Víkurfréttir - 19.12.2002, Síða 59
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Fondú
á aðfangadag
Björn Víkingur Skúlason,
aðstoðarskólastjóri í
Heiðarskóla, og Elín
Gunnarsdóttir kona hans eru
ekki með hefðbundinn jólamat
á aðfangadag, þ.c.a.s. ham-
borgarhngg, rjúpu eða hangi-
kjöt. Þau eru með fondue, eða
„fondú” eins og sagt er á tal-
máli en það er ostaréttur upp-
runninn í Sviss. Rétturinn er
eldaður þannig að ostur er
bræddur í potti, brauðbitar
eru þræddir upp á teina og
þeim svo velt upp úr volgum
ostinum. Þetta hefur síðan vaf-
ið upp á sig og margskonar af-
brigði orðið til cins og
súkkulaðifondue, kjötfondue
og fleira.
„A aðfangadagskvöld höfum við
kjötfondue sem gengur eins fyrir
sig og ostafondue nema þá er
feiti hituð í fonduepotti og nauta-
, folalda- og/eða svínakjöt steikt í
sjóðheitri oliunni og í ár ætlum
við einnig að hafa humar”, sagði
Bjöm Víkingur í samtali við Vík-
urfréttir þegar hann var spurður
út í þennan óvenjulega jólamat.
Björn segir að þau hafi eldað
hefðbundna jólarétti og líkað
ágætlega. En eftir að hafa prófað
fondue í góðra vina hópi fannst
þeim tilvalið að bjóða heimasæt-
unum upp á þetta í fyrsta skipti
fyrir um það bil fjórum árum síð-
an, en þau eiga tvær dætur.
„Undirbúningurinn er tiltölulega
einfaldur en við höfum ávaxta-
salat, kartöfluslalat, ferskt græn-
metissalat og kartöflustrá ásamt
heitum og köldum sósum sem
meðlæti”.
Kjötið er niðursneitt og hver og
einn þræðir það upp á teinana
sem em merktir með sérstökum
litum þannig að það sé alveg ljóst
hvaða bita hver á að steikja. Það
er líka eins gott því að sú
Tillaga að deiliskipulagi
við Silfurtún
í samræmi við 1. mgr. 25. gr.
Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
er hér með auglýst til kynningar tillaga
að nýju deiliskipulagi við
Silíurtún i Gerðahreppi.
Tillagan verður til sýnis á skriístofu
Gerðahrepps á Melbraut 3, frá og með
16. desember 2002 til 13. janúar 2003.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta er hér með gefinn kostur á að
gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að skila inn athuga-
semdum er til 27. janúar 2003.
Skila skal inn athugasemdum á
skrifstofu Gerðahrepps
Melbraut 3, Garði.
Hver sá sem eigi gerír athugasemdir
við tillöguna fyrir tilskilirm frest
telst samþykkja hana.
Sveitarstjórí Gerðahrepps.
k J lil ÆmWmmk'W ■JM^LU
skemmtilega menning fylgir
fondue að ef bitinn, af einhveij-
um ástæðum verður eftir í pottin-
um, þarf sá er hann á að standa
upp og segja brandara eða ein-
hverja stutta skemmtisögu. Það
getur því borgað sig að vanda
þræðinguna. Þegar kjötið er
komið á diskinn kryddar hver og
einn það að eigin smekk. “Það
má því segja að það séu margir
kokkar að störfúm og við sjálfan
sig að sakast ef eitthvað fer
aflaga við eldamennskuna”, bætti
Bjöm við.
Björn segir að það sé mjög
skemmtilegt að elda fondue og
öllum á heimilinu líki það vel.
„Það sem okkur finnst skemmti-
legt við þetta er hvað máltíðin
tekur langan tíma þannig að það
er engin hætta á að borðað sé of
hratt. Þessi matarvenja hefúr að
vísu reynt talsvert á þolinmæði
stúlknanna einkum þeirrar yngri.
Potturinn sem við notum er raf-
magnspottur sem er mun þægi-
legri og ömggari heldur en pottar
þar sem sprittlampar em notaðir
til hitunar”. Björn og Ella eru
með fonduepottinn að láni frá
Valgerði Guðmundsdóttur og
Hjálmari Arnasyni. „Notkun
oldcar er það tíð að við „lánum”
þeim hann stundum þar sem við
höfum ekki enn komist að því
hvar hægt er að kaupa slíkan eð-
alpott”.
Björn og fjölskylda elda líka
hangikjöt og lambahrygg aðra
hátíðisdaga en grípa líka í
fonduið þar sem allt sem því
fylgir er tiltölulega ferskt.
Gott fondú á
aðfangadag!
Björn, Elín og dæturnar Vala
Rún og Jana Birta með
fondúpottinn góða.
990 kr.
3ja rétta kvöldverður
1.950 kr.
I einu elsta húsi
bæjarins
Fjörugarðurinn
Víkingaveislur
alla daga og dansleikir
allar lielgar
Um helgina spilar
Hljómsveitin Þotuliðið
frá Borgarnesi
Munið jólahlaðborðið
Eins og meistaraflokksbúningar
HEHSOH
Til sölu hjá
Arnari, sími 661 2875
og Ingólfi, simi 696 3288
Unglingaráð kkd UMFN
59