Jólakvöld - 01.12.1928, Qupperneq 8
mínningarnar í Lúthershúsí eiga sér ódáins gerfi, lífsneistinn get-
ur ekki kulnað, eilífðar gildi sálnanna er varanlegt, og á bak við
minningarnar er sem slái heitt hjarta áhugamannsins, sem í engu
hikaði né lét skelfast. — — —
Myndirnar horfa á mig engu síður en eg horfi á þær, og al-
staðar blasa við sjón minni hin alkunnu djörfu orð Lúther, sem
letruð eru víðsvegar á veggina.
Myndirnar sýna frumleik listamanns handarinnar, sem átti í
sér fólginn þann mátt, er tímans tönn fær eigi sigrast á, en eink-
anlega leyfa þær mér þó að skygnast inn í líf og starf þess
manns, sem Lúthershús er helgað. —
Myndirnar horfa á mig. Þær seyða fram úr sálardjúpinu horfn-
ar bernskuminningar. Eg minnist þess nú er eg var barn og lærði um
Martein Lúther, sem fæddist í Eisleben á Saxlandi, og hugmyndirn-
ar, sem þá vöknuðu í barnhugsun minni, fá hér ljós og nýja næring.
Eg nem staðar hjá borði einu og skoða teikningar af æfi-
atriðum Lúthers. Eg horfi ekki á þær með kritisku listamanns-
auga, eg á það ekki til, en eg horfi í skuggsjá liðins tíma, þar
sem varpað er björtu ljósi yfir ýms æfiatriði Lúthers, og ber glögg-
an vitnisburð um handleiðslu og stjórn Drottins. -
Myndin af berfætta drengnum, sem syngur fyrir utan glugg-
ann hennar frú Úrsúlu, minnir mig á trúarljóð, þrungin af and-
ans glóð, öflug og innileg, vekjandi og hvetjandi ljóð, sem berast
á milli hjartnanna, frá manní til manns, alla leið til íslands hljóm-
ar: »Vor Guð er borg á bjargi traust, hið besta sverð og verja«. —
Myndin af hinum unga Lúther, gáfuðum, áhugasömum náms-
manni, sem glæsileg mentabrautin bíður eftir, en hann sér sig um
hönd, sálarbarátta knýr hann til þess að segja skilið við skóla
og nám og ganga í klaustur.
Félagarnir fylgja honum grátklökkir að klausturdyrunum. Þar
skiljast vegirnir. Fyrir innan hina háu og þungbrýndu klaustur-
múra hygst Lúther að eyða æfi sinni við heilabrot um hulin efni,
í einveru og sjálfspynting, til þess að reyna þannig að leita sálu
sinni Guðs friðar og ávinna sér fyrirgefningu syndanna með eigin
breytni.
6