Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 55
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
Uppgjör Ellerts Eiríkssonar
formanns kjörnefndar
SjálfstœÖisflokksins
í síðasta tölublaði Víkurfrétta fer
Ellert Eiriksson formaður kjör-
nefndar Sjálfstæðisflokksins yfir
ýmis mál er varðar störf kjör-
nefndar en gleymir öðrum eða
kýs að nefha þau ekki. Á meðal
þeirra er að hann ræðir lítið sem
ekkert um er hæfi einstakra kjör-
nefhdarmanna, en athyglisvert er
að í nefhdinni eru fjölmargir van-
ir sveitastjómarmenn og a.m.k. 3
núverandi og íýrrverandi bæjar-
eða sveitastjórar en einmitt á
þeim vettvangi eru skýrar reglur
er varða hæfi manna til að taka
þátt í störfum er varða þá sjálfa
eða nána venslamenn þeirra. Það
eina sem kemur inn á þetta í
grein Ellerts er að undir millifyr-
irsögninni Níunda til tuttugasta
sæti segir hann að „Enginn kjör-
neíhdarmaður fær að koma ná-
lægt ákvarðanatöku og atkvæða-
greiðslu ef hann gefur kost á sér
til setu á listanum”. Það verður
að segjast eins og er að þama
reyndi ekkert á þetta atriði þar
sem enginn kjömefhdarmanna
gaf kost á sér til setu í þessum
neðri sætum listans. Hefði Ellert
sett þessa setningu inn undir
millifyrirsögnunum sínum um
Fyrsta sæti eða Annað til áttunda
sæti hefði staðan verið önnur og
fullyrðingin röng þvi þar gáfu
tveir kjömefhdarmenn kost á sér
sem fiám að þvi höfðu tekið full-
an þátt í ákvarðanatöku. Annar
þeirra gaf kost á sér í 1. sæti en
hinn gaf kost á sér og fékk 3. sæti
listans. Sá sem gaf kost á sér í
fyrsta sæti vék af fundi rétt á
meðan um hann vom greidd at-
kvæði en kom að því loknu aftur
inn á fhndinn og tók þátt í honum
hafi undirritaður skilið ummæli
þar um rétt. Guðjón Hjörleifsson
sem tók 3. sæti listans er sagður
hafa sagt af sér rétt fyrir þann
fund sem fjallaði um það sæti, en
hann tók fham að því fullan þátt í
stöfum nefndarinnar, setti leik-
reglumar, kaus sér leiðtoga og
ákvað síðan að setjast í sandkass-
ann og leika við hann sjálfur.
Að því er varðar ofanritað er
óhætt að halda því fram að ekki
„hafi verið Iögð nægjanleg
áhersla á að gæta vandvirkni i
hvívena og jafnræðisreglur í há-
vegum hafðar” svo notuð séu orð
Ellerts sjálfs.
í lok greinar sinnar fullvissar Ell-
ert lesendur um „að kjömefhdin
hafi starfað af fagmennsku og
trúnaði og lagt metnað sinn í
störf sin með heildarhagsmuni
Suðurkjördæmis og Sjálfstæðis-
flokksins að leiðarljósi”. Sú nið-
urstaða sem nú liggur fyrir eftir
störf nefhdarinnar þar sem Krist-
jáni Pálssyni þingmanni er velt út
af listanum getur varla bent til
mikillar fagmennsku i vinnu-
brögðum nefndarinnar heldur
bendir hún til þess að aðrir sér-
hagsmunir hafi hér fyrst og síð-
ast ráðið ferðinni og það er trú
undirritaðs að þar hafi hagsmun-
ir Sjálfstæðisflokksins lítið verið
með i ferð.
Að lokum vil ég taka undir orð
Ellerts og gera þau þar með að
ábendingu minni „að segja ávallt
satt sama hve sannleikurinn er
sár”.
Valþór S. Jónsson
Varamaður í kjömefnd
Sjálfstæöisflokksins
I Suðurkjördæmi.
(Sftarfsfófá (Ofs, (Oéff oy (Mdssins
ósfar fér yCecí iíeyra jóCa oy
CarsæCCar d ComancC ari mect föCC
nr viosfzipnn oej samstaptin
a arinu sem er act Ccía.
uppsisr
léttir pér lífið
&
ódýrt bensín
Fitjabakka Njarðvík
Hítaveíta Suáurnesja
mínnír á uá Lærnleysí í medferd
]'u|mu<jns cjelur spílll liúiítWnní.
I.iillu |mit . L1.1 Li.i.i.. {.11 ii |>i■ |.
Bílanatíllcynníngar
1 lekíð er á móH tilkynningum um
1 liilanir í síma 422 5200 á vinnutíma,
1 en utan vinnutíma í síma Lk vaktar 421 3536
1
HITAVEITA
SUÐURNESJA HF
Brekkustíg 36 - Sími 422 5200
55