarf bara að leysa. Ég held
að viljastyrkurinn skipti öllu
máli í þessu og mér hefúr aldrei
liðið illa út af þessum veikind-
um. Ég var voðalega upptekinn
í vinnu, en ég hætti að skipta
mér af öllu eftir að þetta gerð-
ist, bara til þess að ná að jafna
mig. Það voru feiknaleg átök
við sjálfan mig að steinþegja
eða halda kjafti og hamast við
að þegja. Það var nokkuð
merkilegt að upplifa það, því
maður var náttúrulega alltaf
með opinn kjaftinn og skipt-
andi sér af öllum hlutum,“ seg-
ir Logi og hlær.
„Sem betur fer tapaði ég ekki
sjálfstraustinu og það á eflaust
eftir að heyrast í mér. Það er
mjög mikilvægt að halda því.
Ég er að nota mér það sem
Tros gerði fyrir mig að veita
mér þennan tfrna til að byggja
mig upp að nýju. Maður hefúr
kannski lært það af þessu öllu
saman að vera ekki að skipta
sér af öllum mögulegum hlut-
um sem manni kemur ekki
við.“
Engin minnimáttarkennd
Þegar Logi er spurður að því
hvort viðmót vina, kunningja
og fólks sem hann þekkir hafi
breyst eftir veikindin svarar
hann því neitandi: „Þegar mað-
ur kom út úr þessu þá voru
menn hálf skelfingu lostnir og
vissu ekkert um mann. Ég á
ekki í neinum vandræðum með
það, en ætli fólk sjái ekki strax
breytingu á mér því að ég er
mun rólegri," segir Logi bros-
andi og bætir við að lífsviðhorf
hans hafi ekkert breyst. „Ég
hef ekki neina minnimáttar-
kennd útaf þessu og mér finnst
ég ekki vera í neinum vandræð-
um. Ég hef alltaf kunnað að
bjarga mér og ég mun gera það,
alveg sama hvað á gengur. Ég
hef alltaf litið mjög skemmti-
lega á lífið og maður glímir við
það sem maður fær hverju
sinni.“
Forðast íhaldið
Logi og Bjargey kona hans
fluttu á síðasta ári í nýtt hús við
Gígjuvelli í Keflavík, en þau
tóku þátt í að innrétta húsið að
þeirra þörfum. Að innan er
húsið mjög bjart og skemmti-
lega hannað. Loga og Bjargey
líður vel í nýja húsinu: „Við
vorum í stærra húsi, en eftir að
bömin komust til manns þá var
kjörið að minnka aðeins við
sig. Það var nú líka alltaf ætl-
unin að flytja hingað þar sem
maður er nærri því kominn út
úr bænum því þegar ljóst var að
íhaldið myndi vinna hreinan
meirihluta þá varð ég að vera
staðsettur þannig að ég þyrfti
ekkert að sækja í Reykjanesbæ,
heldur gæti keyrt beint í Sand-
gerði til að versla þar í Kaupfé-
laginu og komið svo heim,“
segir Logi brosandi en hann
hefur alltaf verið mjög pólitísk-
ur og hann segir að veikindin
hafi ekkert breytt því. „Það
þurfa allir að hafa skoðanir á
hlutunum og því er ég svo
sannarlega ekki hættur.“
Sterkir straumar
Það voru margir sem báðu fyrir
Loga þegar hann lá í veikind-
um sínum á Irlandi, en sjálfúr
segist hann ekki vera trúaður
maður. „Ég er búinn að ferðast
út um allan heim og það eru til
margir Guðir, en það er bara til
einn skratti og ætti maður þá
ekki að trúa á hann?“, segir
Logi og hlær en hann segir að
hann notist við kirkjur landsins
og þær séu samfélaginu til
góðs. Logi vill koma á fram-
færi þökkum til allra þeirra
sem studdu hann og fjölskyldu
hans í þessum veikindum.
Fjölskyldan fann fyrir sterkum
straumum til Dublin og er
sannfærð um að það hafi fleytt
þeim yfir þessi erfiðu jól og
áramót.
Eins og áður segir er Logi í
veikindafríi frá Tros og ætlar
hann sér að fara aftur að vinna í
september á næsta ári. Flann er
bjartsýnn á framtíðina og er
harðákveðinn í að ná fullum
bata. „Eins og ég sagði lít ég á
þetta sem ákveðið verkefni og
ég ætla mér að sigrast á því. Ég
er bjartsýnn á að það takist,“
segir Logi að lokum.
ir
Sunnudogur22. des.
Keflovfk nemo GorSahverfi, Eyjabygg5, Efstaleiti og Vatnsholt.
Manudagur23. des. Þorlóksmessa. Keflavík, Garðahverfi,
Eyjabyggð, Efstaleiti, Vatnsholt, SandgerSi, Garður,
Innri NjarSvík og Vogar.
Þri&judagur 24. des. OSfangadagur.
Grindavík, Njarðvfk og Hafnir.
Fyrir áramót
Sunnudagur29. des.
Keflayík nema Garðahverfi, Eyjabyggð, Efstaleiti og Vatnsholt.
MÓnudagur 30. des. Keflavfk, Garðahverfi, Eyjabyggð, Efsta-
leiti, Vatnsholt, Sandgerði, Garður, Innri Njarðvik og Vogar.
Þri&judagur 31. des. Grindavfk, Njarðvfk og Hafnir.
'mm i
'fH||||f|Sitaks óska Sufturnesjamönnum
ióla og þakka samstarfift a órinu.
29