Morgunblaðið - 11.06.2016, Side 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016
Ííslensku máli er mikill og merkilegur orðaforði um dýr. Sumum vefstþó tunga um tönn þegar þau ber á góma. Þar af leiðandi er algengt aðorðalag sem á við um menn sé notað um skepnur. Nýlega var sagt fráþví á mbl.is að hryssa forsætisráðherra hefði kastað folaldi undir fyrir-
sögninni „Hryssa forsætisráðherra ól folald“. Lesendur linntu ekki látum í
athugasemdafærslum fyrr en fyrirsögninni hafði verið breytt. Sögnin ala er
reyndar hlutlausari en fæða í þessari merkingu, sbr. kvendýr ala afkvæmi, en
í þessu samhengi er kasta tvímælalaust rétta sögnin. Á vefnum Tímarit.is
fann ég tvö dæmi frá 1979 um hryssu sem „fæddi folald“ (úr Tímanum og
Morgunblaðinu). Nú veit ég ekki hvort einhver bóndinn fetti fingur út í orða-
lagið á sínum tíma.
Nú þegar sauðburður er yfirstaðinn er vert að nefna dæmi úr Samvinnunni
frá 1944 um kind sem „fæddi lamb“ og enn eldra í Ísafold frá 1896 um á sem
„fæddi lamb“. Ég rakst einnig á frásögn af Steingrími Matthíassyni (1876-
1948), syni þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar, í Læknablaðinu frá 2012
(6. tbl., 98. árg.) en hann var læknir og fór víða um heim og deildi vitneskju
sinni í ferðasögum. Í eftirfarandi frásögn hans er ekki að sjá að sögumaður sé
lítt kunnugur viðfangsefninu, en engu að síður notar hann sögnina fæða: „Um
daginn skeði nú sá merkisviðburður, að kýr fæddi kálf og hafði gengið með
hann 4½ … mánuð fram yfir tímann, eða í 13½ mánuð. Reyndar fæddi hún
ekki hjálparlaust, heldur varð Sigurður dýralæknir fyrst með lyfjum og síðan
með verkfærum að koma
skriði á kálfinn út úr belj-
unni … Eg fór að skoða kálf-
inn … því sagan gekk að
fæddur væri veturgamall
griðungur. Hann var mesta
flykki, nokkuð yfir 100 pund
(en það er stór kálfur, sem
er 75 pund). Einkum voru klaufirnar ferlegar og hausinn.“
Það leynir sér sjaldan þegar viðfangsefni er framandi þeim sem um það
fjallar. Í fyrra var á mbl.is greint frá vannærðum dreng sem drakk „brjósta-
mjólk úr hundi nágrannans. Að sögn vitna gaf tíkin barninu að drekka á bif-
reiðaverkstæði …“ Þetta gæti gerst í teiknimynd. Einhver hefur gert at-
hugasemd við textann því að seinna var brjóstamjólk skipt út fyrir
tíkarmjólk, en eftir stendur móðurleg tík á bifreiðaverkstæði að gefa barni að
drekka.
Til að einfalda málið vek ég athygli á eftirfarandi minnisvísum. Sú fyrsta er
um meðgöngutíma í vikum talinn (höf. ókunnur):
Kötturinn níu, tíkin tíu, tuttugu ærin,
fjörutíu konan, kýrin,
kapallinn dregur lengstan vírinn.
Öllu þekktari er vísa Guðmundar Þorlákssonar (1852-1910):
Kæpir selur, kastar mer,
konan fæðir, ærin ber,
fuglinn verpur, flugan skítur,
fiskur hrygnir, tíkin gýtur.
Víða á leikskólum landsins læra börn nú að nefna hljóðin sem dýr gefa frá
sér af þekktri dýravísu:
Hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur,
galar, krunkar, geltir, hrín,
gneggjar, tístir, syngur.
Kæpir selur, kastar mer
Tungutak
Eva S. Ólafsdóttir
eva@skyrslur.is
Það hefur dofnað yfir kosningabaráttunni vegnaforsetakosninganna með áberandi hætti aðundanförnu, sennilega vegna þess að um fátt errætt sem grípur hugi fólks en jafnframt er að
kvikna líf í sumum stjórnmálaflokkanna vegna þingkosn-
inganna, sem telja verður víst að fram fari í haust.
Augljóst er að tveir málaflokkar kalla á aðgerðir þegar
í stað og munu því móta kosningabaráttuna mjög. Þar er
um að ræða heilbrigðismál og húsnæðismál.
Allir þeir, sem haft hafa samskipti við heilbrigðiskerfið
almennt og Landspítalann sérstaklega síðustu misseri
vita að þar er beinlínis hætta á ferðum, svo mjög hefur
verið gengið að starfsfólki með niðurskurði útgjalda og
þar með kröfum um aukið vinnuálag. Vel má vera, að þeir
sem hafa verið svo heppnir að þurfa ekki að njóta þjón-
ustu þessa kerfis átti sig ekki fyllilega á því hvað um er
að ræða en þeir stjórnmálamenn sem í haust þurfa að
sækja endurnýjað umboð til kjósenda ættu a.m.k. að hafa
í huga þá 86 þúsund kjósendur
sem þátt tóku í undirskriftasöfn-
un Kára Stefánssonar. Þetta fólk
var ekki að skrifa undir af gamni
sínu heldur vegna þess að það veit
hvað um er að tefla.
Samþykktir landsfundar Sam-
fylkingarinnar á dögunum sýna
að sá flokkur hefur áttað sig á
mikilvægi þessa máls. Forystu-
menn núverandi ríkisstjórnar ættu að gæta sín á því að
taka þessum áskorunum af léttúð. Það er til orðinn eins
konar þverpólitískur „heilbrigðismálaflokkur“ sem
mundi ekki sætta sig við slíkt skeytingarleysi.
Augljóst er að húsnæðismál eru komin í ógöngur.
Fasteignaverð í eldri hverfum Reykjavíkur er orðið svo
himinhátt að venjulegir launamenn hafa ekki efni á hús-
næðiskaupum þar. Fréttir um nýtt fasteignamat benda
til þess að það sama sé að gerast í sumum úthverfum.
Jafnframt fer húsaleiga síhækkandi sem þýðir að það
sama launafólk hefur heldur ekki efni á að leigja húsnæði
nema þá í fjarlægari úthverfum, sem þýðir að samgöngu-
kostnaður verður umtalsverður.
Þetta er sennilega alvarlegasti vandi, sem steðjar að
yngri kynslóðum um þessar mundir. Tvennt er að gerast
sem gæti dregið úr þessum vanda. Annars vegar er aug-
ljóst að Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur
lagt mikla vinnu í þennan málaflokk en tafir á málum
hennar benda til að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn sé
ekki alveg sáttur við þá stefnu, sem hún er að taka. Það
getur orðið varasamt fyrir Sjálfstæðisflokkinn þegar út í
kosningabaráttu er komið og Eygló fer að tala.
Hins vegar eru ASÍ og BSRB að taka frumkvæði í
byggingu húsnæðis, sem gæti orðið alvarleg samkeppni
við þá byggingaraðila, sem fyrir eru. Það má búast við
miklum umræðum um húsnæðismálin í kosningabarátt-
unni.
Þá er ljóst að bankar verða ekki settir í sölu fyrir kosn-
ingar en hins vegar hljóta verulegar umræður að fara
fram um endurskipulagningu bankakerfisins. Frosti Sig-
urjónsson, þingmaður Framsóknarflokks, hefur ákveðið
að gefa ekki kost á sér til þingsetu á ný, sem er áfall fyrir
bæði Framsóknarflokkinn og þjóðina vegna þess að
Frosti hefur haft forystu um skynsamlegar umræður um
breytingar á bönkunum. Það væri afleitt ef brottför hans
af þingi yrði til þess að umræður um bankana beindust í
hefðbundnari farveg. Þjóðfélagið þarf á því að halda að
róttækar breytingar verði gerðar á bankakerfinu.
Tvö stórmál af öðrum toga verða áreiðanlega til um-
ræðu í sumar og haust. Annars vegar er um að ræða
breytingar á stjórnarskrá. Það hefur komið á óvart að all-
ir frambjóðendur í forsetakosningum
vilja með mismunandi fyrirvörum og
breytingum halda í ákvæði 26. gr.
stjórnarskrárinnar, sem veitir for-
seta synjunarvald eða málskotsrétt,
hvort orðið, sem menn vilja nota.
Margir aðrir eru aftur á móti á því að
afnema eigi þetta stjórnarskrár-
ákvæði en færa þetta vald til þjóðar-
innar sjálfrar að öllu leyti. Það er
nauðsynlegt að ræða þessi mál og önnur sem snúa að hlut-
verki forseta Íslands í kosningabaráttunni. Málflutningur
einstakra frambjóðenda í forsetakosningum er vísbending
um að hugmyndir fólks um þetta embætti eru komnar út
um víðan völl.
Hitt málið er náttúruvernd. Alveg með sama hætti og
við Íslendingar vorum sjálfir að ganga um of á fiskistofn-
ana, þótt við værum búnir að losna við Breta af fiski-
miðum okkar, fer ekki á milli mála að gullæðið, sem hefur
gripið um sig vegna erlendra ferðamanna er að stofna
náttúru landsins í hættu vegna mikils fjölda þeirra og lé-
legrar umgengni um lykilsvæði.
Stofnun þjóðgarðs á hálendinu öllu er eitt mikilvægasta
náttúruverndarmál okkar tíma svo og stöðvun allra fram-
kvæmda, hverju nafni sem nefnast, í óbyggðum. Þess
vegna hlýtur þessi málaflokkur að koma til alvarlegrar
umræðu í kosningabaráttunni.
Loks verður ekki hjá því komist að nefna óviðunandi
viðskilnað núverandi stjórnarflokka við ESB-málið. Tals-
menn þeirra halda því fram, að aðildarumsókn Íslands að
ESB hafi verið dregin til baka. Það er rangt. Ísland er
ekki lengur á skrá yfir umsóknarríki en í augum Brussel
er það eitt og formleg afturköllun aðildarumsóknar ann-
að.
Þetta mál verður aftur á móti ekki til umræðu í kosn-
ingabaráttunni, hvorki af hálfu stjórnarflokka né stjórn-
arandstöðu. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur
vita upp á sig skömmina og eru fegnir að stjórnarand-
staðan tekur málið ekki til umræðu af því að það hentar
ekki hagsmunum þeirra flokka.
Um þetta munu þing-
kosningarnar snúast
Afnám 26. gr. stjórnar-
skrár þarf að ræða, þótt
forsetaframbjóðendur séu
því andsnúnir.
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Til eru á Netinu fróðleg skjöl umbankahrunið. Eitt þeirra er til-
skipun (Supervisory Notice) frá
breska fjármálaeftirlitinu, FSA,
sem lögð var fyrir útibú Lands-
bankans í Lundúnum 3. október
2008. Hún var þá trúnaðarmál. Í
hana var þó vitnað í skýrslu banka-
stjóra Landsbankans um banka-
hrunið frá febrúar 2009, auk þess
sem hún var meðal gagna, sem al-
þingismenn fengu í hendur frá
breskri lögmannsstofu í desember
2009.
Samkvæmt tilskipuninni átti
Landsbankaútibúið í Lundúnum
þegar að setja 10% af óbundnum
innstæðum á Icesave-reikningum í
Bretlandi inn á bundinn reikning í
Englandsbanka og meira síðar.
Þetta fól í sér, eins og komið hefur
fram, að Landsbankinn á Íslandi
átti strax að færa 200 milljónir
punda til Bretlands. En öðru hefur
ekki verið veitt athygli: Jafnframt
var lagt blátt bann við því að færa
eitthvað af lausafé bankaútibúsins
eða öðrum eignum þess í Bretlandi
úr landi nema með þriggja daga
fyrirvara og skriflegu leyfi fjár-
málaeftirlitsins. Þótt tilskipunin
væri trúnaðarmál, var Barclays-
banka skýrt frá henni, en hann sá
um allar færslur á Icesave-
reikningunum.
Þetta seinna atriði er stór-
merkilegt. Það sýnir, svo að ekki
verður um villst, að óþarfi var að
beita hryðjuverkalögunum al-
ræmdu gegn Íslandi, eins og gert
var fimm dögum síðar, 8. október.
Þeir Alistair Darling fjármála-
ráðherra og Gordon Brown for-
sætisráðherra réttlættu beitingu
laganna með því að koma yrði í veg
fyrir ólöglega fjármagnsflutninga
frá Bretlandi til Íslands. En með
tilskipuninni höfðu þeir þegar í
höndum tæki, sem til þess dugði.
Þegar breskir embættismenn
birtust síðan í útibúi Landsbankans
í Lundúnum, varð þeim strax ljóst,
að ekkert óeðlilegt átti sér þar
stað. Því var ákveðið 12. október,
að Englandsbanki veitti útibúinu
100 milljón punda lán til að bæta
lausafjárstöðuna, á meðan það væri
gert upp. Skömmu eftir að breska
fjármálaráðuneytið setti íslenskt
fyrirtæki á lista um hryðjuverka-
samtök, veitti Englandsbanki því
þannig stórlán!
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Merkilegt skjal frá
breska fjármálaeftirlitinu
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
súrdeigsbrauðin okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.