Jólakvöld - 01.12.1928, Síða 5
Ástgjöf kærleikans.
J óJahuglei ðing
eftir Þorgr. V. Sigurðsson, stud. theol.
fSvo elskaði guð heiminn, að hann gaf son
sinn eingetinn«. Jóh. 3, 16.
Hvað er elskunni æðra? Hvað er kærleikanum kröftugra?
Tign hans og máttur er mannheimi kunnur. Og þó er mannleg
elska sem endurskin eitt af kærleika guðs.
Þrent er í kærleikanum eitt: sá sem elskar, sá sem elskaður
er og gagnkvæm elska. An gagnkvæmrar elsku er kærleikurinn
ekki fullkomnaður. Allur kærleiksvottur stefnir að því, að sá sem
elskaður er, verði sér kærleika þess er elskar meðvitandi og and-
svar elskunnar bergmáli í brjósti hans. En kærleikurinn kallar,
þótt bergmálið bresti, hann gefur þótt gjöfin sé fótum troð-
in. Kærleikurinn gefur, hann gefur sjálfan sig, hann leggur sjálfan
sig í gjöf sína. Gildi sitt öðlast gjöfin fyrjr það, að hún er þeim,
er þiggur, vottur kærleika þess er gefur. Astgjöf kærleikans verð-
ur aldrei metin.
Guð er sá sem elskar, því að hann er kærleikur. Vér menn-
irnir erum elskaðir af guði. Og guð gaf mannkyninu gjöf til þess
að birta því kærleika sinn, til þess að vekja kærleika þess. Kær-
leikur guðs krefst kærleika manna. Hve dýrleg hugsun: án þess
að elska mannanna til guðs sé vakin er eðli guðs ekki fullnægt.
Hvílíkt fagnaðarefni syndugu mannkyni, að því er fyrirbúið kær-
leikssamfélag við guð. Guð gaf oss mönnunum gjöf, og hann lagði
sjálfan sig í gjöf sína, svo að þeim, er hana þiggja, uppljúkast
augu fyrir guði sjálfum. — Og orðið varð hold og hann bjó með
oss fullur náðar og sannleika. Jesús Kristur kom í heiminn til
3