Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is BMW 520D XDRIVE F10 nýskr. 01/2015, ekinn 25 Þ.km, diesel, sjálfskiptur (8 gíra). Sóllúga, leður, rafmagnskrókur ofl. Stórglæsilegur! Verð 8.690.000 kr. Raðnr. 254961 BMW 535D XDRIVE F10 nýskr. 04/2015, ekinn 25 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. Gríðarlega vel búinn og öflugur bíll! Verð 11.990.000. Raðnr. 255003 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Fjórhjóladrifnir lúxusbílar BAKSVIÐ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Nýtt fangelsi á Hólmsheiði var form- lega opnað í gær. Bið verður þó á að fangar muni dvelja þar sökum þess að starfsfólk þarf aðlögunartíma til þess að læra á ný- stárlegan búnað fangelsisins. „Þetta hefur gríð- arlega þýðingu. Með þessu erum við búin að bregð- ast við ýmsum at- hugasemdum al- þjóðasamtaka um aðbúnað fanga,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri í tilefni af opnun fangelsisins. Grynnkar á boðunarlistum Fangarýmum fjölgar um 30 auk þess sem fangelsið þykir býsna öruggt fyrir fanga og starfsfólk. Að sögn Páls er það eitt helsta verkefni fangelsismálakerfisins að grynnka á boðunarlistum til fangels- isvistar. Spurður hvort að með bygg- ingunni sé komið í veg fyrir biðlistar- vanda til framtíðar segir hann að það sé háð óvissuþáttum. „Þar spilar inn í löggjöf, reglur um reynslulausn, samfélagsþjónustu, rafrænt eftirlit og þyngd refsinga hjá dómstólum. Því er mjög margt sem hefur áhrif og erfitt að segja til um það nákvæm- lega til hve langs tíma og hvort þetta dugi til.“ Að sögn Páls hefur ný löggjöf, þar sem m.a. er gert ráð fyrir auknu svig- rúmi til rafræns eftirlits, minnkað þrýsting á fangelsin. „Það er líka okkar verkefni að finna fleiri leiðir til fullnustu refsinga á borð við samfélagsþjónustu, raf- rænt eftirlit og vistun á áfangaheim- ilum, en það breytir því ekki að enn er þörf á lokuðum fangelsum,“ segir Páll. Að sögn hans var farið að skil- yrðum evrópskra fangelsisreglna við byggingu fangelsisins. „Við höfðum uppleggið tvíþætt og það sneri ann- ars vegar að öryggi og hins vegar að mannúð, þannig að fangar geti af- plánað við öruggar aðstæður, en jafnframt að allur aðbúnaður stand- ist nútímakröfur um aðbúnað fanga. Hvort sem það eru einkavistarverur eða sameiginleg aðstaða. Þessir hlutir eru í lagi á Hólmsheiði,“ segir Páll. Í fangelsinu verður m.a. kennslu- stofa, vinnuaðstaða, kaffistofa, bóka- safn og líkamsræktaraðstaða auk þess sem rekin verður verslun. Þá er búið að gera úrbætur á aðstöðu fyrir heimsóknir. Fyrstu fangarnir inn í ágúst Næstu skref Fangelsismálastofn- unar eru að halda námskeið þar sem starfsfólki á Hólmsheiði verður kennt á búnað sem er umtalsvert flóknari en í öðrum fangelsum lands- ins. Á Hólmsheiði munu 26 fanga- verðir starfa, sem störfuðu áður í Hegningarhúsinu og í fangelsinu í Kópavogi sem nú hefur verið lokað. Þá verður gæsluvarðhaldsdeild á Litla-Hrauni lögð niður og aðstaða hennar tekin fyrir afplánun. „Þetta er umtalsvert flóknari búnaður en í hinum fangelsunum en við tökum ekki inn fanga fyrr en allt verður klárt. Ég vonast til þess að það verði í ágúst en það verður ekki gert fyrr en mitt fólk er tilbúið,“ segir Páll. Fullnýtt á næsta ári Áætlanir gera ráð fyrir því að fangelsið verði fullnýtt á næsta ári. Að sögn Páls mun það ráðast af því hver mannaflaþörfin verður. „Það eru nokkrir óvissuþættir og við mun- um prófa okkur áfram með mannaflaþörfina og munum sækja um aukið rekstrarfé ef þörf er á en það er seinni tíma vandamál.“ Að sögn Páls munu allir 26 starfsmenn strax hefja störf í fangelsinu, m.a. til þess að læra á allan búnað. „Á Norðurlöndunum hafa menn verið að keyra ný fangelsi fanga- laus í allt að hálft ár en við höfum ekki tíma í það. Þó er ljóst að þangað fara ekki fangar strax á fyrsta degi,“ segir Páll. Fjöldi gesta var viðstaddur opnunarathöfnina og fluttu þau Páll E. Winkel, Jón Ingi Jónsson, formaður Fangavarðafélags Íslands, og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri ávörp, auk Ólafar Nordal innanríkisráðherra. Arkís arkitektar ehf. hlutu fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni, en niður- stöður hennar voru kynntar snemm- sumars árið 2012. Kostnaðurinn 2,7 milljarðar Fyrsta skóflustungan var tekin 4. apríl 2013 og er byggingartíminn því rúm þrjú ár. Jarðvegsframkvæmdir hófust með fyrstu skóflustungunni í kjölfar útboðs og var bygging fang- elsisins boðin út síðar um vorið. Sam- ið var við ÍAV um byggingu hússins, en fyrirtækið átti lægsta tilboð af þremur sem bárust. Kostnaður er alls 2,7 milljarðar króna að með- töldum kostnaði við samkeppni og hönnun og lóðarfrágangi. Bæði verk- áætlun og fjárhagsáætlun hafa stað- ist, samkvæmt því sem fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins. Ákveðið var að fangelsið yrði vott- að samkvæmt alþjóðlega umhverfis- vottunarkerfinu BEEAM og fellur það sérstaklega vel að öllum 10 meg- inreglum svokallaðs Nordic Built- sáttmála. Með þeirri hugmyndafræði er við sköpun á manngerðu umhverfi leitast við að auka lífsgæði, nýta sjálf- bærni og staðbundnar auðlindir og byggja á norrænni hönnunarhefð. „Hefur gríðarlega þýðingu“  Fangelsi á Hólmsheiði formlega opnað í gær  Starfsfólk þarf þjálfun áður en hægt er að fullnýta fangelsið  Fangarýmum fjölgar um 30  Áhersla á öryggi og mannúð  Verslun rekin í fangelsinu Útisvæði Á nokkrum rammgirtum svæðum við fangelsið má njóta útivistar. „Það má kannski segja að það sé með eilítið blendnum huga að fagna áfanga sem þessum. Við fögnum því að sjálfsögðu aldrei að þurfa að svipta menn frelsi sínu og loka á samvistir þeirra við ættingja og vini og útiloka þá frá því að vera nýtir þegnar í þjóðfélaginu. Jafnvel ekki þó að við bjóðum þeim nýtt hús og fullkomna aðstöðu til alls. En refsidómar og fangavist eru fylgifiskar réttarríkisins. Tilgangur refsinga er í senn sá að einstaklingur sem virðir ekki þær reglur sem samfélagið setur sér sé látinn axla ábyrgð og svara til saka en jafnframt viljum við að refsingin hafi í för með sér betrun. Verkefni okkar er að sjá til þess að fullnusta dóma í fangelsum sé mannúðleg – hún sé til þess fallin að bæta viðkomandi og byggja upp til þess að hann geti stigið út í samfélagið sem betri manneskja,“ sagði Ólöf Nordal innanríkisráðherra m.a. í ræðu sinni í tilefni af opnum fangelsisins á Hólmsheiði í gær. Fögnum með blendnum huga ÓLÖF NORDAL INNANRÍKISRÁÐHERRA FLUTTI ÁVARP Ólöf Nordal Páll Winkel Fangelsi Pláss er fyrir 30 fanga á Hólmsheiði í misstórum rýmum. Fyrstu fangar koma í ágúst. Morgunblaðið/Ófeigur Vígsla Lögreglumenn stóðu heiðursvörð við inngang fangelsins áður en vígsluathöfnin hófst í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.