Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Eftirsóknarverðustu piparsveinar
2. Leita svara vegna andláts
3. Stunda frumskógarkynlíf
4. Fornt mannvirki fannst falið …
Alþjóðlega ritlistarráðstefnan Non-
fictioNOW verður haldin í Reykjavík
2.-4. júní á næsta ári og er hún helg-
uð óskálduðu efni af ýmsu tagi. Er
hún ein sú stærsta sinnar tegundar í
heiminum og síðast þegar hún var
haldin, í Flagstaff í Arizona, sóttu
hana yfir 500 manns, að því er fram
kemur á vef Háskóla Íslands, en ráð-
stefnan verður haldin á vegum Hug-
vísindasviðs skólans. „Sambærilegur
bókmenntaviðburður hefur ekki verið
haldinn áður á Íslandi og því er mikill
fengur að ráðstefnunni fyrir íslenskt
bókmenntasamfélag,“ segir á vefn-
um og að ráðstefnan fari fram í Há-
skóla Íslands en boðsfyrirlestrar
verði haldnir í Hörpu.
Ráðstefnuna sækja að jafnaði 400-
500 manns, höfundar, kennarar og
stúdentar, og boðsfyrirlesarar eru
þekktir höfundar. Á ráðstefnunni í
Reykjavík er gert ráð fyrir einum ís-
lenskum boðsfyrirlesara og þremur
erlendum og búast má við 70-80 mál-
stofum og viðburðum í tengslum við
ráðstefnuna, skv. frétt á vef HÍ.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
NonfictioNOW haldin
haldin á Íslandi 2017
Aðrir tónleikar sumartónleikaraðar
veitingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu fara fram í dag kl. 15. Á
þeim leikur nýtt tríó píanóleikarans
Sunnu Gunnlaugsdóttur, Tribute tríó,
sem hún skipar ásamt bassaleik-
aranum Leifi Gunnarssyni og
trommuleikaranum Kristó-
fer Rodriguez Svönusyni.
Þau flytja
eigin djass-
útgáfur af
lögum
Magnúsar Ei-
ríkssonar.
Tribute tríó Sunnu
djassar á Jómfrúnni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Þurrt að kalla, annars skýjað með köflum eða bjartviðri. Hiti 12 til
19 stig að deginum, hlýjast í innsveitum.
Á sunnudag Austan og norðaustan 5-10 m/s. Víða bjartviðri sunnan- og vestanlands en
skýjað með köflum norðan- og austantil og þokuloft við ströndina. Hiti 7 til 18 stig.
Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag Fremur hæg norðaustlæg eða
breytileg átt. Skýjað með köflum og skúrir til landsins, einkum síðdegis. Heldur kólnandi.
Íslenska karlalandsliðið í handknatt-
leik hefur tekið þátt í öllum heims-
meistaramótum á þessari öld að
undanskildu HM 2009. Nú standa
fyrir dyrum tveir leikir hjá liðinu í
undankeppni HM í Frakklandi, báðir
gegn Portúgal. Fyrri viðureignin fer
fram í Laugardalshöll á morgun.
Portúgalar eru í sókn og íslenska lið-
ið er með nýjan mann í brúnni. »2
Nýr maður í brúnni gegn
landsliði í mikilli sókn
Landslið gestgjafa Frakka
vann upphafsleik 15. loka-
keppni Evrópumeistara-
móts karla í knattspyrnu í
gærkvöldi. Frakkar lögðu
landslið Rúmena, 2:1, í
hörkuleik á Stade de
France. Dimitri Payet skor-
aði sigurmarkið á 89. mín-
útu og þótti það einkar
glæsilegt. Payet brast í grát
þegar flautað var til leiks-
loka. »3
Payet skoraði og
brast í grát
„Ef við náum að halda skipulaginu
fyrstu 20-30 mínúturnar á móti
Portúgölum getur leikurinn þróast
okkur í hag. Ég er ekki hræddur við
neinn leik í þessum riðli. Ég er ekki að
segja að við vinnum Portúgalana en
við getum vel unnið bæði Ungverja og
Austurríkismenn,“ segir Ásgeir
Sigurvinsson um möguleika íslenska
karlalandsliðsins í
knattspyrnu á EM í
Frakklandi. »1
Ekki hræddur við neinn
leik í þessum riðli
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vélknúnum fisum hefur fjölgað ört
hérlendis á skömmum tíma og ný-
lega tóku Árni Gunnarsson og fé-
lagar nýja vél í gagnið eftir að hafa
varið um 700 klukkutímum í að
setja hana saman.
Svifdrekafélag Reykjavíkur var
stofnað 1978. Síðan fóru menn að
fljúga svifdrekum með mótor og
um aldamót hófst flug á svifvængj-
um (e. paragliders) hérlendis. Í
kjölfarið komu vélknúin fis og 2002
var nafni félagsins breytt í Fisfélag
Reykjavíkur.
Árni hefur sinnt þessu áhugamáli
í 39 ár, eða frá 1977. „Bekkjarfélagi
minn í Menntaskólanum í Reykja-
vík átti svifdreka, fékk sér nýjan
og seldi mér þann gamla,“ segir
hann. „Ég var í svifflugi, þekkti
flug og þetta var nýtt tækifæri og
spennandi.“ Hann smíðaði síðan
véldreka eða mótorsvifdreka 2001
og er núna með fimmtu fisvélina,
sem kostaði um sex milljónir
króna.
Árni segir að þrír hópar í félag-
inu hafi ákveðið að panta jafn-
margar ósamsettar vélar frá Ítalíu
og pakkarnir hafi komið til landsins
skömmu fyrir síðastliðin jól. „Þá
hófumst við handa og við félag-
arnir, ég, Jónas Sturla Sverrisson
og Jón B. Sveinsson, lukum við að
setja vélina saman í apríl eftir að
hafa dundað við verkið í 700
klukkutíma.“
Hámark 450 kg á lofti
Fisvél er tveggja manna far sem
lítur út eins og flugvél. Samkvæmt
reglum Flugmálastjórnar má vélin
aldrei vera þyngri á lofti en 450 kg.
„Þetta er bara leiktæki eins og vél-
sleði, jafnvel eins og lúxusbíll án
leðursæta, því þau eru of þung, til
notkunar allt árið,“ segir Árni og
áréttar að vélin verði að geta flogið
hægar en 65 km á klukkustund, en
flugþolið er um sex til sjö tímar.
„Við getum flogið um landið og
miðin og flug frá Reykjavík til
Akureyrar tekur til dæmis um einn
og hálfan tíma.“
Gott samstarf er með Flugbjörg-
unarsveitinni og eigendum fisvéla,
sem gjarnan eru kallaðir til aðstoð-
ar þegar leita þarf að fólki vítt og
breitt um landið. Ekki er langt síð-
an leitarmenn í fisvél fundu spor
týndrar konu fyrir norðan, þyrla
fylgdi síðan sporunum og fann kon-
una á fjallstoppi. „Vélarnar hafa
komið sér vel og þátttaka okkar í
starfi Landsbjargar er hluti af
leitarstarfinu og við tökum þátt í
því að mestu á eigin kostnað,“ seg-
ir Árni. „Það er mikil ánægja að
geta hjálpað öðrum.“
Því fylgir mikið frelsi að fljúga
um loftin blá og Árni segir það
veita sérstaka fullnægingu. „Þetta
endist aðeins lengur en kynlíf,“ út-
skýrir hann. „Það eru forréttindi
að geta skoðað Ísland, séð staði
sem ekki er hægt að fara á gang-
andi eða í bíl. Þótt ég hafi flogið í
40 ár hef ég ekki skoðað nærri allt
landið og á því mikið eftir.“
Fisvélin leiktæki allt árið
Árni hefur flogið um landið í 40 ár
Eins og lúxusbíll án leðursæta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugmenn Árni Gunnarsson, Jónas Sturla Sverrisson og Jón B. Sveinsson eru himinlifandi með nýju fisflugvélina.
Á flugi Árni Gunnarsson flýgur um loftin blá og skoðar landið.