Jólakvöld - 01.12.1928, Qupperneq 20
Og þá gat síra Truphéme farið strax til Aberville og látið gera
nýjan kross úr fægðum íben-viði, með skildi, sem á stóð letrað
gullnum stöfum I. N. R. I. Tveim mánuðum síðar var þessi kross
settur upp þar sem hinn fyrri hafði hangið og Kristur negldur á
hann að nýju.
En Kristur yfirgaf þennan kross eins og hann hafði yfirgefið
hinn, steig ofan af honum þegar kvöld var komið og lagðist á
altarið.
Næsta morgun, þegar presturinn kom þar að, féll hann á kné
og gjörði langa bæn. Fregnin um hið undursamlega kraftaverk
flaug um nágrennið og konurnar í Amiens stofnuðu sjóð fýrir
Krist frá Saint-Valéry. Sira Truphéme bárust peningar og dýrir
gripir frá París, og kona hermálaráðherrans sendi brjóstkross,
settan demöntum. Fyrir öll þessi auðæfi bjó gullsmiðurinn í La
Rue St. Sulpice á næstu tveim árum til nýjan kross úr gulli og
dýrum steinum, sem var settur upp með mikilli viðhöfn næsta
sunnudag eftir páska árið 18—. En Hann, sem tók á sig kross
þjáninganna, flýði krossinn, sem gjörður var úr gulli og dýrum
steinum og lagðist enn á ný á hvítt altarisklæðið.
Og nú var hann látinn eiga sig þar um stund, því menn vildu
ekki hætta á það að styggja Frelsarann. Og þar hafði hann legið i
meira en tvö ár þegar Pierre litli, sonur Pierre Caillou, tjáði prest-
inum, að hann hefði fundið hinn upprunalega kross kristsmynd'
arinnar í fjörunni.
Pierre var mesti fáráðlingur; og af því að hann hafði ekki
nægilegt vit til að vinna fyrir sér sjálfur, þá gaf fólk honum að
borða í gustukaskyni. Og hann var vel látinn, því hann gerði
engum mein. En hann blaðraði mikið og enginn hlustaði eftir því
sem hann sagði.
En síra Truphéme, sem stöðugt var að hugsa um Krist
frá hafinu, undraðíst það mjög, sem vesalings fávitinn sagðí
honum. Og hann fór með kirkjuþjónum sínum á staðinn, sem
drengurinn vísaði á, og þar fundu þeir tvo samanneglda planka,
sem sýnilega höfðu velkst lengi i sjónum og voru eins og kross
í lögun.
18