Morgunblaðið - 11.06.2016, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Sturla Atlas (Sigurbjartur Sturla Atla-son) er rapparinn og andlitið út á viðen hann tilheyrir um leið félagsskapn-
um 101 Boys („posse“ eða „crew“ upp á
ensku) sem telur, í kjarnanum a.m.k., þá
Loga Pedró, Jóhann Kristófer Stefánsson og
Arnar Inga Ingason. Season 2 er nýjasta
blandspólan þeirra eða „mixtape“ og ég aug-
lýsi hér með eftir að-
eins kynþokkafyllri
þýðingu. Það er of
langt að fara út í
mikla þýðingar- og
orðsifjafræði hér en
undanfarið hafa rapp-
arar starfað í útgáfu-
málum á tveimur svið-
um, gefa út bland-
spólur og svo form-
legar plötur. Blandspólurnar eru jafnan fleiri,
þær birtast oftast óforvarandis og menn gefa
sér einatt meira frelsi og stunda þar meira af
tilraunum en á „alvöru“ plötunum.
Hingað til hefur Sturla Atlas eingöngu
gefið út blandspólur, þeim er skotið frítt upp
á alnetið (Spotify, niðurhal o.s.frv.) en þetta
eru engu að síður fullburða plötur/verk, með
umslagshönnun, vel frágenginni hljóðmynd,
lögum og svo má telja. Útgáfutíðnin fylgir því
sem tíðkast erlendis, nýtt efni á þriggja, fjög-
urra mánaða fresti og er það vel. Þetta minn-
ir á gamla daga, sjöunda áratuginn þegar
sveitir gáfu út tvær, þrjár plötur á ári.
Mér hefur þótt mikið til Sturlu Atlas
koma, hann er einfaldlega „með þetta“. Hann
er töff, sveipaður svalri áru og ber það sem
hann og 101 boys eru að koma frá sér uppi
með glans. Og það er litið í öll horn; mynd-
böndin hafa verið flott, heildarímynd sömu-
leiðis og einnig er fatalína á boðstólum.
Heildræn listsköpun þar sem tónlistin er eitt
af tannhjólunum, þó að það sé vissulega það
stærsta (er hægt að tala um misstór tann-
hjól?).
Og tölum nú aðeins um hana, tónlist-
ina. Sturla hefur gert út á tilfinningarapp-
ið, kliðmjúkt og dramatískt í anda Drake
og viðlíka. Hér er rýnt í sálartetrið og það
er gert af krafti í opnunarlaginu „Fed
Up“, rætt er um djammið, kærustuvanda-
málin og annað sem plagar unga menn
sem eru rétt skriðnir yfir tvítugt. Í „Talk“
er hið síðarnefnda sett í meiri fókus, með
línum eins og „I don’t wanna talk to you/I
don’t wanna be around for you/Makin‘ me
feel like I should have held onto you …“.
Já, þetta er snúið! „In the Nitetime“ er
einkar melódískt og er gott dæmi um
hversu poppaður Sturla Atlas er (hrós!).
Þetta er hipphopp, hvasst og drungalegt á
köflum en ætti líka að geta rúllað af krafti
á öldum ljósvakans þar sem annar fóturinn
er í áhlýðilegu R og B-i. Sturla er bestur
þegar hjartað er á erminni og töffara-
stemmur virka ekki jafn vel, sjá t.d. smá-
skífuna „Vino“ sem er dálítið kauðsk. Plöt-
unni er slitið með angurværu lagi,
„Sweetheart“, dreymið og áhrifaríkt.
Að lokum verð ég að geta umslagsins,
sem er snilldarlega hannað af þeim Sigga
Odds og Kjartani Hreinssyni. Fagurfræðin
minnir einhverra hluta vegna á gamlar þrass-
plötur frá níunda áratugnum, og hvort sem
það var meðvitað eður ei er það algerlega
meistaralegt. En áfram með smjörið, haldið
áfram strákar, þessi penni er langt í frá
„Fed up“.
»Mér hefur þótt mikið til SturluAtlas koma, hann er einfaldlega
„með þetta“. Hann er töff, sveipaður
svalri áru og ber það sem hann og
101 boys eru að koma frá sér uppi
með glans.
Sturla Atlas hefur verið iðinn við rappkolann, á einu ári hefur
hann gefið út þrjár plötur og sú nýjasta, Season 2, kom út fyrir
síðustu helgi. Logi Pedró Stefánsson sér að mestu um upptökur
en Hermigervill og Ung Naza koma og að þeim þætti.
Ráðstefna um kvikmyndir smáþjóða
hófst í fyrradag á Möltu og sækja
hana tveir fulltrúar frá Íslandi,
Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík og Laufey Guðjónsdóttir,
forstöðumaður Kvikmyndamið-
stöðvar Íslands. Auk Íslands eiga Ír-
land, Moldavía, Lettland, Króatía og
Malta fulltrúa á ráðstefnunni, að því
er fram kemur í tilkynningu.
Markmiðið með ráðstefnunni er
að safna saman fræðimönnum, kvik-
myndagerðarmönnum, stefnumót-
endum, fjölmiðlafólki og dreifingar-
aðilum til að ræða um kvikmynda-
gerð minnstu ríkja heimsins.
„Á ráðstefnunni verður rætt um
þær hindranir sem smáþjóðir verða
fyrir í frumkvöðlastarfi, þá opinberu
stefnu sem gildir um kvikmynda-
framleiðslu, hlutverk menntunar í
sköpun sjónlista, aðgengi að dreifi-
kerfi fyrir litlar þjóðir og tækifæri
sem skapast þegar kvikmyndagerð-
armenn og framleiðendur smáþjóða
vinna saman,“ segir í tilkynningunni.
Hrönn segir þar að Malta líti til
Íslands hvað varðar kvikmynda-
stefnu. „Þeim finnst mikið til koma
hvað Íslandi hefur gengið vel al-
þjóðlega og vilja læra af okkur. Það
er von okkar hjá Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík að þátttaka
á ráðstefnunni verði til þess að
styrkja samband okkar við aðrar
smáþjóðir á borð við Möltu og að við
finnum vettvang til frekari sam-
vinnu á komandi árum,“ er haft eftir
Hrönn.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á Möltu Hrönn Marinósdóttir.
Hrönn og Laufey sækja ráðstefnu
á Möltu um kvikmyndir smáþjóða
„Vilja læra af okkur“
Póstlistaforsala á
jólatónleika
Björgvins Hall-
dórssonar, Jóla-
gesti Björgvins,
sem haldnir
verða 10. desem-
ber í Laugardals-
höll, hefst á
þriðjudaginn kl.
10 og hafa gestir
Björgvins verið
kynntir til leiks. Þeir eru Ágústa
Eva, Eyþór Ingi Gunnlaugsson,
Friðrik Dór, Gissur Páll Gissurar-
son, Jóhanna Guðrún, Ragnhildur
Gísladóttir og sérstakur gestur,
Thorsteinn Einarsson.
Forsala hefst á
Jólagesti Björgvins
Björgvin
Halldórsson
Feitt og fallegt flæði
Morgunblaðið/Eggert
Stíll Sturla Atlas
er flottur, er bæði
með tónlistina og
ímyndina með sér.
Hámarkaðu árangur þinn
Á milli þín og keppinauta þinna, þarf að jafna metin. Að brjóta tímamúra.
Kepptu við þá bestu með Edge 520, GPS reiðhjólatölva sem gefur þér færi á
að keppa við Strava tímakafla í rauntíma og þú sérð um leið árangurinn á skjánum.
Æfingin skapar
meistarann
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
THE NICE GUYS 2, 8, 10:30
FLORENCE FOSTER JENKINS 5, 8
WARCRAFT 2, 5, 8, 10:30
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 1:50, 3:50, 5:50
BAD NEIGHBORS 2 10:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:50