Víkurfréttir - 19.12.2002, Síða 44
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
W<jO
í B flanaosf
s Bosch, alvöru rafmagnsverkfæri
s Loftpressur og loftverkfæri
s Handverkfæri og tæki
Borgartúni. Reykjavik.
Bíldshöfða, Reykjavík
Smiðjuvegi, Kópavogi.
Daishraun, Hafnarfirði.
Hrísmýri, Selfossi.
Dalbraut, Akureyri.
Grófinni. Keflavík.
Lyngási, Egilsstöðum.
Álaugarvegi, Hornafirði.
www.bilanaust.is
í Gafé Iðnó á Hótel Keflavík
Bjóddu elskunni í bínverslea stemningfu
• Höfum bœtt sal Sólsetursins við okUur
• Gerum tilboð fyrir stœrri hópa
• Tahe a way
fjölbreyttur matseðill
Verið velkomin
Vflunið borðapantanir
f sfma 420 7011
Kínverst nudd og nálastungfur m
Opiá alla daga yíir liatiáarnar
FrákllO-22 ^Un
Óskum Suáurnesjamönnuin gleáilegra jóla
K
ípntu
út
aurf
essa
Wsinán S <ÉSr
1,ú :ærá 20 % afslátt af all ri kjónustu.
j||]_______GLEÐILEGA HÁTÍÐ
„ Gleymdu ekki skattaafslættinum “
„ Veldu bara þann besta “
etta eru allt setningar sem íslendingar eru
farnir að kannast við í desember mánuði.
Hvað felst í þessu og af hverju fara af stað
miklar kynningar á meðal fjármálafyrirtækja?
Jú, meginástæða þess er sú að þann 31. desemb-
er ár hvert er síðasti dagur ársins fyrir skatt-
greiðendur að tryggja sér lækkun á tekjuskatts-
stofni eða eins og flestir þekkja „tryggja sér
skattaafslátt". Skattaafsláttur felur í sér að ef
fjárfest er i innlendu hlutafélagi viðurkcnndu af
ríkisskattstjóra eða félagi af EES svæðinu, fyrir
u.þ.b. 130.000 kr. tryggir það þcim sem fjárfestir
sem nemur um 80.000 kr. lækkun á tekjuskatt-
stofni. Þessi 80.000 kr. lækkun jafngildir endur-
greiðslu frá Ríkisskatti um 31.000 kr. í ágúst árið
2003. Það er því eftir miklu að slægjast fyrir fjár-
festa.
Eignarhaldstími
Fjárfestir sem fjárfestir fyrir 130.000 kr. í desember
og hyggst tryggja sér endurgreiðslu í ágúst ber
skylda til að eiga hlutabréfin sem fjárfest er í yfír 5
áramót. Þó er heimilt að skipta á milli félaga innan
þessa tíma ef fjárfest eru bréf fyrir sömu fjárhæð
innan 30 daga. Ef ekki er fjárfest innan 30 daga fær-
ist fenginn ffádráttur sem tekjur og því þarf fjár-
festirinn að endurgreiða skattaafsláttinn.
Góð ráðgjöf skiptir höfuðmáli
Fyrir tekjuskattsgreiðendur er þetta einstakt tæki-
færi til að lækka tekjuskattsstofninn og tryggja sér
endurgreiðslu. En eins og eftir miklu er að slægjast
er mikilvægt að vanda vel valið þegar kemur að
fjárfestingu í desember enda er hér um að ræða fjár-
festingu yfir 5 áramót. Undanfarið ár hefur verið
erfitt á fjármálamörkuðum hér á landi og erlendis.
Því er góð ráðgjöf lykilatriði. Landsbankinn býður
upp á sérhæfða ráðgjöf um spamað og skattaafslátt.
Hjá Landsbankanum starfa ráðgjafar sem ber
skylda til að veita ijárfestum greinargóðar upplýs-
ingar um þá fjárfestingarkosti sem bjóðast. En til
þess að ráðgjafinn geti veitt viðskiptavini sinum
greinargóðar upplýsingar er mikilvægt að hann
„þekki" viðskiptavininn. 1 því felst oft að meta fag-
lega þekkingu, flárhag og reynslu hans. Gerðar em
þær Íágmarkskröfúr til Qármálaráðgjafans að hann
þekki: Aldur viðskiptavinar, upplýsingar um núver-
andi eignastöðu og fjárfestingar, upplýsingar um
skattalega stöðu, lífeyrismál, persónulega þætti og
fjárfestingartíma og siðast en ekki síst reynslu og af-
stöðu viðskiptavinar til áhættu.
Fagleg og traust ráðgjöf - Áhættumat
Þeir sem hafa hug á að tryggja sér skattaafslátt fyrir
næstu áramót býðst mikið val fjárfestingarkosta á
Verðbréfaþingi Islands, þar er átt við einstök hluta-
bréf og hlutabréfasjóði. Við val á ijárfestingarleið-
um kemur góð ráðgjöf að góðum notum. Hver og
einn fjárfestir er einstakur og með misjafnt mat á
hvað sé áhætta. Reynslumikill ráðgjafi sem býr yfir
mikill faglegri reynslu getur leitt viðskiptavin inn á
réttu fjárfestingarieiðina. Því hvetjum við hjá
Landsbankanum alla þá sem leggja í fjárfestingar í
desember að leita ráða hjá fjármálafyrirtækjum með
langa reynslu og þekkingu.
Hiutabréfasjóðir Landsbankans
Þú getur fjárfest í hlutabréfasjóðum Landsbankans:
- Hjá Landsbankanum að Hafhargötu 57-59 í Kefla-
vík eða í næsta Landsbanka.
- Með því að hringja i 420-1200, eða í ráðgjafa í öll-
um útiþúum Landsbankans.
- Með því að hringja í Þjónustuver Landsbankans í
sirna 560-6000 sem opið er til 19:00.
- A vefnum á www.landsbanki.is í gegnum Kaup-
höll Landsbréfa.
Þú getur eignast hlutabréf í hlutabréfasjóðum
Landsbankans með því að:
- Staðgreiða þau.
- Nota boðgreiðsluþjónustu VISA og EURO
Gleðilega hátíð
Garðar Már Newman
Heilsugæsla á hálum ís
Enn á ný virðist læknadcil-
an á Suðurnesjum komin
í aigjöran hnút. Við sem
sátum borg-
arafundinn í
Reykjanesbæ
fyrir
skömmu,
gerðum okk-
ur vonir unt
að takast
mætti að leysa
þessa deilu og
vonir okkar
jukust enn meir þegar læknar
samþvkktu að fresta þessum
aðgerðum um 3 mánuöi og
nýta þann tíma sem skapaðist
til að finna lausn á grundvclli
hugmynda sem virtust koma
frá ráðuneytinu sjálfu.
Ég lagði þann skilning í sam-
komulagið að menn slíðruðu
sverðin og færu af alvöru í að ná
samkomulagi. Þetta útspil ráð-
herra/forstjóra HS um að breyta
ráðningarkjörum og endurráða
aðeins hluta læknanna er algjör-
lega óskiljanlegt. Sá ágæti hópur
lækna sem tekist hafði með
herkjum að ná hingað suður, er á
nú leið eitthvað annað. Það kost-
aði vissulega peninga að ná þeim
og þessi umframkeyrsla sem
fym'erandi forstjóri var látinn
fjúka fyrir, er að hiuta til kominn
vegna þessa. I þessu ljósi er skilj-
anlegt að læknar sætti sig við
þetta og hafi uppi áform um að
koma ekki aftur til starfa. Við
höfum sjálfsagt öll okkar skoð-
anir á kröfúm lækna, en á þessari
stundu finnst mér þær ekki
skipta máli, heldur hitt, að þeir
töldu sig hafa gert samkomulag
við ráðherra um að koma til star-
fa og fresta aðgerðum. Það er
kannski verið að rétta við haila
HS með því að halda læknum ut-
andyra. Ég tel að að ég mæli fyrir
munn flestra Suðumesjamanna
þegar ég krefst þess að látið verði
af þessari vitleysu og heiisugæsl-
unni komið í eðlilegan rekstur.
Við sem skattgreiðendur eigum
heimtingu á því. Ríkið hefúr
þessa þjónustu á sinni könnu og
ber fúlla ábyrgð á að hún sé veitt.
Það nægir ekki að ráðherra segi
bara Sorry.
Guðbrandur Einarsson
44