Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016 Oft er handagangur í öskjunni þegar trillurnar sem stunda strandveiðar frá Norðfirði koma inn. Flestar koma trillurnar inn til löndunar milli klukkan 15 og 16. Oft bíða 5-6 trillur eftir lönd- un, en landa þarf fyrir klukkan 16 á daginn. Ástæðan er sú að aflinn sem Fiskmarkaður Austurlands selur fer á flutningabíl og er til- búinn til vinnslu, jafnvel á suðvesturhorninu morguninn eftir. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Handagangur í öskjunni þegar strandveiðibátarnir koma inn Löndunarbið á Norðfirði Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við munum í sumar byrja að þjálfa nýja flugmenn og er það mun fyrr en áður hefur verið,“ segir Hilmar Baldursson, flugrekstrarstjóri Ice- landair, við Morgunblaðið og vísar til þess að Icelandair óskar nú eftir flugmönnum til starfa, en ástæðan er aukin umsvif félagsins. Umsóknarfrestur vegna ráðning- ar fyrir fyrstu námskeið sem haldin verða í sumar var til og með 1. júní síðastliðinn. Aðspurður segir Hilm- ar á annað hundrað einstaklinga hafa sótt um hjá félaginu. Tími og búnaður nýtist betur „Fyrsta námskeiðið hefst nú í sumar en svo verða fleiri námskeið haldin í haust og heldur þjálfun flugmanna einnig áfram næsta vet- ur,“ segir Hilmar og bendir á að flugfélagið hafi ákveðið að hefja þjálfun flug- manna, sem hefja eiga störf vorið 2017, í sumar til að dreifa álagi tengdu þjálfun. „Fyrirtækið er ört stækkandi og við viljum dreifa álagi vegna þjálf- unar nýrra flugmanna svo hún sé ekki öll á veturna, en þá á sér einnig stað síþjálfun flugmanna. Með þessu móti getum við nýtt tímann betur og um leið flughermi okkar í Hafnar- firði,“ segir hann. Icelandair gerir þá kröfu að um- sækjendur séu með um 300 flugtíma að lágmarki, þar af 100 flugtíma reynslu sem flugstjóri. „Við vorum áður með 500 flug- tíma sem lágmark. Nú er gerð sú krafa að menn séu annaðhvort með að lágmarki 500 flugtíma eða 300, en þeir sem eru með færri en 500 tíma þurfa að hafa lokið svokölluðu Jet Orientation Course (JOC) áður en þjálfun hefst,“ segir Hilmar, en það er námskeið sem veitir nauðsynleg- an undirbúning fyrir þjálfun á þotu. Erlendir flugmenn í myndinni Þó að ekki sé skortur á flugmönn- um hér á landi segir Hilmar það geta breyst samhliða áframhaldandi vexti íslensku flugfélaganna. „Það eru ýmsar leiðir opnar til að bregð- ast við því. Ein leið væri sú að hvetja ungt fólk til að hefja flugnám og jafnframt skoða þann möguleika að ráða fleiri útlendinga til starfa. Við höfum þó ekki áhyggjur af þessu enn sem komið er,“ segir hann. Á annað hundrað umsóknir  Icelandair óskar eftir flugmönnum til starfa  Margir sýna starfinu áhuga  Áframhaldandi vöxtur íslensku flugfélaganna gæti leitt til skorts á flugmönnum Hilmar Baldursson Morgunblaðið/Júlíus Þotur Fjölmargir flugmenn hafa sótt um stöður hjá Icelandair. Höskuldur Þór- hallsson, þing- maður Fram- sóknarflokksins og formaður um- hverfis- og sam- göngunefndar, hyggst leggja fram frumvarp um leið og þing kemur saman að nýju, sem myndi koma í veg fyrir lokun norðaustur-/ suðvesturflugbraut Reykjavíkur- flugvallar. Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að ríkinu væri skylt að loka flugbrautinni innan 16 vikna. „Frumvarpið myndi festa í lög að flugvöllurinn yrði í óbreyttri mynd, á þeim stað sem hann er, þar til Alþingi hefur tekið ákvörðun um annan valkost, og enn fremur að sá valkostur sé tilbúinn,“ segir Hösk- uldur. »22 Hyggst leggja fram frumvarp um að flugbrautin haldist Höskuldur Þórhallsson Jóhann Hjartar- son og Héðinn Steingrímsson eru efstir og jafnir fyrir loka- daginn á Skák- þingi Íslands. Jó- hann mætir Jóhanni Ingva- syni, sem er neðstur á mótinu, og Héðinn mætir Einari Hjalta Jenssyni, sem einnig er neð- arlega. Ef stórmeistararnir verða jafnir mætast þeir í tveimur hrað- skákum í aukakeppni um titilinn. Verða hraðskákirnar tefldar í Tón- listarskólanum á Seltjarnarnesi fljótlega eftir lokaumferðina, upp úr kvöldmatarleytinu. »26 Úrslitin ráðast á Sel- tjarnarnesi í kvöld Jóhann Hjartarson Kristján Gunnar Berg- þórsson, fyrrverandi verkstjóri í framleiðslu- deild Morgunblaðsins, varð bráðkvaddur á heimili sínu aðfaranótt 10. júní, 69 ára að aldri. Kristján var fæddur 31. mars 1947 í Hafnar- firði, sonur Bergþórs Kristjáns Mýrmann Albertssonar bifreiða- stjóra og konu hans Maríu Jonnýjar Jakobsdóttur. Hann ólst upp í Hafnarfirði og gekk þar í Lækjar- skóla og Flensborg. Að loknu gagn- fræðaprófi fór Kristján til náms í Iðnskólanum í Reykjavík og lauk sveinsprófi í setningu árið 1967. Hann hlaut meistararéttindi í iðn- inni árið 1974. Kristján var lærling- ur í Prentsmiðju Hafn- arfjarðar og starfaði þar til ársins 1972. Hann hóf störf hjá Prentsmiðju Morgun- blaðsins árið 1972 og var verkstjóri í fram- leiðsludeild blaðsins frá árinu 1974 og allt þar til hann lét af föstu starfi á Morgunblaðinu haustið 2011. Kristján var lykil- maður við innleiðingu og rekstur framleiðslu- og ritstjórnarkerfa Morgunblaðsins. Hann veitti sér- fræðiaðstoð þegar upp komu vanda- mál við rekstur framleiðslu- og ritstjórnarkerfanna allt til hinsta dags. Kristján gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum um ævina, m.a. fyrir Félag íslenska prentiðnaðarins (FÍP) sem síðar gekk inn í Samtök iðnaðarins, og fyrir Hið íslenska prentarafélag (HÍP) sem síðar varð Félag bókagerðarmanna, Grafía stéttarfélag. Hann var um tíma í stjórn Prenttæknistofnunar. Þá var Kristján í stjórn Miðdalsfélagsins, félags sumarhúsaeigenda í Miðdal, og formaður þess 1992 til 1995. Hann var einnig félagi í Frímúrara- reglunni. Kristján kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Sóleyju Örnólfs- dóttur 28. febrúar 1970. Þau eign- uðust fjögur börn; Birnu, Ernu, Al- bert Þór og Stefán Örn. Barnabörnin eru orðin ellefu talsins. Að leiðarlokum þakkar Morgun- blaðið Kristjáni fyrir störf hans fyrir blaðið og sendir fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Andlát Kristján Gunnar Bergþórsson Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Verð frá: 19.900 kr. Á mann m.v. flug aðra leið frá Keflavík með tösku. MALLORCA EINGÖNGU FLUG 14. og 21. júní VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS Betri ferð - vita.is fyrir betra verð Einn heppinn miðaeigandi fer brosandi inn í helgina eftir að hafa unnið 10 milljónir króna í Happ- drætti Háskóla Íslands þegar dregið var út í gær og milljóna- veltan gekk út. Alls fengu 3.375 miðaeigendur vinning í útdrættinum og nam heildarupphæð vinninga alls rétt tæplega 108 milljónum króna. Af þeim sem voru dregnir út fékk einn miðaeigandi 5 milljóna króna vinning í útdrættinum, sex miðaeigendur fengu milljón króna vinning og 15 miðaeigendur fengu 500 þúsund kr. vinning. Einn fékk 10 millj- ónir í Happdrætti HÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.