Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 54
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Galopið í golfherminum
alla daga - öll kvöld - frábær aðstaða í „HF"
Púttvöllur og góð inniaðstaða,
snóker. Allir velkomnir,
ekki bara GS-félagar.
Tímapantanir í síma
421 4103 og 898 1009.
C'HERMIRyj #
Hafnargötu 2 • Keflavík* Gamla ,hf*
(■(Jcitdmn vmt'i/il/roiiiUM
ottnr o/j öKiiiii
(Jiitiinicsjmiiöiiiiinii
íhjjnr j<i(fitvci)jnr.
P/íoíín o/j PJljiirdís
Málefni Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
KRISTJÁN PÁLSSON ALÞINGISMAÐUR SKRIFAR:
Af pólitísku siðferði
„Ekkert sem er siðferðilega
rangt getur verið pólitískt rétt”
sagði W.E.Gladstone. Ég hef
velt því fyrir
mér hvort að
niðurstaða
kjömefndar
við uppstill-
ingu á lista
Sjálfstæðis-
flokksins
heíði orðið
öðruvísi ef
þessi tilvitn-
un hefði verið höfð að leiðar-
ljósi. Ég held að sú hefði orðið
raunin og Ellert Eiríksson ekki
þurft að skrifa réttlætingargrein
fyrir störfiim sínum í síðustu
Víkurfféttir.
Ekki prófkjör.
Það var vegna andstöðu stjóm-
ar kjördæmisráðs Suðurkjör-
dæmis og annarra þingmanna
en undirritaðs að ekki var við-
haft prófkjör hjá Sjálfstæðis-
flokknum að þessu sinni heldur
var valin uppstilling. Eins og
allir þekkja þá hefur fólkið í
kjördæminu tækifæri til að
breyta listum í prófkjörum og
gerir oft mjög róttækar breyt-
ingar sem ekki verður áffíað.
Sú siðaregla hefttr verið rikj-
andi þegar stillt er upp hjá
Sjálfstæðisflokknum að litlu er
breytt í röð sitjandi þingmanna
nema að viðkomandi hafi gert
eitthvað af sér eða haft augljós-
lega mjög skaðleg áhrif á fram-
boð flokksins að óbreyttu. Með
þetta í huga var ég tiltölulega
rólegur fyrir uppstillinguna
sem Suðumesjamaður eftir 8
ára þingsetu og af Suðumesja-
mönnunum með langflest at-
kvæði á bakvið mig effir síð-
asta prófkjör.
Hygla sjálfum sér.
Ég ætla ekki að tíunda að-
finnsluverð störf kjömefndar
það hefitr Valþór S. Jónsson
varamaður í kjömefnd gert í tíu
liðum í bréfi til miðstjómar
Sjálfstæðisfokksins. Eg vil
minna formanninn á nokkrar
siðareglur sem brotnar vom
með hans samþykki innan
nefndarinnar og kemur fram í
bréfi Valþórs: - Kjömefndar-
menn vom sjálfir í ffamboði -
ein kona sat fundi kjömefhdar
án þess að vera valin til þess af
kjördæmisráði - rétt kjömum
varamönnum var haldið frá
fundum kjömefndar vísvitandi-
minnislisti um einstaka fram-
bjóðendur þar sem rangt er eftir
þeim haft gengu í nefndinni án
vitundar frambjóðenda
annarra en þeirra sem vom
sjálfir í kjömefhdinni.
Sá ásetningur einstakra kjör-
nefndarmanna að hygla sjálf-
um sér eða einstökum vinurn
sínum er því skýr.
Hlutur Suðumesjamanna rýr.
Sú regla kjömefndar við upp-
stillingu á lista hefur ekki sést
áður að tvö sæti eigi að skilja
menn að ífá sama byggðarlagi
óháð stærð. Ég get ekki séð
réttlæti í því að við sem kom-
um ffá 11 þúsund manna
byggðarlagi eins og Reykjanes-
bæ eigurn að sitja að þessu
leyti við sama borð og t.d. 500
manna byggðarlag eins og Vík.
I Norðausturkjördæmi em tveir
efstu menn ffá sama byggðar-
laginu Akureyri. Það var lagður
steinn í götu okkar Suðumesja-
rnanna og þýðir ekki að mót-
mæla því. Innan kjömefhdar-
innar sjálffar var mikill ágrein-
ingur og á síðasta fundi hennar
fellt með 11 atkvæðum gegn 7
að opna listann aftur. Kjör-
nefndin var því klofin þegar
hún sá í hvert óefni var komið.
Það em ekki allir búnir að
gleyma einu helsta kjörorði
Sjálfstæðisfokksins “gjör rétt
þol ei órétt”.
Kristján Pálsson
alþingismaður.
Sparaðu þér skattana
-íslandsbanki í Keflavík aðstoðar fólk sem vill nýta sér
30 þúsund krónur í skattafslátt vegna hlutabréfakaupa
egar fólk fer að sjá fyrir endann
á árinu ákveða margir að fjár-
festa í hlutabréfum til þcss að
nýta sér þann skattafslátt sem fæst
með því,” segir Jóna Hróbjartsdóttir,
ráðgjafi hjá Islandsbanka í Keflavík,
aðspurð um skattahagræði vegna
hlutabréfakaupa í lok árs.
Samkvæmt reglunum geta einstaklingar
og hjón fengið allt að 60 prósent af kaup-
verði bréfanna dregin ffá tekjuskattstofhi
sinum. Og skattafslátturinn nýtist fólki
ekki eingöngu til þess að lækka tekju-
skatt, heldur einnig eignarskatt og að
hluta til Ijármagnstekjuskatt hjá þeim
sem eru með tekjur undir skattleysis-
mörkum.
„Nú í ár eru síðastu forvöð til þess að
nýta sér umræddan afslátt þar sem regl-
unum um skattafsláttinn hefur verið
breytt. Frá og með næsta ári verður af-
slátturinn ekki lengur gefinn og því
munu líklega margir stökkva á þetta
núna,” segir Jóna.
Töluvert er urn að fólk komi á milli jóla
og nýárs til þess að ganga ffá hlutabréfa-
kaupum til þess að tryggja sér afsláttinn.
Jóna segir að ráðgjafar íslandsbanka
hvetji viðskiptavini til þess að ganga í
málið tímanlega svo hægt sé að komast
hjá óþarfa veseni um hátíðamar.
Hvað vill fólk vita?
„Flestir spyrja hversu mikið þeir fá í
skattafslátt og því er auðsvarað. Einstak-
lingar geta fengið 30.832 krónur en hjón
ailt að 61.664 krónur. Þá fá þeir sem
greiða hátekjuskatt hærri ffádrátt,” segir
Jóna og bætir þvi við að margir spyrji
hvaða bréfúm þeir eiga að fjárfesta í.
„Við ráðleggjum fólki að hugsa um þessi
kaup sem langtímasparnað og bendum
ávallt á að kaupa í sterkum félögum,
byggðum á traustum grunni. Þumalputta-
reglan er að félögið sem keypt er í sé
með dreifða eignaraðild og að viðskipti
með bréf þess séu virk.”
Undanfarin misseri hafa viðskipti á
hlutabréfamörkuðum verið daufleg en
em nú tekin að glæðast á ný. Fjárfestar
em almennt bjartsýnir á það sem koma
skal og verð hefur farið hækkandi.
„Við höfum ekki farið varhluta af aukinni
bjartsýni og undanfarið
hefur borið meira á því
að fólk komi til okkar og
vilji fjárfesta. Þetta á
ekki hvað síst við um
skattafsláttinn,” segir
Jóna en bendir á að sum-
um einstaklingum vaxi
það í augum að þurfa að
eiga bréfin í fimm ár.
„Til þess að nýta afslátt-
inn þurfa einstaklingar
að eiga bréfin yfir fimm áramót. Ef ein-
staklingar kaupa bréf í dag má ekki selja
þau fyrr en í janúar 2007. Þetta er samt
nokkuð sem fólk ætti ekki að láta hindra
sig í því að ávaxta pund sitt,” segir Jóna.
Þeir sem ætla að nýta sér skattafsláttinn
þurfa að auka við hlutabréfaeign sína á
hveiju ári fyrir sig, þ.e. hafi einstaklingur
átt bréf á árinu sem hann hefúr selt þarf
viðkomandi að kaupa fyrir 133.333 krón-
ur umffam söluverðmæti bréfanna.
„Afsláttur er aðeins veittur ef heildareign
í hlutabréfum eykst yfir árið og það á
jafht við um fólk sem er að selja jöfnun-
arhlut og bréf sem það keypti án þess að
nýta sér skattafsláttinn,” segir Jóna.
Styrkja íslenskan inarkað
Upphaflega nutu einstaklingar einvörð-
ungu skattalegs hagræðis af hlutabréfa-
kaupum ef þeir keyptu í íslenskum félög-
um, en breyta þurfti reglunum árið 2000
vegna aðildar lslands að Evrópska efiia-
hagssvæðinu.
„Nú gildir afslátturinn um öll hlutabréf
sem skráð eru í kauphallir á Evrópska
efhahagssvæðinu. Hins vegar átti afslátt-
urinn aðeins að gilda tímabundið og árið
2002 er síðasta árið sem hægt er að nýta
sér þetta. Nú eru því síðustu forvöð að
skella sér til okkar og lækka skattana
sína,” segir Jóna að lokum.
54