Víkurfréttir - 19.12.2002, Síða 50
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
1 H Ivei CD r’an n i?
Kallinn á kassanum í VF viðtali
„Það er greinilegt
að það sem maður
er að skrifa er
lesið og á meðan
það er gert er
ég ánægður"
- segir Kallinn á kassanum í viðtali við VF
Atvinnurekendur
á Suðurnesjum!
Hafið þið kynnt ykkur
alla þá kosti sem bjóðast
í sorphirðu?
Suðurvirki er öflugt þjónustufyritæki í sorp-
hirðu og umhverfishreinsun.
Við bjóðum einfaldar og hagkvæmar lausnir í
sorpmálum stærri og smærri fyrirtækja og fjöl-
breytt úrval af ílátum á hagstæðu verði.
Hafið samband við sölumenn okkar og
fáið nánari upplýsingar.
<iD
SUÐURVIRKIEHF.
gAmamónusta sudurnesja
Fitjabakka 6 • 260 Njarðvík • Sími 421 1035
Netfang sudurvirki@gamar.is
Ibúar Suðurnesja hafa síð-
ustu mánuði séð pistla frá
Kallinum á kassanum sem
birst hafa vikulega í Víkur-
fréttum þar sem hann virðist
taka á málefnum sem aðrir
fjölmiölar fjalla ekki um. Viku-
lega berast ritstjórn Víkur-
frétta pistlarnir með töivupósti
og nýlega fékk Kallinn sitt eig-
ið netfang. Töluvert af pósti
liefur borist Kallinum á kass-
anum og segist hann vera
ánægður með yiðbrögöin sem
hann sé að fá. í Víkurfréttum í
síðustu viku féll pistill Kallsins
á kassanum niður vegna þess
að Kallinn sendi hann of seint
til ritstjórnar: „Eg bið iesendur
Víkurfrétta afsökunar á þessu
og get lofað því að þetta mun
ekki gerast aftur,“ segir hann í
viðtali við Víkurfréttir.
Töluvert af fyrirspurnum hafa
borist Víkurfréttum um það hver
Kallinn á kassanum er, en Páll
Ketilsson ritstjóri hefur látið hafa
það eftir sér að hann muni aldrei
gefa það upp hver Kallinn sé. 1
fjölmiðlum víða um heim og á
Islandi er það alþekkt að greinar
og pistlar séu skrifaðir undir dul-
nefhi og yfirleitt eru þeir notaðir
til að ljá máls á málefnum sem
fjölmiðlar taka almennt ekki á.
Kallinn á kassanum gegnir því
hlutverki á Víkurfréttum. En
hvaða mann hefur Kallinn á
kassanum að geyma? Víkurfrétlir
náðu tali af Kallinum og er svo
sannarlega hægt að segja að um
einkaviðtal sé að ræða, því Kall-
inn gefiir öðrum fjölmiðlum ekki
kost á viðtali. Þegar blaðamaður
hitti Kallinn á Kaffi Duus fyrir
stuttu var hann í óða önn að
skrifa pistil (þann sem birtist í
þessu blaði) á blað. „Ég fer yfir-
leitt á kaffihús til að skrifa pistl-
ana. Mér finnst mjög gott að sitja
á Kaffi Duus, horfa yfir smá-
bátahöfnina, kíkja á blöðin og
hugsa um mál sem ég gæti skrif-
að um“, segir Kallinn og lítur
yfir höfnina, en það er greinilegt
að sjávarútvegsmál eru honum
hugleikin: „Ég hef alla tíð haft
áhuga á sjávarótvegsmálum,
enda hef ég verið töluvert á sjó.
Ég ligg ekki á skoðunum mínum
varðandi kvótakerfið, enda tel ég
að um meingallað kerfi sé að
ræða. Ég skil ekki hvemig bæjar-
stjómin getur horft framhjá því
sem er að gerast á þessu svæði
þegar kvótinn hverfur af svæð-
inu. Vilja Árni Sigfósson og
Böðvar Jónsson horfa á eftir öll-
um kvótanum hér af svæðinu,
bara af því að forysta Sjálfstæð-
isflokksins segir að kvótakerfið
sé gott? Hverslags stjórnmála-
menn em þeir ef flokkshagsmun-
ir eru sterkari en hagsmunir
sveitarfélagsins. Framtíðarsýn
mín, eins og margra annarra
varðandi kvótakerfið er sú að
innan fárra ára verður allur kvót-
inn í höndum 5-7 fyrirtækja og
þessi fyrirtæki munu halda áfram
að sækja að smábátaeigendum
og ná af þeim kvóta. Vilja íbóar
Suðurnesja sjá það gerast? Ég
segi nó bara; sem betur fer era
kosningar á næsta ári og þar skal
stefha stjómmálaflokkana varð-
andi kvótamál verða skýr - það
verður krafa kjósenda", segir
Kallinn og það er greinilegt að
þessi mál em honum ofarlega i
huga. En Kallinn hefur áhuga á
fleiri málum: „Ég hef, eins og
aðrir ibúar Suðumesja fylgst vel
með læknadeilunni. Fyrst vor-
kenndu allir læknunum og vildu
leggja mikið á sig til að þeir
fengju þær launahækkanir eða
hvað það nú er sem þeir berjast
fyrir. Þeir þökkuðu f>ffr sig með
því að ráða sig til starfa, segja
síðan aftur upp og skilja allt eftir
i uppnámi eina ferðina enn. Ég er
verulega reiður út í læknana og
ski! ekki hvert þetta blessaða
þjóðfélag er að fara. Hvað ætla
þeir að halda þessu lengi áfram?
I mínum huga em þeir að brjóta
læknaeiðinn og þetta er svipað
og ef læknir sem væri að keyra
heim til sín á brautinni kæmi að
slysi, en ákvæði að keyra framhjá
því af því hann væri búinn að
stimpla sig út. Þessir menn sem
skattborgarar þessa lands eru
búnir að leggja milljónir í að
mennta, geta leyft sér að segja:
nei við viljum ekki sinna sjúk-
lingum af því launin eru ekki
næg. Og svo fara þessir sömu
læknar, sækja um vinnu annars
staðar og sinna þar lækningum
fyrir sömu laun og þeir fengu
hér. Þið heilsugæslulæknar, þið
ættuð að skammast ykkar og það
líður ekki á löngu þar til þið emð
búnir að brjóta allan hugsanlegan
trúnað við sjúklingana og klár-
lega eruð þið búnir að brjóta
læknaeiðinn. Hinsvegar má heil-
brigðisráðherra líka skammast
sín vegna dugleysis við að leysa
þessa deilu. Hann á að hætta að
leika þann víðfræga leik póli-
tíkusa, með almannatengslasér-
fræðinga sér við hlið þar sem
keppst er við það að láta allt líta
sem best út. Hann á að sjá sóma
sinn í því að leysa þessa deilu,
hvernig sem hann fer að þvi.
Báðir deilendur eiga að setjast
niður með það að markmiði að
leysa deiluna. Það einfaldlega
gengur ekki lengur að láta þetta
verkfall bitna lengur á íbúum
Suðurnesja - sama hvort sökin
liggur hjá læknum eða ráðherra.
Sjaldan veldur einn þá tveir deila.
Eins og áður segir er leyndarmál
hver Kallinn á kassanum er, en
aðeins örfáir aðilar vita hver per-
sónan á bakvið hann er. „Ég hef
fengið töluvert af tölvupósti frá
stjómmálamönnum sem segjast
ekki vilja svara Kallinum af því
hann komi ekki fram undir nafni.
Þó að örfáir aðilar viti að ég er
Kallinn á kassanum þá er ég í
samskiptum við mikið af fólki og
ég er að hlera það hvaða skoðanir
fólkið á götunni hefur á samtíma-
og þjóðfélagsmálum og ég reyni
að endurspegla rödd þeirra í
pistlunum. Eg segi við þessa
stjórnmálamenn og aðra sem
hafa skrifað mér bréf og sagt að
þeir vilji ekki svara mér vegna
þess að þeir viti ekki hver ég er,
að þessir einstaklingar sem svona
hugsa þora ekki að taka málefha-
lega umræðu um hlutina. Þeir
vilja hafa persónu sem þeir geta
atað auri ef sú persóna kemur
fram með skoðanir sem þeim lík-
ar ekki. Það er miklu erfiðara
fyrir þá að svara Kallinum á
kassanum vegna þess að hann
fjallar um mál sem aðrir þora
ekki. Þeir verða að átta sig á því
að það sem Kallinn skrifar um,
um það er fólkið að hugsa," segir
Kallinn.
Jólin era tími ljóss og friðar og
Kallinn segist ætla að njóta þess
að láta jólastemninguna umvefja
sig: „Ég hef alltaf passað mig á
því að hafa það gott um jólin og
það era þrjár reglur hjá mér: Að
borða hamborgarhrygg og hlusta
á aftansönginn; Að versla allar
gjafir á Suðurnesjum og að
borða hangikjöt á Jóladag. Ef að
þessar reglur haldast, þá verða
jólin góð“, segir Kallinn á kass-
anum að lokum.
50