Morgunblaðið - 11.07.2016, Side 1
M Á N U D A G U R 1 1. J Ú L Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 160. tölublað 104. árgangur
DAUÐA-
MÁLMUR OG
SVARTMÁLMUR
GÓÐUR DAGUR
FYRIR ÍSLENSK-
AR KONUR
BÓKIN TRAUSTIR
HLEKKIR GEFIN ÚT
Á TÍMAMÓTUM
EM Í FRJÁLSUM ÍÞRÓTTIR ODDFELLOWREGLAN 26EISTNAFLUG 29
Þegar fyrirtæki velur fræga
manneskju til að auglýsa vöru
þarf að vanda valið því meðfædd
svipbrigði fólks gefa ákveðnar til-
finningar til kynna. Bros getur
ekki falið reiðilega drætti í andliti
og tár á hvarmi dylur það ekki ef
andlitið er gleðilegt frá náttúr-
unnar hendi.
Inga Minelgaite Snæbjörnsson
og Egle Vaiciukynaite greindu
andlit íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu með sérstökum hug-
búnaði. Kom í ljós að andlit þeirra
sumra gefa til kynna undrun,
gleði og jafnvel andstyggð.
Andlitið á Cristiano Ronaldo
hefur mikið verið rannsakað með
tilliti til hvernig best er hægt að
nýta ásjónu portúgölsku knatt-
spyrnuhetjunnar í auglýsingum.
» 14
Hittir andlitið í mark fyrir auglýsingar?
AFP
Tilfinning Svipbrigði Arons Einars Gunn-
arssonar þykja gefa til kynna reiði.
Portúgalar standa uppi sem sigurvegarar á Evrópumótinu í knattspyrnu
eftir að hafa lagt Frakka að velli í framlengdum leik í gærkvöldi. Éder,
leikmaður Lille í Frakklandi, skoraði eina mark leiksins á 109. mínútu.
Þetta er fyrsti Evrópumeistaratitill Portúgala, en þeir lutu í lægra haldi í
síðasta úrslitaleik sínum gegn Grikklandi í Portúgal árið 2004.
Ronaldo, skærasta stjarna portúgalska liðsins, var borinn meiddur af
velli eftir einungis 25 mínútna leik, en það kemur maður í manns stað og ef
eitthvað er þá efldist leikur Portúgala við skiptinguna. Frakkar fengu
nokkur góð færi til þess að gera út um leikinn áður en Portúgalar skoruðu
en allt kom fyrir ekki.
Mikil stemning var á EM-torginu á Ingólfstorgi í gærkvöldi þar sem leik-
urinn var sýndur á risatjaldi og fjölmargir fótboltaglaðir áhorfendur
höfðu lagt leið sína þangað til að fylgjast með. Meðal annars voru þar sam-
an komnir allmargir stuðningsmenn Portúgala og fögnuðu þeir af miklum
krafti í leikslok þegar úrslit leiksins lágu fyrir. » Íþróttir
Portúgalar krýndir
Evrópumeistarar
Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu lauk í gærkvöld
AFP
Sigurvegarar Þetta er í fyrsta sinn sem Portúgalar sigra á stórmóti og var sigrinum vel fagnað, en Portúgalar lentu í þriðja sæti árið 2012 í Póllandi og
Úkraínu og í öðru sæti í Portúgal árið 2004. Íslendingar gerðu eftirminnilega 1-1 jafntefli við Portúgala í fyrsta leik liðanna á þessu Evrópumóti.
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Stuðningsmenn Portúgala á Ingólfstorgi fögnuðu sigrinum ákaft.
Fyrirtækið Arc-
tic-resources
(ARC), sem er að
stórum hluta í
eigu Íslendinga,
hefur á undan-
Sförnum árum
fjárfest í gull- og
sinknámum á
Grænlandi. Nám-
unum hafði áður
verið lokað en
rannsóknir fyrirtækisins hafa gefið
góð fyrirheit og vonir standa til að
hefja framleiðslu að nýju.
Gullnáman nefnist Nalunaq og er í
Kirkespirdalen á Suður-Grænlandi.
Sinknáman kallast Black Angel og
er í norðvesturhluta Grænlands. Að
sögn Elds Ólafssonar, stofnanda
ARC, er eiginleg vinnsla ekki hafin
og hefur mest áhersla verið lögð á
rannsóknir sem gefa góða raun.
„Það höfðu ekki verið tekin saman
söguleg rannsóknargögn úr gull-
námunni fyrr en við gerðum það.
Hópur 30 sérfræðinga var settur
saman til að greina gögnin og
byggja upp jarðfræðileg líkön til að
ákveða hvaða rannsóknir ætti að
fara í næst,“ segir Eldur. Meðal
rannsóknaraðferða var flugferð með
fjallaklifursmenn til að skoða gullæð
sem talið var að kæmi úr fjallinu hin-
um megin við það sem þáverandi
vinnsla fór fram. „Það var töluvert
flókið því þar er 400 metra þverhnípi
á fjalli sem er 1.300 metrar á hæð.
Klifurmennirnir sigu niður fjallið
eftir að hafa verið hent út úr þyrlu
og úr varð að við náðum að taka sýni
úr fjallinu sem sýndi að þar er sama
gullæð og unnið hefur verið úr í fjall-
inu. Áður var talið að ekki væri mik-
ið meira gull í námunni,“ segir Eld-
ur. vidar@mbl.is »4
Eiga
gullnámu
á Græn-
landi
Íslenskt fyrirtæki
rannsakar gullnámu
Gull Náman er á
Grænlandi.
Margir hafa gert athugasemdir
við drög að nýju frumvarpi um
mannanafnalög sem innanrík-
isráðuneytið hefur sett fram.
„Það er svo margt skrítið við
þetta frumvarp að ég botna ekkert í
því,“ segir Guðrún Kvaran prófess-
or. Hún segir frumvarpið færa all-
an rétt til foreldra en skilji engan
eftir handa barninu. Enginn muni
hafa heimild til að ræða við for-
eldra um hvort nafnið sé barninu
fyrir bestu.
Þórarinn Eldjárn rithöfundur er
hissa á tillögum ráðuneytisins. „Oft
er á bak við þetta sú trú sem er hjá
mörgum Íslendingum að allar regl-
ur og lög sem snúa að verndun
tungumáls eða málhefða sé eitt-
hvert séríslenskt
fyrirbæri sem
hvergi þekkist
annars staðar á
byggðu bóli.
Þetta er gríð-
arlegur misskiln-
ingur,“ segir
Þórarinn.
Trausti Fannar
Valsson, dósent í
stjórnsýslurétti,
segir að í mörgum nágrannalöndum
okkar gildi strangar reglur um
nafnaskráningar, ættarnöfn og staf-
setningu nafna. Hins vegar hafi ný-
legir dómar sýnt fram á það að
nauðsynlegt sé að gera endurbætur
á lögunum. »9
Efins um nýtt frumvarp um mannanöfn
Nafn Hvað á barnið
að heita?
Til stendur að afnema vinstri
beygju frá Hafnavegi út á Reykja-
nesbraut. Banaslys varð á gatna-
mótunum á fimmtudag. Slysið er
áttunda banaslysið í umferðinni á
árinu. „Þegar útboð var gert á
hringtorginu við Fitjar hefði síð-
asta verkið í þeirri vinnu átt að
vera að taka vinstri beygjuna frá
Hafnavegi út á Reykjanesbraut af,“
segir G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Verkið tafðist hins vegar vegna
veðurs. Nú hefur verið samþykkt
að gera undirgöng á þessum vegar-
kafla og segir G. Pétur að hent-
ugast sé að vinna að þessum verk-
efnum samtímis, sem fyrst. »6
Afnema vinstri
beygju við Hafnaveg