Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
að sem mér finnst svo
flott við Jan sem ljós-
myndara er að hann
festist ekki í einni tækni
því hann myndar á staf-
ræna vél, filmuvélar, Polaroid og
8x10 stórformatsmyndavél, allt eftir
því sem honum finnst hæfa hverju
verkefni fyrir sig. Hann er fagmaður
fram í fingurgóma og skemmtilegur
óþekktarangi. Þrátt fyrir að Jan sé
þekktastur fyrir fréttaljósmyndir
sínar myndar hann svo miklu meira
en það,“ segir Sissa ljósmyndari, eða
Sigríður Ólafsdóttir, skólastjóri
Ljósmyndaskólans ehf. sem býður
upp á nokkurra daga námskeið eða
svokallaða vinnustofu með Jan sem
hefst í lok mánaðarins.
„Jan er einstaklega flinkur ljós-
myndari. Reynsla hans og þekking á
ljósmyndun er mikil, enda á hann á
25 ára feril að baki. Hann hefur unn-
ið mörg ljósmyndaverkefni sem
tengjast mannréttindum og mál-
efnum þeirra sem búa á átakasvæð-
um. Hann myndar meðal annars
mikið í Afríku og á Gazasvæðinu, af
því hann vill leggja sitt af mörkum til
að segja með myndum sögur þeirra
sem ekki hafa tækifæri til að gera
það sjálfir.“
Jan er mjög hreinskilinn
Sissa segist hafa kynnst Jan
þegar hann kom hingað til lands fyrr
á þessu ári til að vera yfirdómari
dómnefndar sem valdi bestu myndir
ársins, hjá íslenska blaðaljósmynd-
arafélaginu.
„Jan býr yfir mikilli þekkingu,
Jan er skemmtilegur
óþekktarangi
Danski ljósmyndarinn Jan Grarup verður með fjögurra daga námskeið á vegum
Ljósmyndaskólans um næstu mánaðamót. Yfirskrift námskeiðsins er „Scratching
the surface – going under the skin“ og snýr að fréttaljósmyndun. Sissa, skólastjóri
Ljósmyndaskólans, segir Jan vera flottan ljósmyndara sem nái að festa í einn
ramma heila sögu, og hann geri það á mjög áhugaverðan hátt.
Hinn árlegi Handverksdagur Heim-
ilisiðnaðarfélags Íslands fer fram á
Árbæjarsafni á sunnudaginn, 12.
júní. Dagurinn hefur notið mikilla
vinsælda undanfarin ár, enda margt
áhugavert og fallegt sem ber þar
fyrir sjónir. Venju samkvæmt munu
félagsmenn sýna margvíslegt hand-
verk, eins og útsaum, baldýringu,
knipl, perlusaum, tóvinnu, spjald-
vefnað, rússneskt hekl og sauð-
skinnsskógerð. Einnig verður hægt
að fylgjast með ullarlitun eftir
gömlum aðferðum með íslenskum
jurtalitum. Á baðstofulofti Árbæjar
mun vinnukonan þeyta rokkinn og
teygja lopann á meðan vinnumað-
urinn spinnur úr hrosshári og fléttar
í reipi og bregður í gjarðir. Þá verð-
ur eldsmiður að störfum í smiðj-
unni.
Það verður einnig líf og fjör á
torginu og í safnhúsinu Lækjargötu
4 kennir margra grasa á sýningunni
Neyzlan – Reykjavík á 20. öld. Fyrir
yngstu kynslóðina er tilvalið að
heimsækja sýninguna Komdu að
leika en þar er mikill fjöldi leikfanga
frá ýmsum tímum sem krökkunum
er frjálst að leika sér með. Auk þess
er fjölbreytt úrval af útileikföngum
til staðar sem krökkum býðst að
nota að vild, svo sem húllahringir,
snú-snú, kubb og stultur. Að vanda
verður heitt á könnunni í Dillons-
húsi. Aðgangur er ókeypis fyrir börn
yngri en 18 ára. Árbæjarsafn er opið
daglega í sumar frá klukkan 10 – 17.
Handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands
Ljósmynd/Viðey – Borgarsögusafn
Handverk Vinnumenn og vinnukonur munu taka til hendinni á sunnudag.
Lopinn teygður á Árbæjarsafni
Félagið Skýjarölt stendur fyrir flugdrekahátíð í dag, laugardaginn 11.
júní. Börn jafnt sem fullorðnir eru hjartanlega velkomin á Laugarnes-
tanga þar sem hátíðin fer fram. Þetta er annað sumarið í röð sem
Skýjarölt stendur fyrir fjölbreyttum uppákomum í tengslum við flug-
dreka og flugdrekagerð.
Fjöldi flugdreka mun svífa um loftin blá á Skýjarölti. Allir hafa tæki-
færi til að koma með eigin flugdreka, en einnig er hægt að kaupa flug-
dreka á staðnum. Þá verður einnig hægt að útbúa sinn eigin flugdreka í
sérstakri vinnustofu sem sett verður upp og þar sem finna má allt sem
hugurinn girnist.
Í tilkynningu frá Skýjarölti kemur fram að nú skuli vindurinn í borg-
inni okkar nýttur, nóg sé af honum. Aðgangur að hátíðinni er ókeypis en
Flugdrekafestivalið er haldið af Skýjarölti í samvinnu með Æskunni
Barnahreyfingu IOGT með stuðningi frá Æskulýðssjóði.
Skýjarölt stendur fyrir flugdrekahátíð á Laugarnestanga
Vindurinn í höfuðborginni
nýttur til litríks flugdrekaflugs
Ljósmynd/Skýjarölt
Sköpun Frá flugdrekagerð í fyrra.
Í sumar munu Vinir Waldorf, Hollvina-
samtök fyrir starfsemi Waldorfleik-
skólans Yls og Waldorfskólans Lækj-
arbotnum, halda úti Litlu Lækjar-
botnabúðinni í Kópavogi. Þar geta
allir unað sér við leik og starf. Allt
starfið er unnið í sjálfboðavinnu og
allur hagnaður rennur til starfsemi
Waldorfskólanna í Lækjarbotnum.
Ýmsar uppákomur verða og verður
opnunartími auglýstur hverju sinni á
Facebook-síðunni Vinir Waldorf.
Opið verður í Lækjarbotnabúðinni í
dag, laugardaginn 11. júní, frá kl. 10-
14. Eldsmiðjan verður opin þar sem
Einar eldsmiður sýnir handtökin og
þér gefst kostur á að prófa steðjann
og hamarinn. Heitt verður á könnunni
og hægt verður að fá bita með.
Þá verður plöntusala ásamt kram-
búð með handgerðum leikföngum á
staðnum.
Ýmislegt verður um að vera fyrir
börnin, meðal annars verður hægt að
blása sápukúlur og búa til sinn eigin
flugdreka. Lækurinn rennur hjá og ef
rignir eru pollarnir dásamlegir að
sulla í.
Eldsmiðja, krambúð og plöntusala í Lækjarbotnum
Ljósmynd/Vinir Waldorf
Búð Plöntusala í Lækjarbotnum.
Vinir Waldorf opna Lækjar-
botnabúðina í náttúrunni
Njóttu hálendisins
Hákarl Þessa mynd af daglegu lífi við bágar aðstæður tók Jan í Sómalíu.
Klipping Þessa mynd í húsarústum eftir jarðskjálfta tók Jan í Kasmír.